Hoppa yfir valmynd
7. maí 2020 Dómsmálaráðuneytið

Nr. 169/2020 Úrskurður

KÆRUNEFND ÚTLENDINGAMÁLA

Þann 7. maí 2020 er kveðinn upp svohljóðandi

úrskurður nr. 169/2020

í stjórnsýslumálum nr. KNU20040019 og KNU20040020

 

Beiðni [...], [...] og barns þeirra um endurupptöku

 

I. Málsatvik

Þann 5. desember 2019 staðfesti kærunefnd útlendingamála ákvarðanir Útlendingastofnunar frá 2. september 2019 um að taka ekki umsóknir einstaklinga er kveðast heita [...], vera fædd [...] og vera ríkisborgari [...] (hér eftir K) og [...], vera fæddur [...] og vera ríkisborgari [...] (hér eftir M), um alþjóðlega vernd á Íslandi til efnismeðferðar og vísa þeim frá landinu.

Niðurstaða kærunefndar var birt fyrir kærendum þann 9. desember 2019. Þann 16. desember 2019 barst kærunefnd beiðni kærenda um frestun réttaráhrifa á úrskurði nefndarinnar. Var fallist á beiðni þeirra þann 10. janúar 2020 með úrskurði kærunefndar nr. 19/2020. Beiðni kærenda um endurupptöku á úrskurði kærunefndar barst kærunefnd þann 29. desember 2019, ásamt greinargerð. Var beiðni þeirra hafnað þann 29. janúar sl. með úrskurði kærunefndar nr. 32/2020. Þann 26. desember 2019 eignuðust kærendur barn og öðlaðist það við fæðingu stöðu aðila málsins.

Þann 8. apríl 2020 leiðbeindi kærunefnd kærendum, með vísan til þeirrar stöðu sem uppi sé vegna Covid-19 faraldursins, að óska eftir endurupptöku máls þeirra hjá nefndinni. Þann 15. apríl sl. lögðu kærendur fram beiðni um endurupptöku öðru sinni á úrskurði nefndarinnar nr. 569/2019, dags. 5. desember 2019.

Beiðni kærenda um endurupptöku máls þeirra byggir á 2. tölul. 1. mgr. 24. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993.

II. Málsástæður og rök kærenda

Kærendur reisa beiðni sína um endurupptöku á 2. tölul. 1. mgr. 24. gr. stjórnsýslulaga. Í beiðni sinni um endurupptöku vísa kærendur til tölvupósts sem lögmanni þeirra barst frá formanni nefndarinnar, dags. 8. apríl sl., þar sem kærendur telji að fram hafi komið að til stæði að endurskoða og eftir atvikum endurupptaka mál fjölskyldunnar vegna heimsfaraldurs Covid-19. Með vísan til framangreinds óska kærendur þess að mál þeirra og barns þeirra verði endurupptekið.

III. Niðurstaða kærunefndar útlendingamála um endurupptöku stjórnsýslumáls

Samkvæmt 24. gr. stjórnsýslulaga á aðili máls rétt á því að mál hans verði tekið upp á ný ef ákvörðun hefur byggst á ófullnægjandi eða röngum upplýsingum um málsatvik eða íþyngjandi ákvörðun um boð eða bann hefur byggst á atvikum sem breyst hafa verulega frá því að ákvörðun var tekin.

Eins og áður hefur komið fram kvað kærunefnd upp úrskurð í málum kærenda þann 5. desember 2019. Með úrskurðinum var komist að þeirri niðurstöðu að synjun á efnismeðferð umsókna kærenda um alþjóðlega vernd á Íslandi og frávísun frá landinu bryti ekki gegn 1. eða 2. mgr. 42. gr. laga um útlendinga, sbr. 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu, sbr. lög nr. 62/1994. Þá var ekki talið að kærendur hefðu slík tengsl við landið að nærtækast væri að þau fái hér vernd eða að sérstakar ástæður mæltu annars með því að taka ætti umsóknir þeirra um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar hér á landi, sbr. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.

Af endurupptökubeiðni kærenda má ráða að þau byggi beiðni sína um endurupptöku á því að aðstæður í máli þeirra hafi breyst vegna heimsfaraldursins Covid-19.

Við úrlausn málsins hefur kærunefnd litið til hinna sérstöku aðstæðna sem eru uppi í ljósi Covid-19 faraldursins, þeirra áhrifa sem hann kann að hafa á aðstæður þeirra sem hlotið hafa alþjóðlega vernd í Grikklandi og þeirrar óvissu sem framundan er. Þá hefur kærunefnd jafnframt litið til forsendna í úrskurði kærunefndar nr. 569/2019 og málsins í heild. Með vísan til þess er það mat kærunefndar að aðstæður hafi breyst verulega frá því að úrskurður í máli kærenda var kveðinn upp, sbr. 2. tölul. 1. mgr. 24. gr. stjórnsýslulaga. Kærunefnd fellst því á beiðni kærenda um endurupptöku mála þeirra.

IV. Niðurstaða kærunefndar útlendingamála um umsókn kærenda um alþjóðlega vernd hér á landi

Ákvæði 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga

Í 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga kemur fram að ef svo standi á sem greini í 1. mgr. skuli þó taka umsókn um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar ef útlendingurinn hefur slík sérstök tengsl við landið að nærtækast sé að hann fái hér vernd eða ef sérstakar ástæður mæli annars með því. Í 32. gr. a og 32. gr. b reglugerðar um útlendinga nr. 540/2017, sbr. 4. mgr. 36. gr. laganna, koma fram viðmið varðandi mat á því hvort taka skuli umsókn um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar vegna sérstakra tengsla eða ef sérstakar ástæður mæla með því. Þá segir í 2. mgr. 36. gr. laganna að ef meira en 12 mánuðir hafa liðið frá því að umsókn um alþjóðlega vernd barst fyrst íslenskum stjórnvöldum og tafir á afgreiðslu hennar eru ekki á ábyrgð umsækjanda sjálfs skal taka hana til efnismeðferðar.Þá koma fram í 32. gr. a reglugerðar um útlendinga sérviðmið er varða börn og ungmenni. Þar segir m.a. að við mat á því hvort taka skuli umsókn til efnismeðferðar vegna sérstakra ástæðna skuli hagsmunir barnsins hafðir að leiðarljósi. Þá segir að sé ólögráða barn í fylgd annars eða beggja foreldra eða annars fjölskyldumeðlims sem hefur það á framfæri sínu skuli það almennt viðurkennt að hagsmunum barns sé best borgið með því að tryggja fjölskylduna sem heild og rétt hennar til að vera saman. Við það mat beri meðal annars að líta til þess hvort flutningur til viðtökuríkis hafi í för með sér hættu á að fjölskyldan aðskiljist eða muni aðskiljast.

Kærendur eru með alþjóðlega vernd í Grikklandi og hafa greint frá bágum aðstæðum sínum þar í landi. Kærendur hafi að eigin sögn haft takmarkaðan aðgang að heilbrigðis- og félagslegri þjónustu og greint frá erfiðleikum við að finna sér atvinnu. Í fyrirliggjandi gögnum málanna kemur m.a. fram að kærendur séu almennt heilbrigð og að K hafi fætt barn kærenda þann [...]. Bera gögnin ekki annað með sér en að barnið sé heilbrigt. Í úrskurði kærunefndar í málum kærenda, dags. 5. desember 2019, byggði kærunefnd á því að ekki væru forsendur til annars, í ljósi þeirra upplýsinga sem lægju fyrir um aðstæður í Grikklandi og gagna í málinu, en að leggja til grundvallar við úrlausn málanna að kærendur og þá ófætt barn þeirra gætu leitað sér fullnægjandi heilbrigðisþjónustu í Grikklandi í samræmi við þarfir sínar. Var áréttað að einstaklingar sem hlotið hafa alþjóðlega vernd í Grikklandi eigi að lögum sambærilegan rétt á heilbrigðisþjónustu og félagslegri aðstoð og ríkisborgarar í Grikklandi, þó að þeir þurfi í einhverjum tilvikum að yfirstíga ákveðnar hindranir til að sækja þá þjónustu. Var það mat nefndarinnar að flutningur fjölskyldunnar til Grikklands samrýmdist hagsmunum barnsins þegar litið væri m.a. til öryggis þess, velferðar og félagslegs þroska, sbr. 3. mgr. 25. gr. laga um útlendinga.

Frá því að kærunefnd útlendingamála úrskurðaði í málum kærenda þann 5. desember sl. hafa aðstæður breyst verulega með tilkomu Covid-19 faraldursins. Ljóst er að faraldurinn mun hafa verulegar neikvæðar efnahagslegar afleiðingar sem og neikvæð áhrif á innviði viðtökuríkisins. Að mati kærunefndar getur þetta leitt til aðgangshindrana að þjónustu fyrir flóttamenn og umsækjendur um alþjóðlega vernd, þ. á m. heilbrigðisþjónustu.

Þá liggur fyrir að vegna útbreiðslu Covid-19 faraldursins hafa mörg ríki, þ.m.t. viðtökuríkið, sett á ferðatakmarkanir og mörg hver lokað tímabundið fyrir endursendingar, bæði einstaklinga með vernd og á grundvelli Dyflinnarreglugerðarinnar, en óvíst er hvenær opnað verði aftur fyrir endursendingar.

Í ljósi þeirra áskorana sem viðtökuríkið hefur glímt við um nokkurt skeið í tengslum við aðgengi þeirra sem njóta alþjóðlegrar verndar að innviðum og lagalegum réttindum og með vísan til þeirra erfiðleika sem ætla má að Covid-19 faraldurinn leiði til í ríkinu telur kærunefnd, að svo stöddu, að ástæða sé til að ætla að ekki sé um að ræða svo tímabundið ástand að hjá því verði litið.

Að mati kærunefndar mæla því sérstakar ástæður, í skilningi 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga, með því að mál kærenda og barns þeirra verði tekin til efnismeðferðar hér á landi, m.a. með vísan til samverkandi áhrifa stöðu kærenda og barns þeirra í viðtökuríki, áhrifa Covid-19 faraldursins á innviði Grikklands og þeirrar óvissu sem af faraldrinum leiðir að öðru leyti.

Að öllu framangreindu virtu er það niðurstaða kærunefndar, eins og hér stendur sérstaklega á og í ljósi heildarmats á aðstæðum kærenda og barns þeirra, að fella beri úr gildi ákvarðanir Útlendingastofnunar í málum þeirra og leggja fyrir stofnunina að taka mál þeirra til efnismeðferðar á grundvelli 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.

Samantekt

Með vísan til alls þess sem að framan er rakið er það niðurstaða kærunefndar að fella úr gildi ákvarðanir Útlendingastofnunar í málum kærenda og leggja fyrir stofnunina að taka mál þeirra til efnislegrar meðferðar á grundvelli 1. málsl. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.

 

Úrskurðarorð

Fallist er á beiðni kærenda um endurupptöku á málum þeirra. Ákvarðanir Útlendingastofnunar eru felldar úr gildi. Lagt er fyrir Útlendingastofnun að taka mál kærenda til efnismeðferðar.

The appellants‘s requests for re-examination of their case is granted.The decisions of the Directorate of Immigration are vacated. The Directorate shall examine the merits of the applicants‘s applications for international protection in Iceland.

 

Hjörtur Bragi Sverrisson

 

Árni Helgason                                          Þorbjörg Inga Jónsdóttir

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum