Hoppa yfir valmynd
15. desember 2021 Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið

Mál nr. 569/2021 - Úrskurður

 

Úrskurðarnefnd velferðarmála

Mál nr. 569/2021

Miðvikudaginn 15. desember 2021

A

gegn

Tryggingastofnun ríkisins

Ú R S K U R Ð U R

Mál þetta úrskurða Rakel Þorsteinsdóttir lögfræðingur, Eva Dís Pálmadóttir lögfræðingur og Unnþór Jónsson lögfræðingur.

Með rafrænni kæru, móttekinni 1. nóvember 2021, kærði A til úrskurðarnefndar velferðarmála ákvörðun Tryggingastofnunar ríkisins frá 27. október 2021 um að samþykkja umsókn barnsmóður hans um milligöngu um meðlagsgreiðslur frá 1. október 2021. 

I.  Málsatvik og málsmeðferð

Með umsókn, dags. 8. október 2021, sótti barnsmóðir kæranda um milligöngu Tryggingastofnunar ríkisins um meðlagsgreiðslur með þremur börnum þeirra frá 1. október 2021. Með bréfi Tryggingastofnunar ríkisins, dags. 27. október 2021, var kæranda tilkynnt um milligöngu stofnunarinnar á meðlagsgreiðslum til barnsmóður hans frá 1. október 2021.

Kæra barst úrskurðarnefnd velferðarmála 1. nóvember 2021. Með bréfi, dags. 2. nóvember 2021, óskaði úrskurðarnefndin eftir greinargerð Tryggingastofnunar ríkisins ásamt gögnum málsins. Með bréfi, dags. 19. nóvember 2021, barst greinargerð Tryggingastofnunar ríkisins og var hún kynnt kæranda með bréfi úrskurðarnefndar, dagsettu sama dag. Athugasemdir bárust ekki.

II.  Sjónarmið kæranda

Í kæru kemur fram að foreldrar hafi sameiginlega forsjá og jafna umgengni með börnum þeirra, sbr. staðfestingu sýslumanns, dags. 15. desember 2016. Barnsmóðir kæranda hafi tálmað umgengni hans við börnin og hafi hann nú opnað mál hjá Sýslumanninum á B með beiðni um úrskurð um umgengni og ósk um dagsektir, verði umgengni ekki komið á hið fyrsta. Það sé skilningur kæranda að þegar foreldrar séu með jafna umgengni og móðir fái barnabætur og mæðralaun, þurfi faðir ekki að greiða meðlag þar á ofan.

Kærandi óski eftir því að umrætt meðlag verði fellt niður og að móðir taki tilboði hans um að skipta kostnaði tengdum skóla, frístund, íþróttum og tómstundum og fatnaði og búnaði þessu tengdu.

III.  Sjónarmið Tryggingastofnunar ríkisins

Í greinargerð Tryggingastofnunar ríkisins segir að kærð sé ákvörðun stofnunarinnar um að verða við beiðni barnsmóður kæranda um að hafa milligöngu um meðlag til hennar með þremur börnum þeirra frá 1. október 2021.

Tryggingastofnun hafi tilkynnt kæranda með bréfi, dags. 27. október 2021, að stofnunin hefði samþykkt að hafa milligöngu um greiðslu meðlags til barnsmóður kæranda frá 1. október 2021 með þremur börnum þeirra. Tryggingastofnun hafi borist umsókn barnsmóður kæranda, dags. 8. október 2021, um meðlagsgreiðslur frá 1. október 2021 ásamt leyfisbréfi til skilnaðar að borði og sæng, dags. 14. desember 2016, þar sem komi fram að kærandi skuli greiða meðlag með fjórum börnum sínum frá 14. desember 2016 til 18 ára aldurs.

Ákvæði 63. gr. laga um nr. 100/2007 almannatryggingar kveður á um það að hver sá sem fái úrskurð stjórnvalds um meðlag með barni sem hann hafi á framfæri sínu, eða um aðrar greiðslur samkvæmt IX. kafla barnalaga nr. 76/2003, geti snúið sér til Tryggingastofnunar ríkisins og fengið fyrirframgreiðslu meðlags eða annarra framfærsluframlaga samkvæmt úrskurðinum. Sama skuli gilda þegar lagt sé fram staðfest samkomulag um meðlagsgreiðslur og aðrar greiðslur samkvæmt IX. kafla barnalaga.

Í 4. mgr. 63. gr. laga um almannatryggingar komi fram að Tryggingastofnun sé heimilt að greiða meðlag aftur í tímann allt að 12 mánuði, talið frá byrjun þess mánaðar sem stjórnvaldsúrskurður, staðfestur samningur eða vottorð sýslumanns um að hann hafi veitt viðtöku ósk móður um öflun faðernisviðurkenningar berst stofnuninni, enda eigi þá 4. mgr. 20. gr. ekki við.

Samkvæmt 67. gr. barnalaga nr. 76/2003 sé Tryggingastofnun skylt að greiða rétthafa greiðslna samkvæmt IV. og IX. kafla, sem búsettur sé hér á landi, samkvæmt dómi, dómsátt, úrskurði sýslumanns eða samningi staðfestum af honum, þó innan þeirra marka sem lög um almannatryggingar setji.

Hlutverk Tryggingastofnunar sé að hafa milligöngu um greiðslu meðlags þegar ákvörðun hafi verið tekin með lögmætum hætti. Ef foreldri leggi fram löggilda meðlagsákvörðun beri Tryggingastofnun samkvæmt 63. gr. laga um almannatryggingar og 67. gr. barnalaga að hafa milligöngu um greiðslu meðlags, allt að 12 mánuði aftur í tímann. Lög veiti Tryggingastofnun ekki heimild til að taka önnur gögn til greina við milligöngu um greiðslu meðlags en þau sem talin séu upp í framangreindum ákvæðum.

Hjá Tryggingastofnun liggi fyrir löggild meðlagsákvörðun, þ.e. leyfisbréf til skilnaðar að borði og sæng, dags. 14. desember 2016, sem kveður á um meðlagsgreiðslur frá kæranda til barnsmóður hans. Þá liggur fyrir umsókn barnsmóður kæranda um meðlag.

Með vísan til framangreinds beri Tryggingastofnun skylda til að hafa milligöngu um meðlag samkvæmt lögformlegri meðlagsákvörðun sé þess farið á leit við stofnunina, allt að 12 mánuði aftur í tímann. Tryggingastofnun hafi engar heimildir til að virða að vettugi lögbundna skyldu sína til að greiða meðlag samkvæmt hinni lögformlegu meðlagsákvörðun. Tryggingastofnun beri því að hafa milligöngu á meðlagi til barnsmóður kæranda frá 1. október 2021 eins og óskað hafi verið eftir og hafi ekki heimild til að taka til greina það sem kærandi vísi til í kæru.

Úrskurðarnefnd velferðarmála hafi margsinnis í úrskurðum sínum staðfest þetta hlutverk Tryggingastofnunar og að ekki sé heimilt að horfa til annarra atriða við ákvörðun um milligöngu meðlagsgreiðslna. Í því samhengi skipti ekki máli hvort barn hafi jafna búsetu hjá báðum foreldrum sínum eða hvort greiðsla meðlags hafi farið fram fyrir það tímabil sem Tryggingastofnun hafi samþykkt milligöngu meðlags. Þá hafi nefndin sagt að ekki sé heimilt að setja viðbótarskilyrði í reglugerð sem takmarki lögbundinn rétt meðlagsmóttakanda til milligöngu meðlagsgreiðslna frá stofnuninni, eins og til dæmis að gefa greiðanda kost á að sýna fram á að meðlag hafi verið greitt fyrir sama tímabil. Meðal úrskurða nefndarinnar varðandi þessi atriði megi nefna úrskurði í málum nr. 312/2017, 333/2018, 17/2019, 215/2019, 407/2019, 408/2019, 59/2020 og 76/2021.

IV.  Niðurstaða

Mál þetta varðar ákvörðun Tryggingastofnunar ríkisins frá 27. október 2021 um að hafa milligöngu um meðlagreiðslur til barnsmóður kæranda frá 1. október 2021. 

Kveðið er á um greiðsluskyldu Tryggingastofnunar ríkisins í 67. gr. barnalaga nr. 76/2003. Þar segir að Tryggingastofnun ríkisins sé skylt að greiða rétthafa greiðslna samkvæmt IV. og IX. kafla, sem búsettur sé hér á landi, samkvæmt dómi, dómsátt, úrskurði sýslumanns eða samningi staðfestum af honum, þó innan þeirra marka sem lög um almannatryggingar setji.

Samkvæmt 1. mgr. 63. gr. laga nr. 100/2007 um almannatryggingar getur hver sá sem fær úrskurð um meðlag með barni, sem hann hefur á framfæri sínu, snúið sér til Tryggingastofnunar ríkisins og fengið fyrirframgreiðslu meðlags og annarra framfærsluframlaga samkvæmt úrskurðinum. Sama gildir þegar lagt er fram staðfest samkomulag um meðlagsgreiðslur og aðrar greiðslur samkvæmt IX. kafla barnalaga.

Samkvæmt framangreindu ber Tryggingastofnun ríkisins að hafa milligöngu um meðlagsgreiðslur, berist beiðni þar um frá meðlagsmóttakanda á grundvelli lögformlegrar meðlagsákvörðunar. Fyrir liggur að barnsmóðir kæranda, sem er meðlagsmóttakandi, sótti um milligöngu Tryggingastofnunar um meðlagsgreiðslur með þremur börnum þeirra með umsókn, dags. 8. október 2021. Stofnunin samþykkti umsóknina á grundvelli leyfisbréfs til skilnaðar að borði og sæng, dags. 14. desember 2016, þar sem fram kemur að kærandi skuli greiða barnsmóður sinni meðlag með fjórum börnum þeirra frá 14. desember 2016 til 18 ára aldurs.

Hlutverk Tryggingastofnunar í tengslum við meðlagsgreiðslur markast af ákvæðum viðeigandi laga. Samkvæmt 1. mgr. 63. gr. laga um almannatryggingar er stofnuninni falið að hafa milligöngu um meðlagsgreiðslur, sé þess farið á leit við stofnunina, í þeim tilvikum þar sem lögformleg meðlagsákvörðun liggur fyrir.

Kærandi byggir á því að foreldrarnir hafi sameiginlega forsjá og eigi að hafa jafna umgengni en að barnsmóðir sín tálmi umgengni hans við börnin, auk þess sem hún fái barnabætur og mæðralaun með þeim. Með vísan til 1. mgr. 63. gr. laga um almannatryggingar er það mat úrskurðarnefndar að ekki sé heimilt að synja meðlagsmóttakanda um milligöngu meðlagsgreiðslna á grundvelli framangreindrar málsástæðu þar sem fyrir liggur löggild meðlagsákvörðun sem kveður á um greiðsluskyldu kæranda.

Að öllu framangreindu virtu er það niðurstaða úrskurðarnefndar velferðarmála að staðfesta ákvörðun Tryggingastofnunar ríkisins frá 27. október 2021 um að hafa milligöngu um meðlagsgreiðslur til barnsmóður kæranda frá 1. október 2021.

Ú R S K U R Ð A R O R Ð

Ákvörðun Tryggingastofnunar ríkisins um að hafa milligöngu um meðlagsgreiðslur til barnsmóður A, frá 1. október 2021, er staðfest.

F.h. úrskurðarnefndar velferðarmála

Rakel Þorsteinsdóttir

 

 

 

 

 

 

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum