Hoppa yfir valmynd
22. júní 2017 Fjármála- og efnahagsráðuneytið

Annar fundur fjármálastöðugleikaráðs á árinu 2017

Annar fundur fjármálastöðugleikaráðs á árinu 2017 var haldinn þriðjudaginn 20. júní í fjármála- og efnahagsráðuneyti.

Á heildina litið er áhætta í fjármálakerfinu enn fremur lítil. Frá síðasta fundi fjármálastöðugleikaráðs hefur þó gætt vaxandi áhættu á nokkrum sviðum líkt og vænst var. Viðnámsþróttur heimila og fyrirtækja hefur í meginatriðum haldið áfram að aukast með batnandi efnahagsaðstæðum. Viðnámsþróttur viðskiptabankanna er einnig mikill, hvort heldur horft er til eignagæða, eiginfjár- eða lausafjárstöðu. Merki eru um að uppsveifla skulda sé hafin en útlánavöxtur telst þó enn vera hóflegur. Í vaxandi mæli hafa bankarnir aflað fjármögnunar á erlendum mörkuðum og kjörin fara batnandi. Erlend staða þjóðarbúsins er orðin jákvæð og áfram er verulegur afgangur af utanríkisviðskiptum þrátt fyrir talsverða styrkingu krónunnar. Á hinn bóginn gætir vaxandi spennu á húsnæðis- og vinnumarkaði. 

Þróun sveiflutengdrar kerfisáhættu hefur verið með svipuðu móti og búist var við á síðasta fundi fjármálastöðugleikaráðs. Með hliðsjón af greiningu kerfisáhættunefndar beinir fjármálastöðugleikaráð þeim tilmælum til Fjármálaeftirlitsins að halda sveiflujöfnunarauka óbreyttum í 1,25%, sbr. tilmæli ráðsins frá 30. september 2016. Þess má vænta að fjármálastöðugleikaráð leggi til að uppbyggingu sveiflujöfnunaraukans verði haldið áfram í takt við uppsöfnun ójafnvægis í fjármálakerfinu.

Næsti fundur fjármálastöðugleikaráðs verður 6. október 2017.

Tilmæli um sveiflujöfnunarauka

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum