Hoppa yfir valmynd
21. desember 2020 Matvælaráðuneytið

Auglýsing um tollkvóta vegna innflutnings á landbúnaðarvörum frá ríkjum Evrópusambandsins.

 

Með vísan til samnings milli Íslands og Evrópusambandsins um viðskipti með landbúnaðarvörur á grundvelli 19. gr. EES-samningsins og til reglugerðar nr. 1304/2020 um úthlutunina, er hér með auglýst eftir umsóknum um tollkvóta fyrir eftirfarandi innflutning á landbúnaðarvörum, upprunnum í ríkjum Evrópusambandsins og með upprunavottorð þaðan fyrir tímabilið 1. janúar – 30. apríl 2021:

 

Vöruliður:

Vara

Tímabil

Vörumagn

Verðtollur

Magntollur

kg

%

kr./kg

0201/0202

Kjöt af dýrum af nautgripakyni, nýtt, kælt eða fryst

01.01. - 30.04.21

232.000

0

0

0203

Svínakjöt, nýtt, kælt eða fryst

01.01. - 30.04.21

233.000

0

0

0207

Kjöt af alifuglum, nýtt, kælt eða fryst

01.01. - 30.04.21

285.000

0

0

ex0207

Kjöt af alifuglum, nýtt, kælt eða fryst, lífrænt ræktað/lausagöngu

01.01. - 30.04.21

67.000

0

0

0210

Kjöt og ætir hlutar af dýrum, saltað, í saltlegi, þurrkað eða reykt; ætt mjöl, einnig finmalað, úr kjöti eða hlutum af dýrum

01.01. - 30.04.21

3.300

0

0

ex 0406

Ostur og ystingur (**)

01.01. - 30.04.21

77.000

0

0

0406

Ostur og ystingur

01.01. - 30.04.21

127.000

0

0

1601

Pylsur og þess háttar vörur úr kjöti, hlutum af dýrum eða blóði; matvæli gerð aðallega úr þessum vörum

01.01. - 30.04.21

83.000

0

0

1602

Annað kjöt, hlutar af dýrum eða blóð, unnið eða varið skemmdum

01.01. - 30.04.21

133.000

0

0

 

(**) skráð í samræmi við reglugerð ráðsins (EB) nr. 1151/2012 um vernd landfræðilegra merkinga og uppruna landbúnaðarafurða og matvæla

 

Úthlutun er ekki framseljanleg. Vegna sérstakra aðstæðna skal að þessu sinni senda tilboð með umsókn um tollkvóta, að undanskildum vörulið ex0406, sem verður úthlutað með hlutkesti sbr. 65. gr. B. búvörulaga nr. 99/1993. Tekið verður tillit til tilboða ef það berast umsóknir um meira magn innflutnings en auglýstum tollkvóta nemur. Ef til útboðs kemur ráða tilboðin úthlutun.

 

Tollkvótum verður fyrst úthlutað til hæstbjóðanda, svo til þess er næsthæst bauð og þannig koll af kolli uns tiltækum kvóta hefur verið úthlutað og greiða bjóðendur tilboðsfjárhæðina að fullu, í samræmi við XII. kafla búvörulaga nr. 99/1993, með síðari breytingum.

Með vísan til framangreinds verður ekki óskað eftir því að þessu sinni að send verði ábyrgðaryfirlýsing eða að tilboð verði staðgreidd til þess að tilboð teljist gilt.

 

Skriflegar umsóknir auk tilboða skulu berast til atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytis, að Skúlagötu 4, 150 Reykjavík, bréflega eða á [email protected], fyrir kl. 12:00 þriðjudaginn 29. desember 2020.

 

Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, 21. desember 2020.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum