Hoppa yfir valmynd
3. desember 2014 Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið

Múrbrjótar veittir á alþjóðadegi fatlaðs fólks

Eygló Harðardóttir, félags- og húsnæðismálaráðherra, afhenti í dag verðlaunin; Múrbrjótinn, fyrir hönd Landssamtakanna Þroskahjálpar í tilefni af alþjóðlegum degi fatlaðs fólks. Verðlaunin eru veitt þeim sem hafa sýnt frumkvæði og ýtt undir nýsköpun sem styður við þátttöku fatlaðs fólks í samfélaginu.

Múrbrjótarnir sem afhentir voru í dag eru hannaðir af listamönnum á handverkstæðinu Ásgarði. Þá hlutu Embla Guðrún­ar- og Ágústs­dótt­ir og móðir henn­ar Guðrún Hjart­ar­dótt­ir fyr­ir fræðslu­er­indið: „Af hverju er barnið mitt ekki úti að éta sand?“ sem fjallar um reynslu þeirra af skólagöngu fatlaðs barns frá sjónarhóli foreldris og barnsins sjálfs. Mæðgurnar hafa flutt erindi sitt rúmlega 40 sinnum í grunnskólum, leikskólum, á þjónustumiðstöðvum Reykjavíkurborgar og víðar og náð þannig til um 1.800 manns.

Stígamót hlutu einnig Múrbrjótinn fyrir það frumkvæði að ráða til sín sérfræðing í málefnum fatlaðs fólks til að annast fræðslu og þjónustu.

Á Akureyri hlaut Birna Guðrún Bald­urs­dótt­ir Múr­brjót­inn fyrir að reka klúbb fyr­ir ung­menni á ein­hverfurófi. Klúbbur­inn tók til starfa í ársbyrjun 2013 og síðan þá hefur bæst við sambærilegur klúbb­ur fyr­ir full­orðna.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum