Hoppa yfir valmynd
10. júlí 2007 Heilbrigðisráðuneytið

Gjaldskrá vegna þjónustu hjartalækna

Heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra hefur breytt endurgreiðsluhlutfalli sjúklinga vegna þjónustu hjartalækna. Breytingin felur í sér að endurgreiðslur sjúklinga sem sækja þjónustu til hjartalækna breytast til hækkunar í samræmi við hækkun einingagreiðslna til sjálfstætt starfandi sérfræðinga. Sérfræðingar í hjartalækningum hafa um hríð starfað án samnings við heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra. Þetta þýðir að sjúklingar hafa greitt fyrir þjónustuna fullu verði en þeir sem hafa tilvísun frá heimilislækni hafa fengið endurgreidda frá Tryggingastofnun sömu fjárhæð og læknarnir hefðu fengið, væru þeir með samning.

Sjá nánar yfirlit um endurgreiðslur vegna þjónustu hjartalækna (pdf 10Kb Opnast í nýjum glugga)

 

 



Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum