Hoppa yfir valmynd
17. janúar 2014 Háskóla-٫ iðnaðar- og nýsköpunarráðuneytið

Umræðufundur um vísinda- og nýsköpunarkerfið á Íslandi

Mennta- og menningarmálaráðuneytið býður til opins umræðufundar um vísinda- og nýsköpunarkerfið á Íslandi þriðjudaginn 28. janúar 2014, kl. 14-17 í Hannesarholti, Grundarstíg 10.

Mennta- og menningarmálaráðuneytið býður til opins umræðufundar um vísinda- og nýsköpunarkerfið á Íslandi þriðjudaginn 28. janúar 2014, kl. 14-17 í Hannesarholti, Grundarstíg 10.

Nú stendur yfir mat á vísinda- og nýsköpunarkerfinu hér á landi í samstarfi við European Research Area and Innovation Committee (ERAC). Af því tilefni vill mennta- og menningarmálaráðuneytið efna til samtals við vísindamenn, stjórnendur og starfsmenn fyrirtækja, stofnana og háskóla og aðra notendur kerfisins hér á landi um styrkleika þess og veikleika.

Á vormánuðum munu þrír jafningjar, einn frá Hollandi, einn frá Írlandi og einn frá Finnlandi, koma hingað til lands til að kynna sér vísinda- og nýsköpunarkerfið á Íslandi og leggja mat á það. Til að undirbúa komu jafningjanna vinnur mennta- og menningarmálaráðuneytið, í samstarfi við Rannís, nú sjálfsmatsskýrslu sem byggir á reynslu og viðhorfum stefnumótandi aðila og notenda kerfisins. Umræðufundurinn er liður í gerð sjálfsmatsins.

  • Fjöldi þátttakenda á fundinum er takmarkaður. 
  • Vinsamlegast tilkynnið þátttöku í síðasta lagi föstudaginn 24. janúar  til [email protected].

Dagskrá

14.00     Illugi Gunnarsson, mennta- og menningarmálaráðherra flytur ávarp

14.10     Jafningjamat ERAC á vísinda- og nýsköpunarkerfinu á Íslandi
                Ásdís Jónsdóttir, sérfræðingur hjá mennta- og menningarmálaráðuneytinu

14.20     Umræður

15.05     Kaffi

15.20     Umræður

16.15     Samantekt

Fundinum lýkur klukkan 17.00

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum