Hoppa yfir valmynd
5. maí 2021 Utanríkisráðuneytið

Íslenskt fyrirtæki þátttakandi í nýrri lyfjaverksmiðju í Malaví

Frá barnadeild Nkhoma Mission Hospital í Nkhoma, ljósmynd: Birkir E. Ásgeirsson - mynd

Íslenska fyrirtækið Hananja ehf. er í samvinnu við einkaaðila, fyrirtæki og stofnanir í Malaví, Bandaríkjunum, Sviss og á Íslandi, um að setja á fót óhagnaðardrifna lyfjaverksmiðju skammt frá höfuðborg Malaví, Lilongwe. Stefnt er að því að hefja framleiðslu í verksmiðjunni á næsta ári.

Hananja efh. fékk á dögunum þriggja ára styrk, 27 milljónir íslenskra króna, úr samstarfssjóði utanríkisráðuneytisins við atvinnulíf um heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna til þess að vinna að þessu verkefni, sem nefnist Rephaiah.

„Þetta er langtíma óhagnaðardrifið verkefni með það að meginmarkmiði að hlúa að heilsu og lífi ungra barna í Malaví með framleiðslu á lífsnauðsynlegum og lífsbætandi lyfjum í formum sem henta fyrir börn yngri en fimm ára,“ segir Sveinbjörn Gizurarson prófessor og framkvæmdastjóri Hananja ehf. Hann segir dánartölur barna, yngri en fimm ára, háar í Malaví og unnt sé að bjarga stórum hluta þeirra barna með lyfjum í réttum lyfjaformum.

Styrkur samstarfssjóðsins verður nýttur með þrjú heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna að leiðarljósi, númer 5, 12 og 9. Unnið verður að uppbyggingu og styrkingu jafnréttismála, með sérstaka áherslu á eflingu kvenna í stjórnunarstöður og jafna atvinnumöguleika einstaklinga innan verkefnisins; umhverfisvænum lausnum varðandi vatn, orku og kolefnisspor fyrir lyfjaframleiðslu; ásamt styrkingu innviða lyfjafræðideildar Háskólans í Malaví með það að markmiði að skólinn geti tekið þátt í uppbyggingu Rephaiah verkefnisins.

Nánari upplýsingar um verkefnið má nálgast hjá [email protected].

Efnisorð

Heimsmarkmiðin

3. Heilsa og vellíðan
9. Nýsköpun og uppbygging
8. Góð atvinna og hagvöxtur

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum