Hoppa yfir valmynd
29. nóvember 2023 Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið

Flóttafólk frá Afganistan komið til landsins

Átján einstaklingar frá Afganistan eru nú komnir til Íslands í boði íslenskra stjórnvalda en um er að ræða aðstandendur ungra Afgana sem búa hér á landi. Fólkið kemur hingað til lands á grundvelli sérstakrar ákvörðunar  ríkisstjórnarinnar frá því í fyrra um að taka á móti fólki í viðkvæmri stöðu frá Afganistan. Sú ákvörðun var tekin vegna ástandsins í Afganistan í kjölfar valdatöku talibana. Fólkið kom til landsins í þremur hópum, frá september sl. og fram í nóvember, og eru átta börn þar á meðal.  

„Það var hjartnæmt að heyra af endurfundum fjölskyldna sem ekki höfðu sést svo árum skipti. Ungmenni fengu til dæmis loksins að hitta mæður sínar og systkini. Áhyggjur fólks af fjölskyldum sínum í Afganistan hafa skiljanlega verið þungar og óttinn mikill um það hver afdrif þeirra yrðu undir stjórn talibana,“ segir Guðmundur Ingi Guðbrandsson, félags- og vinnumarkaðsráðherra.  

Unnið var að komu fólksins í félags- og vinnumarkaðsráðuneytinu, utanríkisráðuneytinu, dómsmálaráðuneytinu, hjá Vinnumálastofnun, Útlendingastofnun og Rauða krossinum á Íslandi. Þá nutu íslensk stjórnvöld aðstoðar Alþjóðlegu fólksflutningstofnunarinnar (IOM), sem og stjórnvalda í Danmörku.  

„Ég vil þakka innilega öllum þeim sem lögðu mikið á sig við að koma fjölskyldunum til Íslands. Það var afar vandasamt, meðal annars vegna skorts á vegabréfum í Afganistan – en það tókst. Ég óska nýjum íbúum Íslands jafnframt alls hins besta,“ segir Guðmundur Ingi.  

Unnið er að því að koma seinni hluta hópsins til landsins en hann telur samtals 15 einstaklinga. Þá komu 78 manns frá Afganistan haustið 2021 í kjölfar ákvörðunar ríkisstjórnar Íslands eftir valdatöku talibana. 

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum