Hoppa yfir valmynd
26. maí 2021 Dómsmálaráðuneytið

Mál nr. 57/2021 Úrskurður 26. maí 2021

Mál nr. 57/2021                     Millinafn:       Krossá

 

Hinn 26. maí 2021 kveður mannanafnanefnd upp svohljóðandi úrskurð í máli 57/2021, en erindið barst nefndinni 11. maí.

Til þess að heimilt sé að samþykkja nýtt millinafn þurfa öll skilyrði 6. gr. laga, nr. 45/1996, um mannanöfn að vera uppfyllt. Skilyrðin eru:

  • Millinafn skal dregið af íslenskum orðstofnum eða hafa áunnið sér hefð í íslensku máli en má þó ekki hafa nefnifallsendingu.
  • Nöfn, sem aðeins hafa unnið sér hefð sem annaðhvort eiginnöfn karla eða eiginnöfn kvenna, eru ekki heimil sem millinöfn.
  • Millinafn skal ritað í samræmi við almennar ritreglur íslensks máls nema hefð sé fyrir öðrum rithætti þess.
  • Millinafn má ekki vera þannig að það geti orðið nafnbera til ama.

Auk þess má nafnið ekki vera ættarnafn í skilningi 7. gr. mannanafnalaga.

Millinafnið Krossá uppfyllir ákvæði 6. gr. laganna og er ekki ættarnafn.

 

Úrskurðarorð:

Beiðni um millinafnið Krossá er samþykkt og skal nafni fært á mannanafnaskrá.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum