Hoppa yfir valmynd
24. febrúar 2021 Dómsmálaráðuneytið

Mál nr. 13/2021 Úrskurður 24. febrúar 2021

Mál nr. 13/2021                     Aðlögun kenninafns: Kristófersson

                                            

Hinn 24. febrúar 2021 kveður mannanafnanefnd upp svohljóðandi úrskurð í máli 13/2020.

Með bréfi Þjóðskrár Íslands, dags. 20. janúar 2021, var óskað úrskurðar mannanafnanefndar um beiðni XXX og XXX um að sonur þeirra skuli vera kenndur til föður síns, Krzysztof, og nafnið jafnframt lagað að íslensku máli. Óska þau að kenninafn drengsins verði skráð í þjóðskrá Kristófersson.

Ekkert er í lögum nr. 45/1996, um mannanöfn, sem stendur í vegi fyrir því að fallist sé á ofangreinda beiðni.

 

Úrskurðarorð:

Fallist er á föðurkenninguna Kristófersson.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum