Hoppa yfir valmynd
16. maí 2019 Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið

Móttaka flóttafólks

Ásmundur Einar og Guðný Hrund Karlsdóttir, sveitastjóri Húnaþings vestra ásamt fulltrúum sveitarfélagsins. - mynd

Ásmundur Einar Daðason, félags- og barnamálaráðherra, undirritaði í dag tvo samninga við annars vegar Húnaþing vestra og hins vegar Blönduós vegna móttöku flóttafólks frá Sýrlandi.  Hópur sýrlenskra kvótaflóttamanna kom til landsins í vikunni en um er að ræða níu fjölskyldur, samtals 43 einstaklinga. Ætlunin er að um helmingur þeirra setjist að á Hvammstanga og um helmingur á Blönduósi. Fólkið er hingað komið fyrir tilstuðlan íslenskra stjórnvalda og Flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna.

Undirbúningur vegna komu fólksins hefur staðið yfir síðustu mánuði og hefur það sótt námskeið um íslenskt samfélag, réttindi og skyldur í Beirút. Námskeiðið héldu íslensk stjórnvöld í samstarfi við Alþjóðlegu fólksflutningastofnunina (IOM) og er liður í því að undirbúa fólkið undir það að flytjast til Íslands. 

Stríðsátökin í Sýrlandi hófst árið 2011 og áætlar Flóttamannastofnun Sameinuðu þjóðanna að yfir 5.6 miljón einstaklinga hafa þurft að flýja land sökum þeirra. Flest flóttafólk flýr til nágrannaríkja í leit að vernd og er áætlað að í Líbanon sé um 20-25 prósent íbúa flóttafólk. Mikið álag er á innviðum samfélagsins við slíkar aðstæður og á það sérstaklega við um mennta- og heilbrigðiskerfið. Þá er staða barna í stríðsátökum sérstaklega viðkvæm. Hópurinn sem kom til landsins í vikunni hefur dvalið Í Líbanon undanfarin ár við misjafnar aðstæður.

„Íslensk stjórnvöld hafa tekið á móti sýrlensku flóttafólki frá árinu 2015 og hefur umfangsmikil reynsla og þekking myndast hérlendis á móttöku þeirra í gegnum árin. Ég er þess fullviss að bæði á Hvammstanga og Blönduósi verði þeim vel tekið og veit að margir hafa lagt hönd á plóg til þess að gera komu þeirra sem ánægjulegasta," sagði Ásmundur Einar við undirritunina.
  •  Ásmundur Einar Daðason og Valdimar O Hermannsson, sveitastjóri Blönduósbæjar, við undirritun samningsins. - mynd

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum