Hoppa yfir valmynd
5. júlí 2022 Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið

Stofnanaskipulag umhverfis- orku- og loftslagsráðuneytisins til skoðunar

Guðlaugur Þór Þórðarson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra, ásamt ráðuneytisstjóra, skrifstofustjórum og forstöðumönnum stofnana ráðuneytisins. - mynd

Guðlaugur Þór Þórðarson umhverfis- orku- og loftslagsáðherra hefur ákveðið að taka til skoðunar stofnanaskipulag ráðuneytisins með það að markmið að efla og styrkja starfsemi stofnana umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytisins. Ráðherra, kynnti á ríkisstjórnarfundi í morgun vinnu sem nú er hafin við að  greina umbótatækifæri og áskoranir sem felast í núverandi stofnanakerfi ráðuneytisins.

Stofnanir umhverfis- orku- og loftslagráðuneytisins eru 13 talsins. Hjá þeim starfa 600 starfsmenn á um 40 starfsstöðvum víða um land og eru  61% starfanna  á höfuðborgarsvæðinu.  Flestar stofnananna eru svo nefndar A hluta stofnanir þar sem forstöðumaður stýrir starfi stofnunarinnar, en þrjár stofnanir hafa stjórn og eru það Úrvinnslusjóður, Íslenskar orkurannsóknir (ÍSOR) og Vatnajökulsþjóðgarður, auk Þingvallanefndar sem fer með yfirstjórn Þingvallaþjóðgarðs. 

Við greiningarvinnuna verður lögð áhersla á gott samstarfi við stjórnendur, auk þess sem leitað verður eftir sjónarmiðum og hugmyndum starfsmanna. Einnig verður haft náið samstarf við önnur ráðuneyti sem vinna að sambærilegum verkefnum.

„Verkefni stofnana umhverfis- orku- og loftslagsráðuneytisins eru afar mikilvæg og tryggja þarf að stofnanir geti sinnt kjarnahlutverki sínu samhliða því að takast á við margvíslegar áskoranir,“ segir Guðlaugur Þór Þórðarson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra. „Með því að stækka skipulagseiningarnar er hægt að efla, styrkja og samræma betur starf stofnana ráðuneytisins og þannig auka slagkraft þeirra, auk þess sem ýmis tækifæri liggja í auknu samstarfi opinberra aðila við að byggja upp sameiginlegar starfsstöðvar. Þá þarf einnig að horfa til þess að opinber störf séu ekki staðbundin, nema eðli starfsins krefjist þess sérstaklega og þannig er hægt að  styðja við byggðaþróun og valfrelsi í búsetu.“

Gert er ráð fyrir að fyrir niðurstöður greiningarinnar liggi fyrir í lok þessa árs.

Þær stofnanir sem heyra undir ráðuneytið eru: Íslenskar orkurannsóknir (ÍSOR), Landmælingar Íslands, Minjastofnun, Náttúrufræðistofnun Íslands, Náttúrurannsóknarstöðin við Mývatn, Orkustofnun, Stofnun Vilhjálms Stefánssonar, Umhverfisstofnun, Úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála, Úrvinnslusjóður, Vatnajökulsþjóðgarður, Veðurstofa Íslands, Þjóðgarðurinn á Þingvöllum.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum