Hoppa yfir valmynd
4. október 2000 Utanríkisráðuneytið

Nr. 072, 4. október 2000, Opnun ljósmyndasýningar utanríkisráðuneytisins á Hornafirði

FRÉTTATILKYNNING

frá utanríkisráðuneytinu

________




Nr. 072


Halldór Ásgrímsson, utanríkisráðherra, opnar ljósmyndasýninguna "Yfirlit yfir þróun íslenskrar utanríkisþjónustu" í Pakkhúsinu á Hornafirði í dag, miðvikudaginn 4. október. Hann heldur jafnframt fyrirlestur um utanríkisþjónustuna og utanríkismál.

Utanríkisráðherra tekur þátt í kynningu á starfsemi Viðskiptaþjónustu utanríkisráðuneytisins á meðal fyrirtækja á Hornafirði og nágrenni í dag, í samvinnu við Þróunarstofu Austurlands.

Ljósmyndasýningin er sett upp í tilefni af sextíu ára afmæli utanríkisþjónustunnar. Hún var fyrst opnuð í Þjóðarbókhlöðunni á afmælisdegi utanríkisþjónustunnar 10. apríl s.l. og hefur síðan verið sett upp á Akureyri, Ísafirði og á Egilsstöðum. Sýningin er opin virka daga kl. 16-18 og um helgar kl. 13-18. Hún stendur til 22. október næstkomandi.




Utanríkisráðuneytið
Reykjavík, 4. október 2000.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum