Hoppa yfir valmynd
14. janúar 2011 Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið, Heilbrigðisráðuneytið

Auglýsing um Framkvæmdasjóð aldraðra

Samstarfsnefnd um málefni aldraðra auglýsir eftir umsóknum um framlög úr Framkvæmdasjóði aldraðra fyrir árið 2011. Umsóknarfrestur er til 12. febrúar 2011. Hlutverk Framkvæmdasjóðs aldraðra er að stuðla að uppbyggingu og efla öldrunarþjónustu um allt land.

Sjóðurinn starfar samkvæmt lögum um málefni aldraðra nr. 125/1999 og reglugerð nr. 1/2011. Samstarfsnefnd um málefni aldraðra fer með stjórn sjóðsins og gerir tillögur til velferðarráðherra um úthlutun úr honum.

Heimilt er að veita framlag úr Framkvæmdasjóði aldraðra til eftirtalinna verkefna.

  1. Bygginga þjónustumiðstöðva aldraðra og dagvista.
  2. Bygginga dvalarheimila og sambýla.
  3. Bygginga hjúkrunarheimila eða hjúkrunarrýma á öldrunarstofnunum.
  4. Til nauðsynlegra endurbóta og breytinga á húsnæði stofnana sbr. lið 1-3.
  5. Annarra verkefna sem stuðla að uppbyggingu öldrunarþjónustu.

Við ákvörðun um úthlutun verður höfð hliðsjón af stefnu velferðarráðherra í öldrunarmálum einkum varðandi fækkun fjölbýla á hjúkrunarheimilum. Skilyrði fyrir framlögum til byggingaframkvæmda, nauðsynlegra endurbóta og breytinga  á húsnæði er að framkvæmdir taki mið af viðmiðum velferðarráðuneytis um skipulag hjúkrunarheimila.

Umsóknarfrestur er til 12. febrúar 2011. Umsóknum skal skila til velferðarráðuneytisins, Hafnarhúsinu v/Tryggvagötu, 150 Reykjavík, á eyðublöðum sem þar fást. Eyðublöðin má einnig nálgast á vef ráðuneytisins.

 

 

 

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum