Hoppa yfir valmynd
27. október 2021 Dómsmálaráðuneytið

Nr. 522/2021 Úrskurður

KÆRUNEFND ÚTLENDINGAMÁLA

 

Þann 27. október 2021 er kveðinn upp svohljóðandi

úrskurður nr. 522/2021

í stjórnsýslumáli nr. KNU21090082

 

Beiðni [...] um endurupptöku

 

I.       Málsatvik

Þann 4. mars 2021 staðfesti kærunefnd útlendingamála ákvörðun Útlendingastofnunar, dags. 20. nóvember 2020 um að taka umsókn [...], fd. [...], ríkisborgara Palestínu (hér eftir kærandi), um alþjóðlega vernd á Íslandi ekki til efnismeðferðar og endursenda hann til Grikklands. Niðurstaða kærunefndar var birt kæranda þann 8. mars 2021.

Þann 22. september 2021 barst kærunefnd beiðni kæranda um endurupptöku. Dagana 11. og 13. október 2021 bárust upplýsingar frá stoðdeild ríkislögreglustjóra og Útlendingastofnun um málsmeðferð í máli kæranda. Frekari upplýsingar bárust frá Útlendingastofnun þann 18. október 2021.

Beiðni kæranda um endurupptöku máls hans byggir á 24. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993.

II.        Málsástæður og rök kæranda

Kærandi byggir beiðni um endurupptöku á því að þar sem 12 mánuðir séu nú liðnir frá umsókn hans og tafir á meðferð málsins séu ekki á hans ábyrgð skuli taka umsókn hans um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar, sbr. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga nr. 80/2016. Með vísan til framangreinds er gerð sú krafa að mál hans verði endurupptekið og Útlendingastofnun verði gert að taka umsókn hans um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar.

III.      Niðurstaða kærunefndar útlendingamála

Samkvæmt 24. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993 á aðili máls rétt á því að mál sé tekið upp á ný ef ákvörðun hefur byggst á ófullnægjandi eða röngum upplýsingum um málsatvik eða íþyngjandi ákvörðun um boð eða bann hefur byggst á atvikum sem breyst hafa verulega frá því að ákvörðun var tekin.

Í 1. mgr. 40. gr. laga nr. 80/2016 um útlendinga kemur fram að flóttamaður skv. 37. gr. laganna, sem er hér á landi eða kemur hér að landi, hafi samkvæmt umsókn rétt á að fá hér alþjóðlega vernd. Stjórnvöldum sé þó heimilt, á grundvelli a-, b- og c-liðar 1. mgr. 36. gr. laganna, að taka umsókn ekki til efnismeðferðar við þær aðstæður sem tilgreindar séu í umræddum stafliðum.

Í 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga kemur fram að ef svo standi á sem greini í 1. mgr. skuli þó taka umsókn um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar ef útlendingurinn hefur slík sérstök tengsl við landið að nærtækast sé að hann fái hér vernd eða ef sérstakar ástæður mæli annars með því. Ef meira en 12 mánuðir hafa liðið frá því að umsókn um alþjóðlega vernd barst fyrst íslenskum stjórnvöldum og tafir á afgreiðslu hennar séu ekki á ábyrgð umsækjanda sjálfs skuli taka hana til efnismeðferðar.

Af orðalagi 2. málsl. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga leiðir að umrætt 12 mánaða tímabil hefst þegar umsækjandi leggur fyrst fram umsókn um alþjóðlega vernd hjá stjórnvöldum. Þá hefur í úrskurðum kærunefndar verið lagt til grundvallar að tímabilinu ljúki þegar endanleg niðurstaða stjórnvalda er framkvæmd með flutningi umsækjanda til viðtökuríkis eða þegar kærandi fer úr landi sjálfviljugur eftir að ákvörðun í máli hans hefur verið tekin.

Kærunefnd telur að túlka beri 2. málsl. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga á þann hátt að þótt 12 mánaða fresturinn sé liðinn verði umsókn ekki tekin til efnismeðferðar af þeim sökum ef tafir á málsmeðferð eða flutningi verði fyrst og fremst raktar til athafna eða athafnaleysis umsækjanda sem hann ber sjálfur ábyrgð á, nema þær tafir hafi verið óverulegar og ljóst sé að hægt hefði verið að flytja kæranda áður en 12 mánaða fresturinn var liðinn.

Kærandi sótti um alþjóðlega vernd á Íslandi þann 8. september 2020 og rann því umræddur 12 mánaða frestur út á miðnætti þann 8. september 2021. Kemur því til skoðunar hvort tafir á afgreiðslu umsóknar kæranda séu á ábyrgð hans sjálfs, sbr. 2. málsl. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.

Í upplýsingum sem kærunefnd bárust frá Útlendingastofnun, dags. 11. október 2021, varðandi fyrirspurn um tafir á málsmeðferð og flutning kæranda, kemur fram að Útlendingastofnun líti svo á að kærandi hafi ekki tafið mál sitt á meðan málið var til meðferðar hjá stofnuninni.

Í upplýsingum sem bárust frá stoðdeild ríkislögreglustjóra, dags. 13. október 2021, kemur fram að verkbeiðni hafi borist stoðdeild þann 16. mars 2021. Þann 31. mars 2021 hafi verið hringt í kæranda og hafi hann óskað eftir túlki. Hann hafi verið boðaður í húsnæði Útlendingastofnunar þann 6. apríl 2021 en ekki mætt þann dag. Þann 27. apríl 2021 hafi verið haft samband við kæranda en hann hafi ekki svarað. Þá hafi verið farið heim til kæranda ásamt túlki þann 28. apríl 2021. Kærandi hafi greint frá því að hann væri með kvíða og mikla fælni gagnvart öðru fólki og að hann vildi ekki fara til Grikklands heldur til heimaríkis, Palestínu. Þá hafi hann verið spurður hvort hann vildi að IOM (International Organization for Migration) aðstoði hann og hafi kærandi játað því. Kæranda hafi verið tjáð að IOM yrði í sambandi við hann. Í kjölfarið hafi verið haft samband við starfsmann hjá IOM sem hafi tekið við málinu og þar með hafi aðkoma stoðdeildar að málinu lokið.

Kærunefnd sendi fyrirspurn til Útlendingastofnunar þann 13. október 2021 og óskaði eftir upplýsingum um aðkomu IOM að máli kæranda. Í svari Útlendingastofnunar, dags. 18. október 2021, kemur m.a. fram að misskilningur virðist hafa verið uppi milli þeirra sem annist IOM og stoðdeildar. Kærandi hafi verið á framkvæmdalista stoðdeildar og ekki hafi verið lögð fram umsókn um aðstoð við sjálfviljuga heimför. Ljóst sé að þörf sé á að skerpa á ferlum í kringum þessi samskipti en ekki virðist hafa verið ráðist í framkvæmd flutnings í máli kæranda.

Samkvæmt framangreindum upplýsingum frá stoðdeild ríkislögreglustjóra og Útlendingastofnun ber kærandi ekki ábyrgð á þeim töfum sem hafa orðið á málsmeðferð og flutningi hans. Að auki hefur kærunefnd farið yfir málsmeðferð í máli kæranda og er að mati kærunefndar ekkert sem bendir til þess að kærandi verði talinn bera ábyrgð á töfum á afgreiðslu umsóknar sinnar, sbr. 2. málsl. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.

Af framangreindu leiðir að skilyrði 2. málsl. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga er uppfyllt og ber að taka umsókn kæranda um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar. Lagt er fyrir Útlendingastofnun að taka umsókn kæranda um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar á grundvelli 2. málsl. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.

Úrskurðarorð:

Fallist er á beiðni kæranda um endurupptöku á máli hans.

Ákvörðun Útlendingastofnunar er felld úr gildi og lagt er fyrir Útlendingastofnun að taka mál kæranda til efnismeðferðar.

 

The appellant‘s request for re-examination of the case is granted.

The decision of the Directorate of Immigration is vacated. The Directorate shall examine the merits of the appellant‘s application for international protection in Iceland.

 

Tómas Hrafn Sveinsson

 

 

Sindri M. Stephensen                                                Þorbjörg I. Jónsdóttir

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum