Hoppa yfir valmynd
10. júlí 2009 Fjármála- og efnahagsráðuneytið

Mál nr. 19/2009. Ákvörðun kærunefndar útboðsmála:

Ákvörðun kærunefndar útboðsmála 17. júní 2009

í máli nr. 19/2009:

Síminn hf.

gegn

Ríkiskaupum

          

Með bréfi, dags. 4. júní 2009, kærði Síminn hf. ákvörðun kærða, Ríkiskaupa, um framlengingu á gildistíma tilboða í útboði nr. 14644 „Gagnaflutningsþjónusta, fastlínuþjónusta- og farsímaþjónusta fyrir Landspítala“. Í kæru voru kröfur kæranda orðaðar með eftirfarandi hætti:

„Síminn gerir eftirfarandi kröfur:

  1. Að kærunefndin stöðvi innkaupaferli „útboðsins 14644, gagnaflutningsþjónusta, fastlínu- og farsímaþjónusta fyrir Landspítala (þjónustuflokkur 2)“ þar til endanlega hefur verið skorið úr kæru þessari.
  2. Að felld verði úr gildi ákvörðun um að heimila framlengingu gildistíma tilboða vegna „útboðs 14644, gagnaflutningsþjónusta, fastlínu- og farsímaþjónusta fyrir Landspítala (þjónustuflokkur 2)“ lengur en til og með 25. maí 2009.
  3. Að Símanum verði dæmdur málskostnaður úr hendi Ríkiskaupa, samkvæmt mati nefndarinnar, við að hafa kæruna uppi.“

 

Kærða var kynnt kæran og gefinn kostur á að gera athugasemdir við hana og koma að frekari rökstuðningi fyrir ákvörðun sinni. Sérstaklega var óskað eftir athugasemdum kærða vegna kröfu kæranda um stöðvun á innkaupaferli. Með bréfi, dags. 11. júní 2009, krafðist kærði þess að kröfum kæranda yrði hafnað.

 

Í þessum hluta málsins tekur kærunefnd útboðsmála til skoðunar hvort rétt þyki að stöðva innkaupaferli.Endanlega verður leyst úr öðrum kröfum kærunnar síðar.

 

I.

Í janúar 2009 auglýsti kærði útboð nr. 14644 „Gagnaflutningsþjónusta, fastlínuþjónusta- og farsímaþjónusta fyrir Landspítala“. Í útboðslýsingu sagði m.a. í kafla 1.1.1. að opnunartími tilboða væri 18. mars 2009 og að tilboð skyldu gilda í 8 vikur eftir opnun þeirra.

 

            Kærandi var einn bjóðenda í útboðinu. Með tölvupósti, dags. 5. maí 2009, óskaði kærði eftir því við bjóðendur að tilboðin giltu áfram til og með 22. júlí 2009. Með bréfi, dags. 7. maí 2009, skoraði kærandi á kærða að ganga þegar til samninga við kæranda, fyrir 13. maí 2009. Með bréfi, dags. 12. maí, ítrekaði kærði ósk um framlengingu á gildistíma tilboðs kæranda. Með bréfi, dags. 13. maí 2009, féllst kærandi á að framlengja gildistíma tilboðs síns til og með 25. maí 2009 og krafðist þess að gengið yrði til samninga innan þess tíma. Með bréfi, dags. 25. maí 2009, sagðist kærandi líta svo á að kærða væri þegar í stað skylt að ganga til samninga.

 

II.

Kærandi telur að tilgangurinn með framlengingu tilboða sé að tryggja að bjóðandinn Og fjarskipti ehf. geti hugsanlega síðar uppfyllt áskilnað útboðsskilmála um fjárhagslega stöðu. Kærandi segir að kærða sé óheimilt að heimila framlengingu gildistíma tilboða, sem ella væru ógild, í þeim tilgangi að ná samningi við tiltekinn bjóðanda. Kærandi telur að með þessu sé brotið gegn jafnræðisreglu útboðsréttar, sbr. 14. gr. laga nr. 84/2007, um opinber innkaup.

 

III.

Kærði segir að óskað hafi verið eftir framlengingu á gildistíma tilboða m.a. vegna þess að lengri tíma hafði tekið að fara yfir tilboðin en gert hafði verið ráð fyrir og að skoða þyrfti betur hvort lægstbjóðandi Og fjarskipti ehf. uppfyllti hæfiskröfur útboðsins, þ.m.t. skilyrði um fjárhagslega stöðu bjóðenda.

            Kærði telur að kærufrestur sé liðinn þar sem beiðni um framlengingu tilboða hafi komið fram 5. maí 2009. Þá telur kærði að kærandi geri kröfu um að kærunefnd útboðsmála taki nýja ákvörðun en það sé nefndinni ekki heimilt.

            Kærði segir að samkvæmt almennum reglum útboðsréttar sé kærða heimilt að óska eftir framlengingu á gildistíma tilboða og telur m.a. að gert sé ráð fyrir því í 74. gr. laga nr. 84/2007, um opinber innkaup. Þá sé hvergi bannað að óska eftir því við bjóðendur að þeir framlengi gildistíma tilboða sinna.

 

IV.

Samkvæmt 1. mgr. 94. gr. laga nr. 84/2007, um opinber innkaup, skal kæra borin skriflega undir kærunefnd útboðsmála innan fjögurra vikna frá því að kærandi vissi eða mátti vita um þá ákvörðun, athöfn eða athafnaleysi sem hann telur brjóta gegn réttindum sínum. Með bréfi dags. 5. maí 2009 óskaði kærandi eftir framlengingu gildistíma tilboða. Með bréfi, dags. 13. maí 2009, féllst kærandi á að framlengja gildistíma tilboðs síns til og með 25. maí 2009. Þegar kæranda varð ljóst að kærði hefði ekki tekið tilboði í hinum kærðu innkaupum þrátt fyrir að gildistími tilboðs kæranda væri liðinn mátti kæranda fyrst vera ljós sú ákvörðun, athöfn eða athafnaleysi sem hann telur brjóta gegn réttindum sínum. Upphaf kærufrests miðast þannig við 26. maí 2009 og kæra þessi er borin undir nefndina innan frestsins.

Með útboði leitar kaupandi skriflegra, bindandi tilboða í verk, vöru eða þjónustu. Tilboðanna er aflað frá fleiri en einum aðila, samkvæmt sömu upplýsingum og innan sama frests. Mikilvægt er að allir bjóðendur geri tilboð sín á grundvelli sömu forsendna. Það er því meginregla útboðsréttar að skilmálum útboðs verður ekki breytt í meginatriðum eftir að bjóðendur hafa skilað inn tilboðum enda raskar það jafnræði milli bjóðenda. Mögulega má gera undantekningar frá þessu ef allir þátttakendur útboðsins samþykkja eða ef málefnalegar ástæður réttlæta breytinguna.

Meðal þeirra grundvallaratriða sem taka þarf fram í útboðsgögnum er gildistími tilboða, sbr. g-lið 1. mgr. 38. gr. laga nr. 84/2007, um opinber innkaup. Bjóðendur í hinu kærða útboði gerðu allir tilboð sín á grundvelli sömu útboðsskilmála og meðal þeirra forsendna sem tilboðin byggðu á er gildistími þeirra.

            Í hinu kærða útboði liggur ekki fyrir samþykki allra þátttakenda fyrir framlengingu tilboða lengur en til 25. maí 2009. Þá fær kærunefnd útboðsmála ekki séð að málefnalegar ástæður réttlæti að framlengja gildistíma tilboða. Af framangreindum ástæðum telur kærunefnd útboðsmála verulegar líkur á því að kærði brjóti gegn lögum nr. 84/2007 með því að framlengja innkaupaferli þrátt fyrir að gildistími tilboða sé liðinn. Kærunefnd útboðsmála telur því að skilyrði 1. mgr. 96. gr. laga nr. 84/2007 sé fullnægt til að stöðva innkaupaferli í útboði nr. 14644 „Gagnaflutningsþjónusta, fastlínuþjónusta- og farsímaþjónusta fyrir Landspítala“.

 

Ákvörðunarorð:

Innkaupaferli útboðs nr. 14644 „Gagnaflutningsþjónusta, fastlínuþjónusta- og farsímaþjónusta fyrir Landspítala“, er stöðvað.

 

                                                       Reykjavík, 17. júní 2009.

 

                                                       Páll Sigurðsson

                                                       Sigfús Jónsson

                                                       Stanley Pálsson

 

 

 

Rétt endurrit staðfestir,

Reykjavík,           . júní 2009.



Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum