Hoppa yfir valmynd
11. nóvember 2009 Dómsmálaráðuneytið

Vinnuhópur kannar heimildir til að taka upp tímabundið vegabréfaeftirlit og aðrar aðgerðir

Ragna Árnadóttir dómsmála- og mannréttindaráðherra hefur sett á fót vinnuhóp til að kanna hvaða möguleikar séu fyrir hendi innan gildandi laga og alþjóðlegs samstarfs til að efla eftirlit með útlendingum og tryggja að verið sé að nýta þær heimildir sem til staðar eru til að uppræta skipulagða glæpastarfsemi hér á landi.

Ragna Árnadóttir dómsmála- og mannréttindaráðherra hefur sett á fót vinnuhóp til að kanna hvaða möguleikar séu fyrir hendi innan gildandi laga og alþjóðlegs samstarfs til að efla eftirlit með útlendingum og tryggja að verið sé að nýta þær heimildir sem til staðar eru til þess að uppræta skipulagða glæpastarfsemi hér á landi. Þá er bæði átt við þá útlendinga sem njóta réttar um frjálsa för samkvæmt samningnum um Evrópska efnahagssvæðið og þá sem ekki njóta þess réttar. Meðal annars verður skoðað hvort unnt sé að taka upp tímabundið vegabréfaeftirlit eða ókerfisbundið eftirlit bæði á landamærum og innan þeirra og er hópnum falið að koma með tillögur um úrbætur.

Í vinnuhópnum eiga sæti Sigríður Björk Guðjónsdóttir, lögreglustjóri á Suðurnesjum, sem jafnframt er formaður hans, Guðbrandur Guðbrandsson, lögreglufulltrúi hjá ríkislögreglustjóra, Þorsteinn Gunnarsson, forstöðumaður hjá Útlendingastofnun, Jóhann Karl Þórisson, aðalvarðstjóri hjá lögreglustjóranum á höfuðborgarsvæðinu og Jón Pétur Jónsson, aðstoðaryfirlögregluþjónn hjá lögreglustjóranum á Suðurnesjum.



Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum