Hoppa yfir valmynd
12. mars 2021 Utanríkisráðuneytið

Ný herferð um sanngjarna dreifingu bóluefna

Ljósmynd © UNICEF/Francis Kokoroko - mynd

Sameinuðu þjóðirnar kynntu í gær nýja alþjóðlega herferð „Only Together“ (Einungis með einingu), sem hefur það markmið að tryggja sanngjarnan aðgang að bóluefnum gegn COVID-19 um heim allan. Herferðin undirstrikar þörfina fyrir alþjóðlega samstöðu um jafnan aðgang allra að bóluefnum en beinist í upphafi að heilbrigðisstarfsfólki og þeim sem stendur mest ógn af sjúkdómnum.

„Kórónuveiran hefur lagt að velli rúmlega 2,5 milljónir manna og skilið milljónir eftir með langvarandi heilsubrest,“ sagði Antonio Guterres, aðalframkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna þegar herferðin var kynnt. Amina J. Mohammed, aðstoðar framkvæmdastjóri samtakanna sagði við sama tækifæri að undangengið ár „höfum við öll misst af því að gera það sem við elskum að gera með öðrum – borða, knúsa og fara í skóla og vinnu,“ auk þess sem Amina nefndi að fjölmargir hafi misst ástvin eða lífsviðurværi sitt.

Umfangsmesta dreifing bóluefna í sögunni stendur nú sem hæst og milljónum skammta er dreift víðs vegar um veröldina, þar á meðal til fátækustu ríkja heims, fyrir tilstuðlan COVAX-samstarfsins. Í frétt frá Sameinuðu þjóðunum segir að COVID-19 bóluefnin komi í veg fyrir dauðsföll, afstýri því að ný afbrigði komi fram, endurveki hagkerfi og feli í sér bestu vonina um að benda enda á heimfaraldurinn.

Að mati Guterres getur ekkert ríki sigrast á COVID-19 í einangrun. Hann hvetur ríkisstjórnir og fyrirtæki til þess að deila skömmtum og tækni til að auka framboð og hraða dreifingu.

Efnisorð

Heimsmarkmiðin

3. Heilsa og vellíðan
8. Góð atvinna og hagvöxtur
17. Samvinna um markmiðin

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum