Hoppa yfir valmynd
9. maí 2016 Utanríkisráðuneytið

Aukið samstarf milli Íslands og Grænlands

Lilja Alfreðsdóttir utanríkisráðherra og Vittus Qujaukitsoq, utanríkisráðherra Grænlands, voru sammála um að efla enn samstarf landanna, á símafundi, sem þau áttu 6. maí sl. Ráðherrarnir ræddu um samstarfið á grundvelli viljayfirlýsingar landanna frá árinu 2013, en í henni er kveðið á um aukið samstarf á sviðum sjávarútvegs, heilbrigðismála, ferðamála, viðskipta og heilbrigðisreglna við innflutning. Þau samþykktu að koma á fót vinnuhópi skipuðum sérfræðingum landanna á sviði flugmála til að kanna möguleika á að uppfæra loftferðasamning landanna sem og á nánara samstarfi í því skyni að tryggja aukið öryggi í flugi og auka samvinnu flugvalla- og tollyfirvalda.

Á fundinum upplýsti Lilja einnig um að íslensk stjórnvöld hefðu að undanförnu skoðað fyrirkomulag varðandi flutning grænlenskra ferðamanna á kjötvörum vegna áframhaldandi ferðalaga til annarra landa. Þess væri að vænta að leiðbeiningar yrðu gefnar út á næstunni. Jafnframt samþykktu ráðherrarnir að gefa út bækling með leiðbeiningum til grænlenskra ferðamanna um þær reglur sem gilda hér á landi um innflutning ferðamanna á matvælum.

Að lokum staðfestu ráðherrarnir gagnkvæman vilja til að efla enn frekar samstarf milli landanna, sem meðal annars getur falist í því að miðla sérfræðiþekkingu milli landanna. Löndin tvö eiga sameiginlegra hagsmuna að gæta á norðurslóðum og náin samvinna um málefni norðurslóða er til þess fallin að styrkja stöðu beggja landa. Jafnframt má telja að aukin viðskipti milli landanna yrðu báðum ríkjum hagfelld.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum