Hoppa yfir valmynd
16. júlí 2020 Dómsmálaráðuneytið

Nr. 245/2020 Úrskurður

KÆRUNEFND ÚTLENDINGAMÁLA

Þann 16. júlí 2020 er kveðinn upp svohljóðandi

úrskurður nr. 245/2020

í stjórnsýslumáli nr. KNU20060012

Kæra [...]

á ákvörðun

Útlendingastofnunar

 

I. Kröfur, kærufrestir og kæruheimild

Þann 9. júní 2020 kærði [...], kt. [...], ríkisborgari [...] (hér eftir nefndur kærandi), ákvörðun Útlendingastofnunar, dags. 25. maí 2020, um að synja honum um ótímabundið dvalarleyfi.

Kærandi krefst þess að hin kærða ákvörðun verði felld úr gildi og lagt verði fyrir Útlendingastofnun að taka málið til nýrrar meðferðar.

Fyrrgreind ákvörðun er kærð á grundvelli 7. gr. laga um útlendinga nr. 80/2016 og barst kæran fyrir lok kærufrests.

II. Málsatvik og málsmeðferð

Kærandi fékk útgefið dvalarleyfi af mannúðarástæðum þann 14. júlí 2016 og var leyfið endurnýjað nokkrum sinnum, síðast með gildistíma til 4. september 2021. Þann 5. mars 2020 sótti kærandi um ótímabundið dvalarleyfi. Með ákvörðun Útlendingastofnunar, dags. 25. maí 2020, var umsókninni synjað. Kærandi kærði ákvörðunina til kærunefndar útlendingamála þann 9. júní sl. Greinargerð kæranda barst kærunefnd þann 24. júní sl. ásamt fylgigögnum.

III. Ákvörðun Útlendingastofnunar

Í ákvörðun Útlendingastofnunar voru skilyrði fyrir útgáfu ótímabundins dvalarleyfis rakin, sbr. 58. gr. laga um útlendinga. Meðal skilyrða væri að útlendingur ætti ekki ólokið mál í refsivörslukerfinu þar sem hann væri grunaður eða sakaður um refsiverða háttsemi, sbr. e-lið 1. mgr. 58. gr. Fram kom að samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu frá 20. maí 2020 væri kærandi með ólokið mál í refsivörslukerfinu. Þar sem kærandi uppfyllti ekki fyrrnefnt skilyrði e-liðar 1. mgr. 58. gr. laga um útlendinga var umsókn hans um ótímabundið dvalarleyfi synjað.

IV. Málsástæður og rök kæranda

Í greinargerð vísar kærandi til þess hann hafi gengist við sáttarboði lögreglustjórans á Suðurnesjum þann 20. maí sl. Því uppfylli hann skilyrði e-liðar 1. mgr. 58. gr. laga um útlendinga.

V. Niðurstaða kærunefndar útlendingamála

Í 58. gr. laga um útlendinga er fjallað um ótímabundið dvalarleyfi. Samkvæmt 1. mgr. 58. gr. er heimilt að veita útlendingi ótímabundið dvalarleyfi hafi hann dvalist hér á landi samfellt síðustu fjögur ár samkvæmt dvalarleyfi sem getur verið grundvöllur ótímabundins dvalarleyfis. Eins og að framan greinir hefur kærandi dvalið hér á landi samkvæmt dvalarleyfi sem getur verið grundvöllur ótímabundins leyfis síðan 14. júlí 2016.

Frekari skilyrði fyrir veitingu ótímabundins dvalarleyfis eru m.a. tilgreind í stafliðum a-e í 1. mgr. 58 gr. laga um útlendinga. Samkvæmt e-lið er það skilyrði að útlendingur eigi ekki ólokið máli í refsivörslukerfinu þar sem hann er grunaður eða sakaður um refsiverða háttsemi.

Samkvæmt upplýsingum sem kærunefnd aflaði frá lögreglustjóranum á höfuðborgarsvæðinu, dags. 29. júní 2020, á kærandi ekki lengur ólokið mál í refsivörslukerfinu. Þá hefur kærandi lagt fram sektargerð frá lögreglustjóranum á Suðurnesjum, dags. 20. maí sl. þar sem fram kemur að kærandi gekkst við sáttarboði. Er því ljóst að e-liður 1. mgr. 58. gr. laga um útlendinga stendur ekki í vegi fyrir að kæranda verði veitt ótímabundið dvalarleyfi. Í hinni kærðu ákvörðun var ekki tekin afstaða til annarra skilyrða 58. gr. laganna. Með vísan til framangreinds verður ákvörðun Útlendingastofnunar því felld úr gildi og lagt fyrir stofnunina að taka umsókn kæranda til nýrrar meðferðar.

 

Úrskurðarorð

Ákvörðun Útlendingastofnunar er felld úr gildi. Lagt er fyrir Útlendingastofnun að taka mál kæranda til nýrrar meðferðar.

The decision of the Directorate of Immigration is vacated. The Directorate is instructed to re-examine the appellant’s case.

 

Jóna Aðalheiður Pálmadóttir

Gunnar Páll Baldvinsson                                                                  Daníel Isebarn Ágústsson

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum