Hoppa yfir valmynd
17. nóvember 2021 Utanríkisráðuneytið

Hundruð flóttamanna bjargað á Miðjarðarhafi

Ljósmyndir: Rauði krossinn - mynd

Rauði krossinn á Íslandi hefur ákveðið að styðja mannúðar- og lífsbjargandi verkefni alþjóða Rauða krossins fyrir flóttamenn á landi og sjó við Miðjarðarhaf með fjárframlagi og mannafla. Björgunarskipið Ocean Viking, sem alþjóða Rauði krossinn og samtökin SOS Mediterranee halda úti, er hluti af þeirri mannúðaraðstoð sem veitt er flóttafólki við Miðjarðarhaf. Um borð í skipinu eru læknar og hjúkrunarfólk. Í bakvarðarsveit björgunarskipsins er Þórir Guðmundsson. Hann starfar með upplýsingateymi svæðaskrifstofu Rauða krossins í Evrópu sem hefur aðsetur í Búdapest.

Áhöfn björgunarskipsins hefur þegar bjargað hundruð kvenna, karla og barna sem freista þess að komast yfir Miðjarðarhafið á illa búnum tré- eða gúmmíbátum. Í frétt Rauða krossins á Íslandi segir að aðstæður fólks í þessum bátskænum séu oftar en ekki mjög erfiðar. „Fólk hefur verið á reki í marga daga í yfirfullum bátum þar sem matur og drykkjarvatn er af skornum skammti. Í hópi flóttamanna eru jafnvel ung börn ein á ferð án foreldra eða fylgdarmanna,“ segir í fréttinni.

Fyrr í mánuðinum aðstoðaði Ocean Viking annað björgunarskip, sem var með 800 manns um borð, með því að útvega matvæli og og önnur hjálpargögn. „Það var gott dæmi um samstarf í hjálparstarfi – og reyndar tók flóttafólkið í Ocean Viking fullan þátt í að ferja hjálpargögnin yfir til fólksins í hinu skipinu.“

Ocean Viking bjargaði alls 314 konum, körlum og börnum í yfirstandandi leiðangri en skipið er nú í höfn í Augusta á Sikiley. Þar komst fólkið loks í land á mánudag, sumir eftir tíu daga um borð í skipinu. Síðustu dagana var mikill öldugangur og grenjandi rigning þannig að flóttafólkið var orðið mjög hrakið þegar skipið lagði loks að bryggju. Þar tók ítalski Rauði krossinn á móti þeim.

Sjá nánar í frétt á heimasíðu Rauða krossins.

  • $alt

Efnisorð

Heimsmarkmiðin

16. Friður og réttlæti
3. Heilsa og vellíðan

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum