Hoppa yfir valmynd
13. janúar 2022 Dómsmálaráðuneytið

Mál nr. 10/2022 Úrskurður 13. janúar 2022

Mál nr. 10/2022                    Aðlögun kenninafns: Georgsson

                                            

Hinn 13. janúar 2022 kveður mannanafnanefnd upp svohljóðandi úrskurð í máli 10/2022.

Með bréfi Þjóðskrár Íslands, dags. 11. janúar 2022, var óskað úrskurðar mannanafnanefndar um beiðni xxx og xxx um að sonur þeirra skuli vera kenndur til föður síns, Yuriys, og nafnið jafnframt lagað að íslensku máli. Óska þau að kenninafn drengsins verði skráð í þjóðskrá Georgsson.

Ekkert er í lögum nr. 45/1996, um mannanöfn, sem stendur í vegi fyrir því að fallist sé á ofangreinda beiðni.

 

Úrskurðarorð:

Fallist er á föðurkenninguna Georgsson.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum