Hoppa yfir valmynd
23. ágúst 2023 Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið

Staða fatlaðs fólks kemur okkur öllum við: Rafrænn fundur með ráðherra

Hringferð Guðmundar Inga Guðbrandssonar, félags- og vinnumarkaðsráðherra, lýkur þann 29. ágúst nk. en á opnum samráðsfundum sem haldnir hafa verið vítt og breitt um landið hafa málefni fatlaðs fólks verið til umfjöllunar. Síðasti fundurinn í fundaröðinni er rafrænn og verður í beinni útsendingu þriðjudaginn 29. ágúst kl. 17:00 á vef Stjórnarráðsins:

Fundinum verður einnig streymt á Facebook-síðu félags- og vinnumarkaðsráðuneytisins. 

Málefni fatlaðs fólks koma okkur öllum við og hér gefst einstakt tækifæri til að hafa bein áhrif á þróun stefnu um þjónustu við fatlað fólk á Íslandi.

Vilt þú koma ábendingum á framfæri eða beina spurningu til ráðherra?

Sendu endilega póst á [email protected] fyrir fundinn eða meðan á honum stendur ef þú ert með spurningu eða vilt koma á framfæri ábendingum. Þú getur líka verið í sambandi í gegnum Facebook. Við viljum heyra í þér!

Auk ráðherra og Guðrúnar Ágústu Guðmundsdóttur, formanns verkefnastjórnar, verða á fundinum Þuríður Harpa Sigurðardóttir, formaður ÖBÍ réttindasamtaka, og Unnur Helga Óttarsdóttir, formaður Landssamtakanna Þroskahjálpar. Fulltrúar beggja samtaka hafa tekið þátt í samráðsfundunum sem haldnir hafa verið hringinn í kringum landið. 

Landsáætlun um innleiðingu á samningi SÞ um réttindi fatlaðs fólks

Fundaröðinni er ætlað að tryggja milliliðalaust samtal um það sem fólki er efst í huga þegar málefni fatlaðs fólks ber á góma. Þátttaka hefur verið góð og afar góðar umræður skapast. Umræðurnar og ábendingarnar sem fram hafa komið eru mikilvægt innlegg inn í gerð landsáætlunar sem nú stendur yfir.

Í stjórnarsáttmála ríkisstjórnarinnar er kveðið á um að samningur Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks skuli lögfestur á kjörtímabilinu. Undir lok árs í fyrra var hleypt af stokkunum umfangsmikilli vinnu við gerð áðurnefndrar landsáætlunar til að tryggja farsæla innleiðingu samningsins.

Grundvallarhugmyndin er sú að fatlað fólk, hagsmunasamtök þess, ríki, sveitarfélög og almenningur vinni saman sem jafningjar að því að móta tillögur að verkefnum sem bæta stöðu fatlaðs fólks og tengjast samningi Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks.

Guðmundur Ingi Guðbrandsson, félags- og vinnumarkaðsráðherra, á opnum fundi í Hofi á Akureyri í gær.

Frá fundinum sem fram fór á Akureyri

Spurningar og svör á Sauðárkróki

Landsáætlun og lögfesting samnings Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks rædd á Höfn

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum