Hoppa yfir valmynd
9. júní 2021 Háskóla-٫ iðnaðar- og nýsköpunarráðuneytið

272 umsóknir í Matvælasjóð

Alls bárust 272 umsóknir um styrki úr Matvælasjóði, en umsóknarfrestur var til 6. júní. Sjóðurinn hefur 630 milljónir til úthlutunar og næstu skref eru þau að umsóknirnar fara til fagráða sjóðsins sem munu veita umsögn um þær og í kjölfarið mun stjórn sjóðsins gera tillögu til Kristjáns Þórs Júlíussonar, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra um úthlutun úr sjóðnum. 

Bára styrkir verkefni á hugmyndastigi og er styrknum ætlað að fleyta hugmynd yfir í verkefni. Alls bárust 124 umsóknir í Báru. 

Afurð styrkir verkefni sem komin eru af hugmyndastigi en eru þó ekki tilbúin til markaðssetningar, en leiða af sér afurð. Alls bárust 58 umsóknir í Afurð. 

Kelda styrkir rannsóknarverkefni sem miða að því að skapa nýja þekkingu. Alls bárust 47 umsóknir í Keldu. 

Fjársjóður styrkir sókn á markaði. Alls bárust 43 umsóknir í Fjársjóð.  

Markmið sjóðsins er að ná til verkefna á öllum stigum, allt frá hugmyndum til markaðssetningar og hagnýtra rannsókna. Hlutverk Matvælasjóðs er að styrkja þróun og nýsköpun við framleiðslu og vinnslu matvæla og hliðarafurða úr landbúnaðar- og sjávarafurðum. Áhersla er á nýsköpun, sjálfbærni, verðmætasköpun og samkeppnishæfni íslenskrar matvæla um land allt.  

Allar upplýsingar um sjóðinn má finna hér á heimasíðu hans.  

Nánar um sjóðinn á www.matvælasjóður.is 

 

Efnisorð

Heimsmarkmiðin

17. Samvinna um markmiðin
13. Aðgerðir í loftslagsmálum
12. Ábyrð neysla og framleiðsla
15. Líf á landi
14. Líf í vatni
9. Nýsköpun og uppbygging
8. Góð atvinna og hagvöxtur

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum