Hoppa yfir valmynd
16. maí 2018 Utanríkisráðuneytið

Viljayfirlýsing um sjálfbæra nýtingu sjávarauðlinda

Guðlaugur Þór og Laura Tuck, varaforseti Alþjóðabankans. - myndUtanríkisráðuneytið

Staða Íslands í breyttu öryggisumhverfi var meginþema í ræðu sem Guðlaugur Þór Þórðarson, utanríkisráðherra, flutti hjá hugveitunni Center for Strategic and International Studies (CSIS) í Washington fyrr í dag. Rifjaði Guðlaugur Þór upp hernaðarlegt mikilvægi Íslands á tímum síðari heimsstyrjaldarinnar og í kalda stríðinu, og hvernig umhverfi öryggismála og þróunin á norðurslóðum hafi breyst á umliðnum árum og fært Ísland á ný nær kastljósi alþjóðastjórnmála. Ennfremur ræddi utanríkisráðherra samskiptin við Rússland og Kína í ræðu sinni og fyrirhugaða formennsku Íslands í Norðurskautsráðinu. Þá áréttaði ráðherra mikilvægi alþjóðalaga og vestrænnar samvinnu og samstöðu í breyttu öryggisumhverfi, og gerði samstarfinu við Bandaríkin sérstaklega skil.

Heather Conley, varaforseti CSIS, og Guðlaugur Þór ræddu alþjóðamál og stöðu Íslands.

„Samvinna Íslands og Bandaríkjanna stendur traustum fótum. Við eigum langvinnt og gott samstarf í öryggis- og varnarmálum og sífellt fleiri Bandaríkjamenn sækja Ísland heim samhliða aukningu í ferðamennsku og sífellt fleiri flugtengingum. Við hlökkum til áframhaldandi samstarfs í á norðurslóðum þegar Ísland tekur við formennsku í Norðurskautsráðinu og enn eru möguleikar á að efla viðskipti og verslun á milli landanna. Gömlum bandalögum er mikilvægt að viðhalda og hlúa að, og Ísland er og verður traustur og trúverðugur bandamaður. Við lifum á breytilegum tímum margvíslegra áskorana og mikilvægt er að við höldum á lofti okkar sameiginlegu gildum, virði fjölþjóðakerfisins, sem bæði ríki hagnast af, og alþjóðalögum,“ sagði Guðlaugur Þór meðal annars í ræðu sinni.

Utanríkisráðherra fundaði einnig með Lauru Tuck, varaforseta Alþjóðabankans á sviði sjálfbærrar þróunar, og undirritaði viljayfirlýsingu um samstarf á milli Íslands og Alþjóðabankans á sviði sjálfbærrar nýtingar sjávarauðlinda og málefna hafsins. Munu íslensk stjórnvöld leggja til sérfræðiþekkingu og stuðning við fiskimál og fiskimannasamfélög á þeim stöðum sem Alþjóðabankinn hefur starfsemi, meðal annars í Vestur-Afríku.

„Það er mjög ánægjulegt að auka samstarf við Alþjóðabankann, stærstu þróunarsamvinnustofnun heims, á sviði sjálbærrar nýtingar sjávarauðlinda. Þar höfum við Íslendingar mikilsverða sérþekkingu sem mikilvægt er að deila með fátækari þjóðum," segir Guðlaugur Þór sem einnig átti fund með Susanne Ulbæk, stjórnarfulltrúa kjördæmis Norðurlandanna og Eystrasaltsríkjanna í Alþjóðabankanum. "Ísland mun taka yfir formennsku í samstarfi kjördæmisins á næsta ári og þar með leiða samræmingu í málefnavinnu þessa öfluga ríkjahóps innan Alþjóðabankans. Það verður krefjandi verkefni en jafnframt tækifæri til að sýna hvað í okkur býr og láta gott af sér leiða,“ segir Guðlaugur Þór.

Guðlaugur Þór og Ed Royce, formaður utanríkismálanefndar fulltrúadeildarinnar.

Að endingu fundaði utanríkisráðherra með Ed Royce, formanni utanríkismálanefndar fulltrúadeildar Bandaríkjaþings, og voru öryggismál, viðskipti og fjárfestingar og málefni norðurslóða meðal umræðuefna.

Ræðu ráðherra hjá CSIS má lesa hér á vef stjórnarráðsins. Upptöku af ræðunni og umræðum má sjá á vef hugveitunnar.

Nánar má lesa um viljayfirlýsinguna í Heimsljósi - upplýsingaveitu um þróunar- og mannúðarmál og á vef Ríkiskaupa má nálgast nánari upplýsingar um þetta verkefni, þar á meðal lýsingu, skráningarhefti og samningsdrög. Þátttökutilkynningar skulu hafa borist Ríkiskaupum eigi síðar en á hádegi þann 25. maí nk.

Efnisorð

Heimsmarkmiðin

14. Líf í vatni

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum