Hoppa yfir valmynd
26. mars 2020 Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið

Viðbragðsteymi um þjónustu við viðkvæma hópa samþykkir aðgerðir

Ásmundur Einar Daðason, félags- og barnamálaráðherra, Sigurður Ingi Jóhannsson, samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra og Aldís Hafsteinsdóttir, formaður stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga, rituðu í síðustu viku undir samstarfsyfirlýsingu um aðgerðir sem miða að því að takast á við þær áskoranir sem stofnanir ríkisins, félagsþjónusta og aðrir aðilar sem sinna þjónustu við viðkvæma hópa í landinu standa frammi fyrir vegna Covid-19 veirunnar. Með yfirlýsingunni er boðað til víðtæks samstarfs ríkis, sveitarfélaga, fagaðila og hagsmunaaðila um allt land svo tryggja megi öryggi og nauðsynlega þjónustu fyrir þá sem mest þurfa á henni að halda, svo sem fatlað fólk, aldraðir og börn og fjölskyldur.

Viðbragðsteymið hélt í gær sinn fyrsta formlega fund með ráðherrum og formanni stjórnar Sambands íslenskra sveitafélaga þar sem farið var yfir helstu áskoranir og tilteknar aðgerðir lagðar til.

Tillögur teymisins voru tvíþættar og vörðuðu í fyrsta lagi þær aðgerðir í þágu barna og fjölskyldna vegna þeirra aðstæðna sem skapast hafa í íslensku samfélagi vegna kórónavírusins og í öðru lagi aukið aðgengi almennings að ráðgjöf og stuðningi. Tillögur teymisins að aðgerðum voru samþykktar og var ákveðið að veita 15 milljónum króna til verkefnisins að svo stöddu. Verða þær aðgerðir kynntar nánar á næstu dögum.

Ásmundur Einar Daðason, félags-og barnamálaráðherra: „Við ætlum okkar að grípa vel og örugglega utan um viðkvæma hópa í þessum fordæmalausu aðstæðum sem nú eru uppi vegna kórónuveirufaraldursins. Við munum vinna hratt til þess að bregðast við og á næstu dögum kynnum við sértækar aðgerðir .”

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum