Hoppa yfir valmynd
26. júní 2018 Dómsmálaráðuneytið

Mál nr. 40/2018 Úrskurður 26. júní 2018

Mál nr. 40/2018                    Millinafn:       Moon

 

 

 

Hinn 26. júní 2018 kveður mannanafnanefnd upp svohljóðandi úrskurð í máli 40/2018 en erindið barst nefndinni 5. júní.

Samkvæmt  2. mgr. 6. gr. laga, nr. 45/1996, um mannanöfn, skal millinafn dregið af íslenskum orðstofnum eða hafa unnið sér hefð í íslensku máli en má þó ekki hafa nefnifallsendingu. Millinafnið Moon er hvorki dregið af íslenskum orðstofni né hefur það unnið sér hefð í íslensku máli og uppfyllir því ekki skilyrði laga um mannanöfn.

Úrskurðarorð:

Beiðni um millinafnið Moon er hafnað.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum