Hoppa yfir valmynd
13. maí 2020 Utanríkisráðuneytið

Óttast mikla aukningu í barna- og mæðradauða í þróunarríkjum

Ljósmynd: © UNICEF/Frank Dejongh - mynd

Óttast er að börnum yngri en fimm ára sem deyja dag hvern fjölgi um sex þúsund næsta hálfa árið vegna áhrifa kórónaveirunnar. Þetta kemur fram í grein í læknatímaritinu The Lancet og byggir á greiningu fræðimanna á áhrifum heimsfaraldursins í þróunarríkjum. Barnahjálp Sameinuðu þjóðanna (UNICEF) kallar eftir 1,6 milljörðum bandarískra dala til að bregðast strax við og bjarga lífi barna áður en það er um seinan.

Fjölgun dauðsfalla barna um sex þúsund á hverjum degi er versta sviðsmyndin af þremur sem fræðimenn teiknuðu upp eftir greiningu á 118 meðaltekju- og lágtekjuríkjum. Veik heilbrigðiskerfi þróunarríkja ráða ekki við að sinna börnum eins og áður meðan faraldurinn geisar og sama gildir um þjónustu við fæðandi konur. Óttast er að allt að þriðjungi fleiri konur látist af barnsförum næsta hálfa árið.

Henryetta Fore framkvæmdastjóri UNICEF segir að gangi spár eftir verði þetta í fyrsta sinn í áratugi sem dauðsföllum barna fjölgi. „Við megum ekki láta það henda að baráttan gegn veirunni bitni harðast á börnum og mæðrum. Og við getum látið áratuga framfarir í fækkun dauðsfalla barna og mæðra glatast í einni svipan,“ segir hún.

Samkvæmt greiningunni eru börn og mæður í tíu ríkjum í mestri áhættu, í Bangla­dess, Bras­il­íu, Lýðstjórnarlýðveldinu Kongó, Eþíópíu, Ind­landi, Indó­nesíu, Níg­er­íu, Pak­ist­an, Úganda og Tans­an­íu. 

Efnisorð

Heimsmarkmiðin

3. Heilsa og vellíðan

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum