Hoppa yfir valmynd
13. janúar 2017 Utanríkisráðuneytið, Menningar- og viðskiptaráðuneytið

Nordic Matters: Norræn menning í brennidepli í London árið 2017

Norræn menning og listir verða í brennidepli hjá Southbank Centre í London allt árið 2017 með menningarhátíðinni Nordic Matters, sem hófst formlega í dagSouthbank Centre er stærsta menningarmiðstöð Bretlands og stendur hún við hinn líflega suðurbakka Thames árinnar í miðborg London en hana sækja 5 milljónir gesta ár hvert. Boðið verður upp á fjölbreytta norræna menningardagskrá á sviðum bókmennta, tónlistar, dans, myndlistar, hönnunar, tísku, matvæla og arkitektúrs, auk þess sem hægt verður að sækja fjölda fyrirlestra og málstofa.

Sérstök áhersla verður lögð á málefni barna og ungs fólks, jafnrétti kynjanna og sjálfbærni frá norrænu sjónarhorni og verða viðfangsefnin fléttuð inn í allar lista- og menningarhátíðir Southbank Centre á árinu. Má þar nefna barnahátíðina ImagineBeing a ManWomen of the World, kórahátíðina ChorusLondon Literature Festival  og Norræna músíkdaga 2017.

Dagskráin verður í stöðugri þróun allt árið en íslenskir þátttakendur eru rithöfundarnir Sjón og Þórarinn Eldjárn, Reykjavíkurdætur, Víkingur Ólafsson, Kammerkór Suðurlands, Birgitta Sif og Bjargey Ólafsdóttir. Íslenski dansflokkurinn mun flytja verkið Fórn eftir Ernu Ómarsdóttur, Ragnar Kjartansson, Gabríelu Friðriksdóttur, Matthew Barney og Valdimar Jóhannsson. Einnig verður flutt tónverk eftir Daníel Bjarnason og Önnu Þorvaldsdóttur tónskáld. Íslenski kórinn í London syngur við opnunarhátíðina í dag undir stjórn Helga Rafns Ingvarssonar.

Stjórnendur Southbank Centre kynntu dagskrá ársins að viðstöddum menningarmálaráðherrum Norðurlandanna og breskum starfssystkinum þeirra Karen Bradley og Matt Hancock. Karitas H. Gunnarsdóttir, skrifstofustjóri menningarmála, sótti opnunina fyrir hönd Kristjáns Þórs Júlíussonar mennta- og menningarmálaráðherra auk Þórðar Ægis Óskarssonar sendiherra Íslands og fulltrúa frá Íslandsstofu, Reykjavíkurborg, Kvikmyndamiðstöð Íslands, utanríkisráðuneytinu og sendiráði Íslands í London.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum