Hoppa yfir valmynd
20. október 2020 Utanríkisráðuneytið

UNICEF: Undirbýr stóru stundina þegar bóluefni verður tilbúið

Ljósmynd: UNICEF - mynd

Þegar sú stund rennur upp að bóluefni gegn COVID-19 verður tilbúið þarf margt annað að vera til reiðu svo hægt verði að koma bóluefninu með hröðum, öruggum og skilvirkum hætti til fólks. Barnahjálp Sameinuðu þjóðanna (UNICEF) hefur hafið slíkan undirbúning með því að kaupa sprautur og annan nauðsynlegan búnað.

Í frétt frá UNICEF segir að um leið og COVID-19 bóluefni fáist samþykkt þurfi að vera fyrir hendi ein sprauta fyrir hvern skammt af bóluefni. UNICEF hefur því sett sér það viðmið að safna 520 milljónum af sprautum í vörugeymslur sínar á þessu ári en alls er ætlunin að eiga einn milljarð af sprautum á næsta ári þegar COVID-19 bólusetningar hefjast. Einnig ætlar UNICEF að safna 620 milljónum af sprautum fyrir aðrar bólusetningar eins og gegn mislingum og taugaveiki.

Til þess að tryggja að bóluefni sé flutt og geymt við rétt hitastig er UNICEF ásamt Alþjóðaheilbrigðisstofnuninni (WHO) að kortleggja núverandi frystibúnað og geymslurými og taka saman leiðbeiningar fyrir þjóðir um verklag við bólusetningar.

„Að bólusetja heiminn gegn COVID-19 verður eitt stærsta verkefni í sögu mannkyns og við þurfum að geta brugðist hratt við um leið og framleiðsla bóluefnis er komin af stað,“ segir Heniretta Fore framkvæmdastýra UNICEF.

UNICEF vinnur náið með GAVI, alþjóðlegum sjóði um bólusetningar, að þessu mikilvæga verkefni.

Efnisorð

Heimsmarkmiðin

3. Heilsa og vellíðan
17. Samvinna um markmiðin

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum