Hoppa yfir valmynd
24. janúar 2019 Forsætisráðuneytið

Stjórnarráð Íslands á Framadögum

Hr. Guðni Th. Jóhannesson, forseti Íslands, við setningu Framadaga - mynd

Stjórnarráð Íslands tekur nú í annað sinn þátt í Framadögum sem haldnir eru í Háskólanum í Reykjavík í dag.

Meginmarkmið Framadaga er að gefa háskólanemum tækifæri á að kynna sér starfsmöguleika hjá ýmsum fyrirtækjum og stofnunum, ásamt því að fyrirtæki og stofnanir ná að vekja á sér athygli og þeim möguleikum sem þau hafa upp á að bjóða fyrir ungt fólk.
Hugmyndin á bak við kynningarbás Stjórnarráðsins er m.a. að sýna hve nátengd störf starfsfólks þar eru ákvörðunum valdhafa á hverjum tíma, með fyrirsögninni Komdu við sögu.
Starfsmenn Stjórnarráðsins eru við kynningarbásinn og spjalla við nemendur um fjölbreytt störf hjá ráðuneytunum.

Framadagar eru haldnir á hverju ári og eru á vegum ungmennasamtakanna AIESEC og skipulagðir af nemendum úr háskólum landsins.

 

Nánar um Framadaga


  • Starfsfólk í Stjórnarráði Íslands - mynd
  • Stjórnarráð Íslands á Framadögum - mynd úr myndasafni númer 2
  • Stjórnarráð Íslands á Framadögum - mynd úr myndasafni númer 3
  • Stjórnarráð Íslands á Framadögum - mynd úr myndasafni númer 4
  • Stjórnarráð Íslands á Framadögum - mynd úr myndasafni númer 5

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum