Hoppa yfir valmynd
31. maí 2022 Dómsmálaráðuneytið

Nr. 214/2022 Úrskurður

KÆRUNEFND ÚTLENDINGAMÁLA  

 

Hinn 31. maí 2022 er kveðinn upp svohljóðandi  

úrskurður nr. 214/2022  

í stjórnsýslumálum nr. KNU22050001 og KNU22050002

 

Beiðni um frestun réttaráhrifa í málum

[…]  og […]

 

 

Málsatvik  

Hinn 13. apríl 2022 staðfesti kærunefnd útlendingamála ákvarðanir Útlendingastofnunar, dags. 18. febrúar 2022, um að umsóknir […], fd. […], ríkisborgara Venesúela og […], fd. […], ríkisborgara Venesúela, um alþjóðlega vernd hér á landi, yrðu ekki teknar til efnismeðferðar og að þau yrðu endursend til Argentínu. Úrskurður kærunefndar var birtur fyrir aðilum hinn 25. apríl 2022 og hinn 2. maí 2022 barst kærunefnd beiðni aðila um frestun réttaráhrifa á úrskurði nefndarinnar. Hinn 9. maí 2022 barst kærunefnd greinargerð aðila.  

Aðilar krefjast þess að réttaráhrifum úrskurðar kærunefndar útlendingamála verði frestað á meðan þau fara með mál sín fyrir dómstóla, sbr. 6. mgr. 104. gr. laga um útlendinga nr. 80/2016.  

Málsástæður aðila        

Aðilar byggja beiðni sína um frestun réttaráhrifa á því að framkvæmd úrskurðar kærunefndar útlendingamála í máli þeirra geti valdið óafturkræfum skaða, en verði aðilum brottvísað áður en meðferð dómstóla á máli þeirra ljúki þá muni þau ekki eiga raunhæft úrræði til þess að bera ákvörðun stjórnvalda undir dómstóla. Aðilar telja að með vísan til heimilda um stöðu venesúelskra innflytjenda í Argentínu að það sé ekki tryggt að þau verði ekki send aftur til Venesúela. Þá telja aðilar að ekki liggi fyrir nægar upplýsingar um dvalarleyfi þeirra í Argentínu. Því séu sérstakar ástæður sem mæli með því að mál þeirra verði tekin til efnismeðferðar hér á landi á grundvelli 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.

Byggja aðilar einnig á því að það muni reynast þeim erfitt að eiga í sambandi við lögmann sinn hér á landi verði þau send til viðtökuríkis.

Niðurstaða kærunefndar útlendingamála  

Í íslenskum rétti gildir sú meginregla að málskot til dómstóla frestar ekki réttaráhrifum endanlegra ákvarðana stjórnvalda, sjá til hliðsjónar 2. málsl. 60. gr. stjórnarskrár lýðveldisins Íslands nr. 33/1944. Reglan er áréttuð í 1. málsl. 6. mgr. 104. laga um útlendinga nr. 80/2016 en þar segir að málshöfðun fyrir dómstólum til ógildingar á endanlegri ákvörðun á stjórnsýslustigi um að útlendingur skuli yfirgefa landið fresti ekki framkvæmd hennar. Að kröfu útlendings getur kærunefnd útlendingamála þó ákveðið að fresta réttaráhrifum endanlegrar ákvörðunar sé talin ástæða til þess, sbr. 2. málsl. 6. mgr. 104. gr. laga um útlendinga. Frestun á réttaráhrifum skal bundin því skilyrði að útlendingur beri málið undir dómstóla innan fimm daga frá birtingu ákvörðunar um frestun réttaráhrifa úrskurðar og óski eftir að málið hljóti flýtimeðferð. Nú er beiðni um flýtimeðferð synjað og skal þá mál höfðað innan sjö daga frá þeirri synjun. Þó getur kærunefnd útlendingamála tekið ákvörðun um að fresta framkvæmd ef sýnt er fram á að verulega breyttar aðstæður hafi skapast frá því að endanleg ákvörðun var tekin.  

Niðurstaða um hvort ástæða sé til að fresta réttaráhrifum úrskurðar kærunefndar ræðst af heildstæðu mati á hagsmunum aðila af því að réttaráhrifum úrskurðarins verði frestað og sjónarmiðum sem mæla gegn slíkri frestun. Meðal þeirra sjónarmiða sem líta ber til við þetta mat er hvort framkvæmd úrskurðarins valdi aðila óafturkræfum skaða, hvort framkvæmdin feli í sér verulegar hindranir á aðgengi aðila að dómstólum, hvort aðstæður sem þýðingu geta haft fyrir málið hafi breyst verulega eða hvort þörf sé á sérstakri varúð, m.a. með tilliti til hagsmuna barna. Þá lítur kærunefnd til þess hlutverks stjórnvalda að tryggja skilvirka framkvæmd laga um útlendinga. Kærunefnd hefur jafnframt litið til þess að heimild til frestunar réttaráhrifa á úrskurði nefndarinnar er undantekning frá meginreglu sem aðeins sé ætlað að ná til tilvika þar sem ástæða er til þess að fresta framkvæmd. Réttaráhrifum úrskurðar verði því ekki frestað af þeirri ástæðu einni að úrskurðurinn verði borinn undir dómstóla heldur þurfi að liggja fyrir tilteknar ástæður í fyrirliggjandi máli svo kærunefnd fallist á slíka beiðni.  

Í beiðni um frestun réttaráhrifa kemur fram sú afstaða aðila að framkvæmd úrskurðar kærunefndar útlendingamála um að þau skuli yfirgefa landið takmarki möguleika þeirra til að fá endurskoðun úrskurðarins hjá dómstólum og njóta þar réttlátrar málsmeðferðar, sbr. 1. mgr. 70. gr. stjórnarskrárinnar. Af því tilefni tekur kærunefnd fram að vera aðila á landinu er ekki forsenda fyrir því að mál sem þau höfða til ógildingar á úrskurði kærunefndar sé tækt til meðferðar hjá dómstólum. Þá hafa aðilar möguleika á að gefa skýrslu fyrir dómi þótt þau séu ekki hér á landi, sbr. 2. mgr. 49. gr. og 3. og 4. mgr. 51. gr. laga um meðferð einkamála nr. 91/1991. Í því ljósi og með vísan til aðstæðna aðila að öðru leyti er það niðurstaða kærunefndar að ekki sé ástæða til að fresta réttaráhrifum úrskurðar í máli aðila á þeim grundvelli að framkvæmd úrskurðarins valdi tjóni á málatilbúnaði þeirra fyrir dómstólum eða skerði réttindi sem þeim eru tryggð samkvæmt 70. gr. stjórnarskrárinnar.

Með úrskurði kærunefndar útlendingamála hefur verið tekin afstaða til málsástæðna aðila varðandi umsóknir þeirra um alþjóðlega vernd hér á landi og komist að niðurstöðu um að synja umsóknum þeirra um efnismeðferð. Kærunefnd ítrekar það sem kemur fram í úrskurði í máli aðila að athugun nefndarinnar hefur ekki leitt í ljós gögn sem gefa tilefni til að ætla að aðstæður í viðtökuríki séu þess eðlis að endursending aðila þangað sé í andstöðu við 1. og 2. mgr. 42. gr. laga um útlendinga eða 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu eða að aðilum sé ekki tryggð raunhæf leið til að ná fram rétti sínum þar í landi, sbr. 13. gr. mannréttindasáttmála Evrópu.

Tiltölulega skammur tími er liðinn síðan nefndin úrskurðaði í máli aðila. Ekkert í gögnum málsins, þ.m.t. þeim upplýsingum sem fylgdu beiðni aðila um frestun réttaráhrifa, bendir til þess að aðstæður aðila eða aðstæður í ríkinu, sem vísa á aðilum til, hafi breyst verulega síðan nefndin úrskurðaði í málinu á þann hátt að nefndin telji að það gæti haft áhrif á efnislega niðurstöðu málsins. Eftir skoðun á beiðni aðila um frestun réttaráhrifa telur kærunefnd að athugasemdir sem þar koma fram séu ekki þess eðlis að ástæða sé til að ætla að niðurstaða kærunefndar í málinu sé haldin annmörkum sem leitt gæti til ógildingar úrskurðarins.  

Líkt og fram kemur í úrskurði kærunefndar frá 13. apríl 2022 eru aðilar venesúelskir ríkisborgarar sem hafa dvalið í Argentínu undanfarin ár og eru með ótímabundin dvalarleyfi þar í landi. Í úrskurðinum komst kærunefnd m.a. að þeirri niðurstöðu að aðstæður aðila í viðtökuríki féllu undir skilyrði a-liðar 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga og var því niðurstaða kærunefndar að umsóknir þeirra um alþjóðlega vernd yrðu ekki teknar til efnismeðferðar. Kærunefnd telur að líta verði til þess að hér er um að ræða fyrsta mál sinnar tegundar sem óskað er eftir frestun réttaráhrifa á, en óumdeilt er að aðilar hafa ekki hlotið alþjóðlega vernd í viðtökuríki og hafa ekki hlotið ríkisborgararétt þar í landi. Því lítur kærunefnd til þess að í máli aðila hafa komið fram álitaefni sem rétt sé, í þágu sjónarmiða um réttaröryggi, að fá skorið úr um fyrir dómstólum. Kærunefnd telur að hagsmunir aðila að fá niðurstöðu dómstóla um mál sín og hagsmunir þeirra af því að dvelja áfram hér á landi meðan beðið er eftir niðurstöðu dómstóla vegi þungt gagnvart hagsmunum tengdum skilvirkni framkvæmdar laga um útlendinga.

Með vísan til framangreinds telur kærunefnd að ástæða sé til, eins og hér stendur sérstaklega á, að fresta réttaráhrifum á úrskurði kærunefndar í máli aðila, dags. 13. apríl 2022, meðan aðilar reka mál sín fyrir dómstólum, sbr. 6. mgr. 104. gr. laga um útlendinga, með þeim skilyrðum sem koma fram í ákvæðinu og áréttuð eru í úrskurðarorði.

Aðilum er leiðbeint um að uppfylli þau ekki nefnd skilyrði kann úrskurður kærunefndar í máli aðila, dags. 13. apríl 2022, að verða framkvæmdarhæfur.

 

ÚRSKURÐARORÐ

:  

 

Réttaráhrifum úrskurðar kærunefndar útlendingamáli í málum aðila, dags. 13. apríl 2022, er frestað á meðan aðilar reka mál sín fyrir dómstólum til ógildingar á endanlegum ákvörðunum í málum sínum á stjórnsýslustigi. Frestun réttaráhrifa úrskurðarins er bundin því skilyrði að aðilar beri málin undir dómstóla innan fimm daga frá birtingu ákvörðunar þessarar og óski eftir flýtimeðferð. Sé beiðni um flýtimeðferð synjað skal þá höfðað mál innan sjö daga frá þeirri synjun.

The legal effects of the decisions of the appeals board in the cases of the applicants, dated 13 April 2022, are suspended during the time that the applicants’ legal proceedings for the annulment of the final administrative decisions in the applicants‘ cases are under way. The suspension of legal effects is subject to the condition that the applicants bring the cases to court within five days of the date of the notification of this decision and request accelerated procedures. If the requests for accelerated procedure are denied the applicants shall initiate legal proceedings before a court within seven days of that denial.

 

 

Fyrir hönd kærunefndar útlendingamála,  

 

 

 

Þorsteinn Gunnarsson, formaður  

 

 

 

 

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum