Hoppa yfir valmynd
2. október 2012 Dómsmálaráðuneytið

Embætti hæstaréttardómara laust til setningar

Innanríkisráðuneytið auglýsir laust til umsóknar embætti dómara við Hæstarétt Íslands til setningar meðan á leyfi skipaðs dómara stendur, sbr. 2. mgr. 9. gr. laga nr. 15/1998 um dómstóla. Meðan á setningu stendur nýtur sá sem hana hefur fengið sömu stöðu og skipaður dómari nema að því leyti sem leiðir af því að starfi hans er markaður ákveðinn tími, sbr. 3. mgr. 9. gr. laga nr. 15/1998 um dómstóla.

haestirettur
Hæstiréttur Íslands

Miðað er við að sett verði í embættið frá og með 1. desember nk. til og með 31. desember 2014 eða hið fyrsta eftir að nefnd um hæfni dómara hefur lokið starfi sínu í samræmi við 4. gr. a laga um dómstóla nr. 15/1998 og reglur um störf dómnefndar sem fjallar um hæfni umsækjenda um dómaraembætti nr. 620/2010.

Umsækjendur skulu fullnægja skilyrðum 4. gr., sbr. 3. mgr. 9. gr. laga um dómstóla nr. 15/1998. Í samræmi við 4. gr. reglna nr. 620/2010 er áskilið að í umsókn komi fram upplýsingar um 1) menntun og framhaldsmenntun, 2) reynslu af dómstörfum, 3) reynslu af lögmannsstörfum, 4) reynslu af stjórnsýslustörfum, 5) reynslu af fræðistörfum, s.s. kennslu og öðrum akademískum störfum og upplýsingar um útgefnar ritrýndar greinar og bækur, fræðilega fyrirlestra o.s.frv., 6) reynslu af stjórnun, 7) reynslu af öðrum aukastörfum sem nýtast dómaraefni, s.s. vinnu í tengslum við undirbúning lagasetningar o.fl., 8) upplýsingar um almenna og sérstaka starfshæfni, 9) upplýsingar um andlegt atgervi og sjálfstæði í vinnubrögðum og 10) upplýsingar um þrjá fyrrverandi/núverandi samstarfsmenn/yfirmenn sem geta veitt dómnefnd bæði munnlega og skriflega upplýsingar um störf og samstarfshæfni umsækjanda, sbr. 5. mgr. 5. gr. reglna nr. 620/2010 og 11) aðrar upplýsingar sem varpað geta ljósi á faglega eiginleika og færni umsækjanda sem máli skipta fyrir störf hæstaréttardómara.

Umsóknir óskast sendar til innanríkisráðuneytisins, Sölvhólsgötu 7, 150 Reykjavík og á netfangið [email protected]. Með umsókn skal fylgja eftir því sem við á: 1) afrit af prófskírteinum, 2) afrit dóma í munnlegum fluttum málum sem umsækjandi hefur samið atkvæði í síðustu 12 mánuði, 3) afrit af stefnu og greinargerð í málum sem umsækjandi hefur samið og flutt munnlega síðustu 12 mánuði, 4) afrit af úrskurðum stjórnvalda sem umsækjandi hefur samið síðustu 12 mánuði og 5) útgefin fræðirit og ljósrit af tímaritsgreinum umsækjenda. Þess er óskað að þær tímaritsgreinar sem hafa verið ritrýndar verði auðkenndar. 6) Önnur gögn sem varpa ljósi á faglega færni umsækjanda til starfa sem hæstaréttardómari.

Til þess að hraða afgreiðslu umsókna og bréfaskiptum er áskilið að umsækjendur gefi upp netfang sem notað verður til að eiga samskipti við umsækjendur. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um setningu liggur fyrir.

Umsóknir skulu berast innanríkisráðuneytinu eigi síðar en 22. október nk.

Innanríkisráðuneytinu,
2. október, 2012.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum