Hoppa yfir valmynd
5. apríl 2022 Dómsmálaráðuneytið

Mál nr. 39/2022 Úrskurður 5. apríl 2022

Mál nr. 39/2022                    Eiginnafn:     Eyvin (kk.)

 

 

 

Hinn 5. apríl 2022 kveður mannanafnanefnd upp svohljóðandi úrskurð í máli 39/2022 en erindið barst nefndinni 28. mars.  Nefndina skipa í máli þessu Auður Björg Jónsdóttir, formaður, Finnur Ágúst Ingimundarson og Jóhannes Bjarni Sigtryggsson

 

Til þess að heimilt sé að samþykkja nýtt eiginnafn þurfa öll skilyrði 5. gr. laga, nr. 45/1996, um mannanöfn að vera uppfyllt. Skilyrðin eru:

 

  1. Eiginnafn skal geta tekið íslenska eignarfallsendingu eða hafa unnið sér hefð í íslensku máli.
  2. Nafnið má ekki brjóta í bág við íslenskt málkerfi.
  3. Það skal ritað í samræmi við almennar ritreglur íslensks máls nema hefð sé fyrir öðrum rithætti þess.
  4. Eiginnafn má ekki vera þannig að það geti orðið nafnbera til ama.

Eiginnafnið Eyvin (kk.) tekur íslenskri beygingu í eignarfalli, Eyvins, og telst að öðru leyti uppfylla ákvæði 5. gr. laga um mannanöfn.

Úrskurðarorð:

Beiðni um eiginnafnið Eyvin (kk.) er samþykkt og skal nafnið fært á mannanafnaskrá.

 

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum