Hoppa yfir valmynd
2. júlí 2018 Utanríkisráðuneytið

Ráðherrarnir ræddu öryggismál

Guðlaugur Þór og Anders Samuelsen á fundinum í dag - myndUTN/LHG

Tvíhliða samskipti Íslands og Danmerkur, öryggismál og leiðtogafundur Atlantshafsbandalagsins í næstu viku voru meðal umræðuefna á fundi Guðlaugs Þórs Þórðarsonar, utanríkisráðherra, og Anders Samuelsen, utanríkisráðherra Danmerkur, sem fram fór á öryggissvæðinu á Keflavíkurflugvelli í dag.

Málefni norðurslóða og fyrirhuguð formennska Íslands í Norðurskautsráðinu og Brexit voru ennfremur á dagskrá fundar, en Samuelsen er staddur hér á landi í vinnuheimsókn og mun meðal annars kynna sér varnartengda starfsemi Landhelgisgæslu Íslands.

"Samstarf Íslands og Danmerkur er einkar náið og nær yfir flest svið utanríkismálanna. Þannig hefur það verið og mun verða áfram, og ánægjulegt að taka á móti utanríkisráðherra Danmerkur á 100 ára afmæliári fullveldis Íslands sem dönsk stjórnvöld taka þátt í með ýmsum hætti," segir Guðlaugur Þór.

 

Í morgun átti Guðlaugur Þór fund með Zhang Qingli, varaforseta kínverska ráðgjafaþingsins, sem er staddur hér á landi. Ráðherra ræddi samskipti ríkjanna við Zhang, þ.m.t. verslun og viðskipti, væntanlega formennsku Íslands í Norðurskautsráðinu, hugmyndir um beint flug milli landanna og fleira. Einnig var rætt um málefni Norður-Kóreu og áætlun Kínverja um belti og braut (e. Belt and Road Initiative). Áætlunin er stundum er nefnd hin nýja Silkileið og nær til flestra sviða samgangna í heiminum. Þá minntist Zhang á frammistöðu íslenska knattspyrnulandsliðsins á HM í Rússlandi og sagði að aðdáunarvert hefði verið að fylgjast með samstöðu og samheldni Íslendinga, krafti liðsins og áræðni. 

 


Utanríkisráðherra þakkaði góð orð og notaði svo tækifærið til að benda á að Ísland myndi líklega deila sæti í mannréttindaráði Sameinuðu þjóðanna með Kínverjum næsta árið. Hann kvaðst hlakka til samstarfsins en notaði um leið tækifærið til að brydda upp á ástandi mannréttindamála í Kína. „Ég fagna því að fá tækifæri til að ræða við kínverska áhrifamenn ýmis sameiginleg áhugamál, hvernig hagnýta megi fríverslunarsamning ríkjanna frá 2013 með sem áhrifaríkustum hætti og hvernig stuðla megi að enn betri samskiptum. Ég tel einnig mikilvægt að geta rætt hreinskilnislega við þá um mannréttindi í heiminum, þar með talið í Kína,“ sagði Guðlaugur Þór um fundinn. 

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum