Hoppa yfir valmynd
18. desember 2018 Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið

Hámarksgreiðslur í fæðingarorlofi hækka um 80.000 kr. á mánuði

Ásmundur Einar Daðason, félags- og jafnréttismálaráðherra, hefur undirritað reglugerð um hækkun á greiðslum til foreldra í fæðingarorlofi frá 1. janúar 2019. Óskertar greiðslur hækka úr 520.000 kr. í 600.000 kr. á mánuði.

 

Ásmundur Einar segir þessa hækkun mikilvæga og sýna í verki áherslur stjórnvalda á að efla stuðning við börn og barnafjölskyldur. „Við hækkuðum hámarksgreiðslurnar um 20.000 í byrjun þessa árs. Nú stígum við stærra skref með umtalsverðri hækkun sem er til þess fallin að koma tekjulágum foreldrum til góða.“ Ráðherra segir áfram verða unnið að því að styðja betur við foreldra í fæðingarorlofi og þar sé meðal annars horft til þess að lengja fæðingarorlofið. „Þetta er mikilvægt velferðarmál og eins vil ég nefna sérstaklega að þetta er tvímælalaust lóð á vogarskálar aukins kynjajafnréttis.

Aukin framlög ríkisins vegna hækkunar hámarksgreiðslna fæðingarorlofs 1. janúar næstkomandi eru áætluð um 1,8 milljarður króna á ársgrundvelli.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum