Hoppa yfir valmynd
14. október 2021 Dómsmálaráðuneytið

Nr. 499/2021 Úrskurður

 

KÆRUNEFND ÚTLENDINGAMÁLA

 

Þann 14. október 2021 er kveðinn upp svohljóðandi

úrskurður nr. 499/2021

í stjórnsýslumáli nr. KNU21090040

 

Beiðni [...] um endurupptöku

 

I.       Málsatvik

Þann 15. apríl 2021 staðfesti kærunefnd útlendingamála ákvörðun Útlendingastofnunar, dags. 12. janúar 2021, um að taka umsókn [...], fd. [...], ríkisborgara Palestínu (hér eftir kærandi), um alþjóðlega vernd á Íslandi ekki til efnismeðferðar og endursenda hann til Grikklands. Niðurstaða kærunefndar var birt kæranda þann 19. apríl 2021.

Þann 13. september 2021 barst kærunefnd beiðni kæranda um endurupptöku. Dagana 16. og 17. september 2021 bárust upplýsingar frá stoðdeild ríkislögreglustjóra og Útlendingastofnun um málsmeðferð í máli kæranda. Athugasemdir bárust frá talsmanni kæranda þann 5. október 2021 og frekari upplýsingar frá stoðdeild Ríkislögreglustjóra þann 6. október 2021.

Beiðni kæranda um endurupptöku máls hans byggir á 24. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993.

II.        Málsástæður og rök kæranda

Kærandi byggir beiðni um endurupptöku á því að þar sem 12 mánuðir séu nú liðnir frá umsókn hans og tafir á meðferð málsins séu ekki á hans ábyrgð skuli taka umsókn hans um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar, sbr. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga nr. 80/2016. Með vísan til framangreinds er gerð sú krafa að mál hans verði endurupptekið og Útlendingastofnun verði gert að taka umsókn hans um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar.

Í viðbótarathugasemdum kæranda, dags. 5. október 2021, kemur fram að kærandi telji að þær tafir sem hafi orðið á afgreiðslu umsóknar hans séu ekki á hans ábyrgð. Kærandi byggir á því að ferðalög á milli landa hafi sætt miklum takmörkunum og verið bundin ströngum skilyrðum. Kærandi beri enga ábyrgð á þeim skilyrðum sem hafi verið sett, takmörkunum og þeirri óvissu sem Covid-19 faraldurinn hafi valdið. Kærandi vísar til þess að flutningur úr landi sé íþyngjandi ákvörðun og eðlilegt að kærandi sé mótfallinn því að snúa aftur til Grikklands. Stjórnvöld geti ekki gert þá kröfu að kærandi undirgangist líkamsrannsókn til að stjórnvöld geti sinnt verkefnum sínum, án þess að fyrir liggi þvingunarheimild. Þá liggi ekki fyrir af gögnum málsins hvort hann hafi yfir höfuð verið boðaður í slíkt próf á einhverjum tímapunkti. Eðli máls samkvæmt þurfi að gera ríkar kröfur til nauðsynjar og lögmætis slíkra líkamsrannsókna. Ljóst sé að engin sérstök lagaheimild hafi verið eða sé til staðar til að framkvæma líkamsrannsókn á kæranda, í þeim tilgangi að flytja hann úr landi á grundvelli laga um útlendinga. Þá vísar kærandi til úrskurðar kærunefndar í máli nr. KNU21070020 frá 26. ágúst 2021 og telur að staða kæranda í því máli sé sambærileg stöðu kæranda. Kærandi vísar til þess að hann hafi allt frá því að niðurstaða í máli hans hafi legið fyrir, verið í þjónustu og dvalið í úrræði á vegum Útlendingastofnunar og ljóst að hafa mátti upp á honum með einföldum hætti.

III.      Niðurstaða kærunefndar útlendingamála

Samkvæmt 24. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993 á aðili máls rétt á því að mál sé tekið upp á ný ef ákvörðun hefur byggst á ófullnægjandi eða röngum upplýsingum um málsatvik eða íþyngjandi ákvörðun um boð eða bann hefur byggst á atvikum sem breyst hafa verulega frá því að ákvörðun var tekin.

Í 1. mgr. 40. gr. laga nr. 80/2016 um útlendinga kemur fram að flóttamaður skv. 37. gr. laganna, sem er hér á landi eða kemur hér að landi, hafi samkvæmt umsókn rétt á að fá hér alþjóðlega vernd. Stjórnvöldum sé þó heimilt, á grundvelli a-, b- og c-liðar 1. mgr. 36. gr. laganna, að taka umsókn ekki til efnismeðferðar við þær aðstæður sem tilgreindar séu í umræddum stafliðum.

Í 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga kemur fram að ef svo standi á sem greini í 1. mgr. skuli þó taka umsókn um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar ef útlendingurinn hefur slík sérstök tengsl við landið að nærtækast sé að hann fái hér vernd eða ef sérstakar ástæður mæli annars með því. Ef meira en 12 mánuðir hafa liðið frá því að umsókn um alþjóðlega vernd barst fyrst íslenskum stjórnvöldum og tafir á afgreiðslu hennar séu ekki á ábyrgð umsækjanda sjálfs skuli taka hana til efnismeðferðar.

Af orðalagi 2. málsl. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga leiðir að umrætt 12 mánaða tímabil hefst þegar umsækjandi leggur fyrst fram umsókn um alþjóðlega vernd hjá stjórnvöldum. Þá hefur í úrskurðum kærunefndar verið lagt til grundvallar að tímabilinu ljúki þegar endanleg niðurstaða stjórnvalda er framkvæmd með flutningi umsækjanda til viðtökuríkis eða þegar kærandi fer úr landi sjálfviljugur eftir að ákvörðun í máli hans hefur verið tekin.

Kærunefnd telur að túlka beri 2. málsl. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga á þann hátt að þótt 12 mánaða fresturinn sé liðinn verði umsókn ekki tekin til efnismeðferðar af þeim sökum ef tafir á málsmeðferð eða flutningi verði fyrst og fremst raktar til athafna eða athafnaleysis umsækjanda sem hann ber sjálfur ábyrgð á, nema þær tafir hafi verið óverulegar og ljóst sé að hægt hefði verið að flytja kæranda áður en 12 mánaða fresturinn var liðinn.

Kærandi sótti um alþjóðlega vernd á Íslandi þann 28. ágúst 2020 og rann því umræddur 12 mánaða frestur út á miðnætti þann 28. ágúst 2021. Kemur því til skoðunar hvort tafir á afgreiðslu umsóknar kæranda séu á ábyrgð hans sjálfs, sbr. 2. málsl. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.

Í upplýsingum sem kærunefnd bárust frá Útlendingastofnun, dags. 16. september 2021, varðandi fyrirspurn um tafir á málsmeðferð og flutning kæranda, kemur fram að Útlendingastofnun líti svo á að kærandi hafi tafið mál sitt. Samkvæmt upplýsingum frá stoðdeild Ríkislögreglustjóra hafi kærandi neitað allri samvinnu við lögreglu, m.a. að undirgangast skimun fyrir Covid-19. Það sé mat Útlendingastofnunar að kærandi hafi haft fulla vitneskju um skyldu sína til þess að yfirgefa landið og hann hafi með framangreindum hætti komið í veg fyrir framkvæmd ákvörðunar stjórnvalda um frávísun. Telji Útlendingastofnun því að tafir á afgreiðslu umsóknar kæranda hafi verið á hans ábyrgð.

Í upplýsingum sem bárust frá stoðdeild ríkislögreglustjóra, dags. 17. september 2021, kemur fram að verkbeiðni hafi borist stoðdeild þann 27. apríl 2021. Haft hafi verið samband við kæranda þann 30. apríl 2021. Kærandi hafi greint frá því að hann vildi ekki fara til Grikklands og neitað allri samvinnu við íslensk stjórnvöld. Þá hafi verið hringt í kæranda í þrígang dagana 20. maí, 3. og 11. júní 2021 en kærandi hafi ekki svarað. Þar sem afstaða hans hafi legið fyrir og hann hafi ekki viljað láta ná í sig hafi ekki verið haft samband við hann meir.

Þann 5. október 2021 óskaði kærunefnd eftir upplýsingum frá stoðdeild um það hvort kærandi hefði verið boðaður í Covid-19 sýnatöku á ákveðnum fyrirframgefnum tíma. Í svari stoðdeildar, dags. 6 október 2021, kemur m.a. fram að ekki hafi verið búið að ákveða fyrirfram tímasetningu fyrir kæranda í sýnatöku þar sem afstaða hans hafi legið fyrir.

Af svari frá stoðdeild má því ráða að þau samskipti sem áttu sér stað milli kæranda og stoðdeildar hafi einungis snúið að því almennt að kanna afstöðu kæranda til fyrirhugaðs flutnings til Grikklands. Kærunefnd tekur fram að flutningur umsækjenda um alþjóðlega vernd sem fengið hafa neikvæða niðurstöðu hér á landi í máli sínu er íþyngjandi ákvörðun og því eðlilegt að umsækjendur séu mótfallnir slíkum flutningi. Þá má sjá af samskiptum stoðdeildar við kæranda að síðasta tilraun til samskipta hennar við kæranda hafi verið þann 11. júní 2021 en líkt og að framan greinir leið 12 mánaða fresturinn í máli kæranda þann 28. ágúst 2021. Af svari stoðdeildar má ráða að ekki hafi verið gerðar frekari tilraunir af hálfu stoðdeildar að undirbúa flutning á kæranda og framkvæmdin því ómarkviss af hálfu stoðdeildar. Kærunefnd telur að líta verði svo á að munnleg almenn yfirlýsing kæranda um að hann vilji ekki snúa aftur til Grikklands eða undirgangast Covid-19 sýnatöku til þess að gera íslenskum stjórnvöldum kleift að flytja hann þangað, geti ekki ein og sér talist vera töf á afgreiðslu málsins.

Með hliðsjón af framangreindu er því ekki grundvöllur fyrir kærunefnd til að ákvarða að tafir á afgreiðslu umsóknar kæranda hafi verið á hans ábyrgð, sbr. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga. Af framangreindu leiðir að skilyrði 2. málsl. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga er uppfyllt og ber að taka umsókn kæranda um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar.

Í ljósi framangreinds er því fallist á að atvik hafi breyst verulega í máli kæranda á þann hátt að hann eigi rétt á endurupptöku á máli sínu, sbr. 1. mgr. 24. gr. stjórnsýslulaga. Það er jafnframt niðurstaða kærunefndar að fella ákvörðun Útlendingastofnunar í máli hans úr gildi. Lagt er fyrir Útlendingastofnun að taka umsókn kæranda um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar á grundvelli 2. málsl. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.


 

Úrskurðarorð:

 

Fallist er á beiðni kæranda um endurupptöku á máli hans.

Ákvörðun Útlendingastofnunar er felld úr gildi og lagt er fyrir Útlendingastofnun að taka mál kæranda til efnismeðferðar.

 

The appellant‘s request for re-examination of the case is granted.

The decision of the Directorate of Immigration is vacated. The Directorate shall examine the merits of the appellant‘s application for international protection in Iceland.

 

Tómas Hrafn Sveinsson

 

 

 

Sindri M. Stephensen                                                Þorbjörg I. Jónsdóttir

 

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum