Hoppa yfir valmynd
24. júlí 2014 Dómsmálaráðuneytið

Lögreglustjórum fækkað úr 15 í 9

Sigríður Björk Guðjónsdóttir verður fyrsta konan sem gegnir embætti lögreglustjóra á höfuðborgarsvæðinu. Embætti lögreglustjóra á landinu verða 9 í stað 15 með nýjum lögum um lögregluumdæmi. Ný lögreglulið njóta styrks af stærri liðsheild, færri stjórnendum og hagkvæmari rekstri.

Hanna Birna Kristjánsdóttir innanríkisráðherra hefur skipað Sigríði Björk Guðjónsdóttur í embætti lögreglustjóra á höfuðborgarsvæðinu, sem þýðir að hún flyst frá embættinu á Suðurnesjum þar sem hún hefur verið frá árinu 2009. Hún var aðstoðarríkislögreglustjóri á árunum 2007-2008, sýslumaður á Ísafirði 2002-2006 og þar áður skattstjóri Vestfjarðaumdæmis.

Sigríður Björk er fyrsta konan sem gegnir embætti lögreglustjóra á höfuðborgarsvæðinu.

Þá hefur ráðherra í kjölfar niðurstöðu sérstakrar valnefndar tilkynnt um skipan í embætti lögreglustjóra í nýjum umdæmum. Samkvæmt nýjum lögum verður lögregluumdæmum fækkað úr 15 í níu og mun breytingin taka gildi um næstu áramót.

Skipan í embætti lögreglustjóra verður sem hér segir:

  • Lögreglustjóri á Suðurlandi: Kjartan Þorkelsson.
  • Lögreglustjóri á Austurlandi: Inger L. Jónsdóttir.
  • Lögreglustjóri á Norðurlandi eystra: Halla Bergþóra Björnsdóttir.
  • Lögreglustjóri á Norðurlandi vestra: Páll Björnsson.
  • Lögreglustjóri á Vesturlandi: Úlfar Lúðvíksson.
  • Lögreglustjóri á höfuðborgarsvæðinu: Sigríður Björk Guðjónsdóttir.
  • Lögreglustjóri á Suðurnesjum: Ólafur Helgi Kjartansson.

Tvö embætti lögreglustjóra verða auglýst á næstu dögum, embætti lögreglustjóra á Vestfjörðum og í Vestmannaeyjum.

Hanna Birna Kristjánsdóttir, innanríkisráðherra:

„Efling löggæslunnar hefur verið eitt af forgangsverkefnum ríkisstjórnarinnar en með þessum breytingum verða til færri en um leið öflugri embætti. Minni yfirbygging, fjölbreyttur og sterkur hópur löggæslufólks, tækniframfarir og bættur búnaður lögreglu stuðlar að því að starfsemi lögreglunnar innan umdæma verði skipulögð með markvissari hætti. Ég býð nýskipaða lögreglustjóra velkomna til starfa og er þess fullviss að þeir muni leggja sitt af mörkum við að tryggja öryggi almennings og öfluga þjónustu á hverjum stað.“

Ráðherra ákveður að höfðu samráði við viðkomandi lögreglustjóra og aðra hagsmunaaðila hvar í umdæminu aðalstöð lögreglustjóra verður. Það verður hlutverk lögreglustjóra að skipuleggja starfsemi lögregluliðanna og jafnframt að ákveða hvaða starfslið hefur aðsetur á aðalstöð og öðrum varðstöðvum. Nú þegar hafa verið birt til kynningar og samráðs umræðuskjöl um umdæmamörk og starfsstöðvar nýrra embætta og hafa ráðuneytinu borist fjölmargar ábendingar og athugasemdir sem farið verður yfir með nýskipuðum lögreglustjórum.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum