Hoppa yfir valmynd
20. janúar 2022 Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið

Mál nr. 378/2021 - Úrskurður

 

Úrskurðarnefnd velferðarmála

Mál nr. 378/2021

Fimmtudaginn 20. janúar 2022

A

gegn

Vinnumálastofnun

Ú R S K U R Ð U R

Mál þetta úrskurða Hólmfríður Birna Guðmundsdóttir lögfræðingur, Agnar Bragi Bragason lögfræðingur og Arnar Kristinsson lögfræðingur.

Með kæru, dags. 26. júlí 2021, kærði A, til úrskurðarnefndar velferðarmála ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 4. maí 2021, um að synja beiðni hans um greiðslu atvinnuleysisbóta.

I.  Málsatvik og málsmeðferð

Með ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 4. maí 2021, var kæranda tilkynnt að beiðni hans um greiðslu atvinnuleysisbóta frá 7. apríl 2021 væri synjað. Kærandi lagði fram kæru hjá úrskurðarnefnd velferðarmála 26. júlí 2021. Með bréfi, dags. 18. ágúst 2021, óskaði úrskurðarnefndin eftir greinargerð Vinnumálastofnunar vegna kærunnar. Með bréfi, dags. 14. september 2021, barst greinargerð Vinnumálastofnunar þar sem fram kom að ranglega hafi verið staðið að ákvörðun í máli kæranda. Því hafi beiðni kæranda verið samþykkt. Með bréfi úrskurðarnefndar, dags. 15. september 2021, var óskað eftir afstöðu kæranda vegna greinargerðar Vinnumálastofnunar. Sú beiðni var ítrekuð með erindi úrskurðarnefndar 7. október 2021 og bárust athugasemdir samdægurs. Í kjölfar þeirra óskaði úrskurðarnefndin eftir upplýsingum frá Vinnumálastofnun um mál kæranda. Svar barst frá Vinnumálastofnun 21. október 2021 og var það sent kæranda 26. október 2021. Óskað var eftir afstöðu kæranda til þeirra upplýsinga og barst svar þann 2. nóvember 2021. Í kjölfarið var kæranda bent á að hafa samband við Vinnumálastofnun vegna málsins. Með erindi úrskurðarnefndar, dags. 15. desember 2021, var á ný óskað eftir afstöðu kæranda vegna kærumálsins. Svar barst ekki. 

II.  Niðurstaða

Kærð er ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 4. maí 2021, um að synja beiðni kæranda um greiðslu atvinnuleysisbóta frá 7. apríl 2021. Í greinargerð Vinnumálastofnunar til úrskurðarnefndarinnar var vísað til þess að ranglega hafi verið staðið að ákvörðun í máli kæranda og því hafi beiðni hans verið samþykkt.

Úrskurðarnefnd velferðarmála kveður upp úrskurði um ágreiningsefni sem kunna að rísa á grundvelli laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar, sbr. 11. gr. laganna. Af gögnum málsins verður ekki ráðið að ágreiningur sé til staðar á milli kæranda og Vinnumálastofnunar. Þar sem enginn ágreiningur er til staðar í máli þessu er kæru vísað frá úrskurðarnefndinni.


 

Ú R S K U R Ð A R O R Ð

Kæru A er vísað frá úrskurðarnefnd velferðarmála.

F.h. úrskurðarnefndar velferðarmála

Hólmfríður Birna Guðmundsdóttir

 

 

 

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum