Hoppa yfir valmynd
20. ágúst 2020 Dómsmálaráðuneytið

Nr. 281/2020 Úrskurður

KÆRUNEFND ÚTLENDINGAMÁLA

Þann 20. ágúst 2020 er kveðinn upp svohljóðandi

úrskurður nr. 281/2020

í stjórnsýslumáli nr. KNU20060011

Kæra […]

á ákvörðun

Útlendingastofnunar

 

I. Kröfur, kærufrestir og kæruheimild

Þann 9. júní 2020 kærði einstaklingur er kveðst heita […], vera fæddur […] og vera ríkisborgari […] (hér eftir nefndur kærandi) ákvörðun Útlendingastofnunar, dags. 20. maí 2020, um að taka ekki til efnismeðferðar umsókn hans um alþjóðlega vernd á Íslandi og vísa honum frá landinu.

Í fyrsta lagi krefst kærandi þess að hin kærða ákvörðun verði felld úr gildi og málinu verði vísað til nýrrar meðferðar hjá Útlendingastofnun. Í öðru lagi krefst kærandi þess að ákvörðun Útlendingastofnunar verði felld úr gildi og að stofnuninni verði gert að taka umsókn hans um alþjóðlega vernd til efnislegrar meðferðar með vísan til 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga nr. 80/2016 og 3. mgr. 36. gr., sbr. 42. gr. sömu laga.

Fyrrgreind ákvörðun er kærð á grundvelli 7. gr. laga um útlendinga og barst kæran fyrir lok kærufrests.

II. Málsmeðferð

Kærandi lagði fram umsókn um alþjóðlega vernd á Íslandi þann 5. febrúar 2020. Við leit að fingraförum kæranda í Eurodac gagnagrunninum, þann sama dag, kom í ljós að fingraför hans höfðu verið skráð í grunninn m.a. af yfirvöldum í Rúmeníu. Við umsókn framvísaði kærandi ferðaskilríkjum útgefnum af rúmenskum yfirvöldum með gildistíma til 4. júlí 2021. Þá framvísaði kærandi einnig rúmensku dvalarleyfisskírteini með gildistíma til 3. júlí 2022. Kærandi kom til viðtals hjá Útlendingastofnun, m.a. þann 9. mars 2020, ásamt löglærðum talsmanni sínum. Útlendingastofnun ákvað þann 20. maí 2020 að taka ekki umsókn kæranda um alþjóðlega vernd hér á landi til efnismeðferðar og að honum skyldi vísað frá landinu. Ákvörðunin var birt fyrir kæranda þann 26. maí 2020 og kærði kærandi ákvörðunina þann 9. júní 2020 til kærunefndar útlendingamála. Greinargerð kæranda barst kærunefnd 19. júní 2020 ásamt fylgigögnum. Viðbótargögn bárust þann 15. júlí og 19. ágúst 2020.

III. Ákvörðun Útlendingastofnunar

Í ákvörðun Útlendingastofnunar kom fram að kæranda hefði verið veitt alþjóðleg vernd í Rúmeníu. Umsókn hans um alþjóðlega vernd yrði því ekki tekin til efnismeðferðar, sbr. a-lið 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga, enda fæli flutningur kæranda til Rúmeníu ekki í sér brot gegn 42. gr. laga um útlendinga, sbr. jafnframt 3. mgr. 36. gr. laganna. Þá taldi Útlendingastofnun að kærandi hefði ekki slík tengsl við Ísland að nærtækast væri að hann fengi hér vernd eða að sérstakar ástæður mæltu annars með því að taka bæri umsókn kæranda til efnismeðferðar, sbr. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga. Kæranda var vísað frá landinu, sbr. c-lið 1. mgr. 106. gr. laga um útlendinga, og skyldi hann fluttur til Rúmeníu.Var kæranda veittur 25 daga frestur til að yfirgefa landið og athygli hans vakin á því að yfirgæfi hann ekki landið innan frests væri heimilt að brottvísa honum. Í brottvísun fælist bann við komu til landsins síðar og endurkomubann skyldi að jafnaði ekki gilda skemur en tvö ár.

IV. Málsástæður og rök kæranda

Í greinargerð vísar kærandi í málavaxtalýsingu í greinargerð hans til Útlendingastofnunar, dags. 23. mars 2020, en þar kemur m.a. fram að kærandi hafi greint frá því í viðtali hjá Útlendingastofnun að hann geti ekki farið aftur til Rúmeníu. Hann sé þakklátur fyrir að hafa hlotið þar vernd en í Rúmeníu hafi hann engin réttindi. Eftir að hann hafi fengið dvalarleyfi hafi honum verið gert að yfirgefa flóttamannabúðirnar. Á leið út úr flóttamannabúðunum hafi lögreglumenn tekið tösku hans, sturtað öllu úr henni og sagt honum að tína eigur sínar aftur upp. Honum hafi hvorki verið útvegað húsnæði né framfærsla. Þá hafi hann ekki getað leitað sér vinnu þar sem hann kynni ekki tungumálið. Hann hafi keypt sér flugmiða og yfirgefið Rúmeníu. Kærandi hafi jafnframt greint frá því að hann hafi fyrst verið í Grikklandi en síðar sótt um að komast til annars ríkis sem gæti veitt honum vernd. Honum hafi verið lofað góðu lífi, heilbrigðisþjónustu og að réttindi hans yrðu virt en ekki hafi verið staðið við það loforð. Greindi kærandi frá því að honum hafi verið lofað að þegar hann kæmi til Rúmeníu yrði hann sendur í aðgerð vegna öndunarerfiðleika, en af þeirri aðgerð hafi ekki orðið. Hann hafi aldrei verið skoðaður af lækni í Rúmeníu og hann hafi ekki verið sjúkratryggður. Þá hafi hann leitað til hjálparsamtaka en honum hafi verið tjáð að hann hefði engin réttindi. Kærandi hafi greint frá því að rúmensk yfirvöld ættu við mikinn fjárhagsvanda að stríða auk þess sem þar ríki mikil spilling. Þá hafi kærandi greint frá því að hann óttist njósnara þar í landi sem vinni fyrir […] stjórnvöld en allir þeir sem hafi orðið vitni að fjöldamorðum í […] líkt og hann eigi á að hættu að vera sóttir af […] yfirvöldum og fluttir heim.

Um aðstæður viðurkennds flóttafólks í Rúmeníu vísar kærandi í greinargerð sína til Útlendingastofnunar, dags. 23. mars 2020, en þar kemur m.a. fram að þegar einstaklingur hafi hlotið alþjóðlega vernd eða viðbótarvernd í Rúmeníu hafi hann heimild til að dvelja í allt að 12 mánuði í flóttamannabúðum á meðan hann finni sér annað húsnæði. Samkvæmt rúmenskum lögum eigi þessir einstaklingar sama rétt til félagslegs húsnæðis og rúmenskir ríkisborgarar. Þrátt fyrir framangreint sé raunin sú að ekki sé mikið um félagsleg húsnæði í boði fyrir þessa einstaklinga. Þá sé leiguverð í Rúmeníu verulega hátt auk þess sem leigusalar séu tregir til að leigja íbúðir sínar út til útlendinga. Viðurkennt flóttafólk í Rúmeníu eigi að hafa sama aðgang að atvinnumarkaði landsins og rúmenskir ríkisborgarar en í reynd sé aðgengi að atvinnumarkaði háð efnahagslegum aðstæðum á hverju svæði fyrir sig. Í Búkarest hafi flóttafólk átt í erfiðleikum með að komast inn á atvinnumarkaðinn, þá sérstaklega þeir einstaklingar sem hafi ekki meðferðis próf- eða námsskírteini. Þá hafi tungumálaörðugleikar haft áhrif á aðgang þeirra að atvinnumarkaði landsins. Viðurkennt flóttafólk eigi að hafa sama aðgang að heilbrigðiskerfinu í Rúmeníu og rúmenskir ríkisborgarar. Þrátt fyrir framangreint hafi flóttafólk átt erfitt með að verða sér úti um heimilislækni. Þá hafi vandamál komið upp varðandi sjúkratryggingar og sé einstaklingum gert skylt að greiða sjúkratryggingar til ríkisins í 12 mánuði en þær greiðslur jafngildi sexföldum meðalmánaðarlaunum. Jafnframt glími viðurkennt flóttafólk við erfiðleika við að aðlagast rúmensku samfélagi, s.s. hvað varði umsóknir um ríkisborgararétt, aðgang að sértækri starfsþjálfun og ýmsum ráðgjöfum. Þá sé mikið um áreiti og glæpi gegn flótta- og farandfólki en yfirvöld í Rúmeníu neiti ítrekað að rannsaka atvik af því tagi sem hatursglæpi.

Krafa kæranda er í fyrsta lagi sú að hin kærða ákvörðun verði felld úr gildi og málinu vísað til nýrrar meðferðar hjá Útlendingastofnun. Telur kærandi að engin rannsókn á andlegri heilsu hans hafi farið fram. Vísar kærandi til rannsóknarreglu stjórnsýsluréttar sem lögfest sé í 10. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993 og áréttuð í 2. mgr. 23. gr. laga um útlendinga. Þá vísar kærandi til þess að samkvæmt 1. mgr. 25. gr. laga um útlendinga skuli Útlendingastofnun tryggja eins fljótt og kostur er, að fram fari með aðstoð viðeigandi sérfræðinga, einstaklingsbundin greining á því hvort umsækjandi um alþjóðlega vernd teljist vera í sérstaklega viðkvæmri stöðu, sbr. 6. tölul. 3. gr. sömu laga. Vísar kærandi til athugasemda í frumvarpi að núgildandi lögum um útlendinga en þar komi fram að nauðsynlegt sé að snemma á málsmeðferðinni fari fram heildstætt mat á aðstæðum hvers og eins umsækjanda um alþjóðlega vernd. Eðli máls samkvæmt þurfi slíkt mat að fara fram áður en Útlendingastofnun taki ákvörðun. Vísar kærandi til þess að hann hafi gert kröfu um það í greinargerð til Útlendingastofnunar að stofnunin myndi hlutast til um öflun sálfræðimats áður en ákvörðun yrði tekin í málinu. Telur kærandi rannsókn Útlendingastofnunar á andlegri heilsu hans ekki fullnægjandi en ekki hafi verið lagt mat á þær niðurstöður sem hafi komið út úr skimunarlista sem lagður hafi verið fyrir kæranda hjá stofnuninni. Telur kærandi að niðurstaða skimunarinnar hafi gefið sterka vísbendingu um að hann sé illa á sig kominn andlega og hafi þörf fyrir frekari aðstoð og meðferð. Þá telur kærandi að Útlendingastofnun hafi ekki lagt mat á hugsanleg áhrif þeirra atburða sem hann hafi orðið fyrir og að ekki hafi farið fram einstaklingsbundið mat á öllum aðstæðum hans með tilliti til þeirra málsástæðna sem fram hafi komið í viðtali og í greinargerð til stofnunarinnar. Telur kærandi að ekki sé hægt á kærustigi að bæta úr þeim ágalla sem tengist skorti á rannsókn á því hvaða áhrif þeir atburðir sem hann hafi orðið fyrir hafi haft á hann og hvort og þá hvaða áhrif þeir hefðu á niðurstöðu í máli hans.

Kærandi krefst þess í öðru lagi að mál hans verði tekið til efnismeðferðar á grundvelli þess að uppi séu sérstakar ástæður í skilningi 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga. Vísar kærandi til erfiðrar lífsbaráttu sinnar og algjörs réttindaleysis í Rúmeníu. Þá fjallar kærandi almennt um og gerir grein fyrir inntaki og túlkun á 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga. Kærandi gerir athugasemd við beitingu reglugerðar nr. 276/2018, um breytingu á reglugerð nr. 540/2017 um útlendinga, en hann telji reglugerðina skorta lagastoð. Auk þess bendir kærandi á að þau viðmið sem sett séu fram í ákvæði 32. gr. a reglugerðarinnar séu nefnd í dæmaskyni og því sé þar ekki að finna tæmandi talningu á þeim þáttum sem taka beri tillit til við mat á því hvort sérstakar ástæður séu til staðar. Varðandi mat á því hvenær einstaklingur teljist eiga erfitt uppdráttar í viðtökuríki vísar kærandi til úrskurða kærunefndar í málum KNU17080037 og KNU17070049 frá 10. október 2017 og úrskurða KNU17080006 og KNU17070041 frá 24. október 2017. Telur kærandi fullvíst að hann verði fyrir alvarlegri mismunun í Rúmeníu og að aðstæður hans yrðu verulega síðri en staða almennings þar í landi. Þá vísar kærandi til þess að aðgangur flóttafólks að heilbrigðiskerfinu í Rúmeníu sé erfiðleikum bundinn og að allt bendi til þess að hann muni ekki fá nauðsynleg lyf og aðstoð vegna andlegra og líkamlegra kvilla sinna í Rúmeníu. Telur kærandi að með tilliti til frásagnar hans af fyrri dvöl í Rúmeníu, algjöru réttindaleysi, engum aðgangi að heilbrigðiskerfi, atvinnumarkaði, tungumálakennslu og mismununar í garð flóttafólks, sem eigi sér stoð í heimildum um aðstæður einstaklinga sem hlotið hafa alþjóðlega vernd þar í landi, sé óumdeilt að sérstakar ástæður séu uppi í máli hans, sbr. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.

Þá telur kærandi margt benda til þess að hann sé einstaklingur í sérstaklega viðkvæmri stöðu í skilningi 6. tölul. 3. gr. laga um útlendinga, en hann telji verulega hafa skort á rannsókn Útlendingastofnunar á andlegri heilsu hans. Kærandi gerir þá kröfu, ef kærunefnd kemst að þeirri niðurstöðu að unnt sé að bæta úr þeim ágalla sem kærandi telur að hafi verið á rannsókn Útlendingastofnunar, að nefndin hlutist til um að fram fari sálfræðileg greining á andlegri heilsu hans.

Krafa kæranda er í þriðja lagi reist á því að ótækt sé að beita heimild a-liðar 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga þar sem kærandi njóti verndar 1. mgr. 42. gr. laga um útlendinga sem mæli fyrir um grundvallarreglu þjóðaréttar um non-refoulement. Vísar kærandi til þess að grundvallarreglan um non- refoulement sé hornsteinn í flóttamannarétti og feli í sér bann við brottvísun eða endursendingu einstaklinga til ríkja þar sem líf þeirra eða frelsi kunni að vera í hættu. Telur kærandi að aðstæður flóttafólks í Rúmeníu séu svo slæmar að þær jafnist á við ómannúðlega og vanvirðandi meðferð í skilningi 1. mgr. 42. gr. laga um útlendinga sem og 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu. Telur kærandi að endursending hans til Rúmeníu teljist vera brot á 2. mgr. 42. gr. laga um útlendinga og brot gegn grundvallarreglu þjóðarréttar um non-refoulement. Þar að auki telur kærandi að ákvörðun um að senda hann til Rúmeníu brjóti í bága við 1. mgr. 68. gr. stjórnarskrá lýðveldisins Íslands, 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu, 7. gr. alþjóðasamnings um borgaraleg og stjórnmálaleg réttindi og 33. gr. flóttamannasamnings Sameinuðu þjóðanna.

V. Niðurstaða kærunefndar útlendingamála

Ákvæði 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga

Í 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga er mælt fyrir um að umsókn um alþjóðlega vernd skuli tekin til efnismeðferðar nema undantekningar sem greindar eru í a-, b- og c-liðum ákvæðisins eigi við. Samkvæmt a-lið 1. mgr. 36. gr. er stjórnvöldum heimilt að synja því að taka umsókn um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar hafi umsækjandi komið til landsins að eigin frumkvæði eftir að hafa hlotið virka alþjóðlega vernd eða annars konar vernd í öðru ríki eða ef hann, eftir að hafa dvalist í ríki þar sem hann þurfti ekki að sæta ofsóknum, gat óskað eftir því að fá viðurkennda stöðu sem flóttamaður og, ef hann var talinn flóttamaður, fengið vernd í samræmi við alþjóðasamning um stöðu flóttamanna.

Samkvæmt fyrirliggjandi gögnum málsins er kærandi handhafi alþjóðlegrar verndar í Rúmeníu og hefur gilt dvalarleyfi þar í landi til 3. júlí 2022. Að mati kærunefndar felur sú vernd sem kærandi nýtur í Rúmeníu í sér virka alþjóðlega vernd í skilningi a-liðar 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.

Aðstæður í Rúmeníu

Kærunefnd útlendingamála hefur lagt mat á aðstæður í Rúmeníu, m.a. með hliðsjón af eftirfarandi skýrslum og gögnum:

  • 2019 Human Rights Report – Romania (United States Department of State, 11. mars 2020);
  • Human Rights in Europe – Review of 2019 (Amnesty International, 16. apríl 2020);
  • Amnesty International Report 2017/18 – Romania (Amnesty International, 22. febrúar 2018);
  • Asylum Information Database, Country Report: Romania (European Council on Refugees and Exiles, 29. apríl 2020);
  • UNHCR Submission on Romania: 29th UPR session (United Nations High Commissioner for Refugees, janúar 2018);
  • Concluding observations on the fifth periodic report of Romania (United Nations Human Rights Committee, 11. desember 2017);
  • Concluding observations on the second periodic report of Romania (United Nations Committee against Torture, 5. júní 2015);
  • ECRI Report on Romania (European Commission against Racism and Intolerance, 3. júní 2014);
  • Freedom in the World 2019 – Romania (Freedom House, 4. febrúar 2019);
  • Upplýsingasíða Johns Hopkins háskólans (https://coronavirus.jhu.edu/map.html, sótt 20. ágúst 2020),
  • Upplýsingasíða Sóttvarnarstofnunar Evrópu (https://www.ecdc.europa.eu/en/cases-2019-ncov-eueea, sótt 20. ágúst 2020),
  • Upplýsingar af vefsíðu eftirlitsstofnunar útlendingamála í Rúmeníu (http://www.igi.mai.gov.ro, sótt 1. júlí 2020);
  • Upplýsingar af vefsíðu Flóttamannaráðs Rúmeníu (http://cnrr.ro, sótt 7. júlí 2020) og
  • Upplýsingasíða vegna Covid-19 faraldursins í Rúmeníu (http://stirioficiale.ro, sótt 6. júlí 2020).

Í framangreindri skýrslu European Council on Refugees and Exciles (ECRE) kemur fram að einstaklingar sem hljóta réttarstöðu flóttamanns í Rúmeníu fái útgefið dvalaleyfi í landinu í þrjú ár. Þeir einstaklingar sem hljóta viðbótarvernd fá útgefið dvalaleyfi til tveggja ára. Ábyrgð á útgáfu dvalarleyfa liggur hjá útlendingayfirvöldum en til þess að fá útgefið dvalarleyfi, í formi skírteinis, þurfa einstaklingar að sýna fram á löglegt heimilisfang í landinu. Þrátt fyrir að það eigi ekki að vera erfiðleikum bundið að fá útgefið dvalarleyfi hefur fulltrúi kirkjufélagsins AIDRom lýst áhyggjum yfir að einstaklingar eigi í erfiðleikum með að fá útgefna leigusamninga sem uppfylli skilyrði yfirvalda. Leigusalar vilji ekki lýsa því yfir við yfirvöld að þeir leigi út húsnæði sín. Áður en fyrrgreind þrjú eða tvö ár líða geta handhafar alþjóðlegrar verndar fyllt út beiðni og endurnýjað dvalarleyfi sitt.

Samkvæmt framangreindri skýrslu ECRE geta handhafar alþjóðlegrar verndar sótt um aðstoð hjá útlendingayfirvöldum við aðlögun að samfélaginu í Rúmeníu. Sækja verður um slíka aðstoð innan þriggja mánaða frá því að alþjóðleg vernd var veitt. Þátttaka handahafa alþjóðlegrar verndar í aðlögunarferli á vegum yfirvalda skiptir sköpum varðandi aðgengi þeirra að húsnæðisaðstoð og félagslegri þjónustu. Það sem boðið er upp á í aðlögunarferlinu getur samanstaðið af ráðgjöf, fræðslu um rúmenskt samfélag og tungumálakennslu. Til viðbótar við fyrrgreint aðlögunarferli hafa ýmis verkefni verið sett á laggirnar í þeim tilgangi að auðvelda handhöfum alþjóðlegrar verndar og öðrum innflytjendum aðlögun að rúmensku samfélagi.

Í framangreindri skýrslu ECRE kemur fram að einstaklingar geti dvalið áfram í móttökumiðstöðvum á vegum rúmenskra yfirvalda í allt að 12 mánuði frá veitingu alþjóðlegrar verndar. Þetta er þó með þeim skilyrðum að einstaklingar nýti sér úrræði rúmenskra yfirvalda um aðlögun og þeir hafi ekki næg fjárráð til þess að verða sér úti um húsnæði sjálfir. Samkvæmt rúmenskum lögum eiga einstaklingar sem hlotið hafa alþjóðlega vernd sama rétt til félagslegs húsnæðis og rúmenskir ríkisborgarar. Staðan sé samt sem áður sú að skortur sé á félagslegu húsnæði og biðlistar eftir húsnæði geti verið langir. Ef rúmensk yfirvöld geta ekki útvegað félagslegt húsnæði eiga handhafar alþjóðlegrar verndar rétt á að leigja húsnæði með fjárhagstuðningi sem nemur helmingi af leiguverði þar til félagslegt húsnæði finnst, en þetta úrræði gildir að hámarki í eitt ár. Samkvæmt framangreindri skýrslu ECRE hafa handhafar alþjóðlegrar verndar sama aðgang að atvinnumarkaði landsins og ríkisborgarar þess. Aðgengi að atvinnumarkaði getur þó verið háð efnahagslegum aðstæðum í hverri borg eða á hverju svæði fyrir sig. Þá getur reynst erfitt að finna atvinnu vegna tungumálaerfiðleika og í einhverjum tilfellum vegna vöntunar á prófskírteinum. Jafnframt eiga þeir einstaklingar sem hlotið hafa alþjóðlega vernd og geta ekki framfleytt sér sjálfir rétt á fjárhagslegum stuðningi frá rúmenskum yfirvöldum í allt að 12 mánuði. Til þess að eiga rétt á fjárhagslegum stuðningi þurfa einstaklingar að hafa skráð sig í fyrrgreint aðlögunarferli hjá rúmenskum yfirvöldum.

Samkvæmt framangreindri skýrslu ECRE hafa einstaklingar sem njóta alþjóðlegrar verndar í Rúmeníu sams konar aðgang að heilbrigðiskerfi landsins og rúmenskir ríkisborgarar. Vandamál hafa komið upp vegna vanþekkingar einstaklinga á sjúkratryggingarkerfinu og hafa frjáls félagasamtök gegnt lykilhlutverki í að aðstoða handhafa alþjóðlegrar verndar með því að upplýsa þá um réttindi þeirra. Þá hafi hagsmunaaðilar vakið athygli á almennt slæmum aðstæðum í ríkisrekna heilbrigðiskerfinu og hafa einstaklingar sem hlotið hafa alþjóðlega vernd í ríkara mæli leitað eftir heilbrigðisþjónustu á einkareknum læknastofum.

Í skýrslu utanríkisráðuneytis Bandaríkjanna kemur fram að Flóttamannastofnun Sameinuðu þjóðanna hafi greint frá tilvikum þar sem flótta- og farandfólk í Rúmeníu hafi sætt áreiti og verið fórnarlömb glæpa. Ekki séu öll slík atvik tilkynnt sökum ótta fórnarlamba, skorts á upplýsingum, ófullnægjandi stuðningsþjónustu og lélegs bótakerfis. Rúmensk yfirvöld hafa unnið með Flóttamannastofnun Sameinuðu þjóðanna og öðrum mannúðarsamtökum við að aðstoða og vernda flóttamenn, umsækjendur um alþjóðlega vernd, ríkisfangslausa einstaklinga og aðra einstaklinga sem mögulega þarfnast alþjóðlegrar verndar.

Einstaklingsbundnar aðstæður kæranda

Samkvæmt gögnum málsins er kærandi […] ára gamall karlmaður. Í viðtölum hjá Útlendingastofnun greindi kærandi m.a. frá því að hafa orðið fyrir […] í […] og hann glími við vandamál í öndunarfærum vegna þess. Hann hafi farið í þrjár aðgerðir á hálsi í Belgíu. Þá greindi kærandi frá því að honum líði ekki vel, hann sé þunglyndur og eigi erfitt með svefn. Hann hafi verið beittur ofbeldi í Þýskalandi og hann sé með ör á höfði og höndum eftir það.

Við meðferð málsins hefur kærandi lagt fram gögn um heilsufar frá Göngudeild sóttvarna, Heilbrigðisstofnun Suðurnesja og Domus Medica. Þá hefur kærandi lagt fram gögn frá Belgíu er varða aðgerðir á raddböndum. Í framlögðum gögnum frá Göngudeild sóttvarna, dags. 5. mars 2020 til 9. mars 2020, kemur m.a. fram að kærandi sé almennt heilbrigður maður. Hann hafi m.a. greint frá því að hafa farið í aðgerð á hálsi eftir [...] í heimalandi. Hann hafi jafnframt greint frá því að hafa verið með stíflað nef í 12 ár og hann sé alltaf rámur. Þá fái hann martraðir og glími við vanlíðan eftir […]. Í framlögðum gögnum frá Heilbrigðisstofnun Suðurnesja, dags. 13. mars 2020 til 8. júlí 2020, kemur m.a. fram að kærandi hafi kvartað undan verk í koki, óþægindum við kyngingar og andþyngslum á næturnar. Hann hafi greint frá því að hafa farið þrisvar sinnum í aðgerð vegna hnúts á raddböndum.

Í greinargerð kæranda er óskað eftir því að hann verði látinn undirgangast sálfræðimat. Kæranda var leiðbeint um framlagningu heilsufarsgagna við málsmeðferð hjá Útlendingastofnun, en í viðtali hans var honum leiðbeint um mikilvægi öflunar gagna um heilsufar, sem hann telji hafa þýðingu fyrir mál sitt, og um að afla skriflegra upplýsinga og leggja fram við meðferð máls hans hjá Útlendingastofnun. Þá var kæranda leiðbeint í viðtali hjá Útlendingastofnun, dags. 12. febrúar 2020, um rétt sinn til þess að óska eftir viðtali við sálfræðing. Með tölvupósti, dags. 7. júlí 2020, leiðbeindi kærunefnd kæranda um framlagningu frekari heilsufarsgagna í málinu. Kærandi lagði þá fram sjúkraskrá kæranda frá háls-, nef- og eyrnalækni á Domus Medica, dags. 6. júlí 2020, en úr skránni má lesa að það þurfi að fjarlægja blöðrur af raddböndum. Þar sem kærandi hafði nefnt að hann glímdi við veikindi í öndunarfærum sendi kærunefnd tölvupóst til kæranda þann 24. júlí 2020 þar sem honum var leiðbeint um að leggja fram mat læknis á því hvort veikindi hans leiddu til þess að hann teldist í sérstökum áhættuhópi vegna Covid-19 faraldursins. Þessi beiðni var ítrekuð með tölvupóstum, dags. 31. júlí og 7. ágúst 2020. Engin slík gögn bárust. Í ljósi þess að fullyrðingar kæranda um veikindi í öndunarfærum eru ekki studdar öðrum gögnum er það mat kærunefndar að mál kæranda sé nægjanlega upplýst er varðar heilsufar kæranda og aðra þætti varðandi einstaklingsbundnar aðstæður hans. Þá er ekkert sem bendir til þess að frekari gögn um heilsufar hans geti haft áhrif á niðurstöðu í málinu. Að teknu tilliti til þeirra viðmiða sem 32. gr. a reglugerðar um útlendinga nr. 540/2017 setur fram í dæmaskyni og heildarmats á einstaklingsbundum aðstæðum kæranda telur kærunefnd jafnframt að ekki sé þörf á að afla sálfræðimats.

Ákvæði 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga

Í 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga kemur fram að ef svo standi á sem greini í 1. mgr. skuli þó taka umsókn um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar ef útlendingurinn hefur slík sérstök tengsl við landið að nærtækast sé að hann fái hér vernd eða ef sérstakar ástæður mæli annars með því. Í 32. gr. a og 32. gr. b reglugerðar um útlendinga nr. 540/2017, sbr. 4. mgr. 36. gr. laganna, koma fram viðmið varðandi mat á því hvort taka skuli umsókn um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar vegna sérstakra tengsla eða ef sérstakar ástæður mæla með því. Þá segir í 2. mgr. 36. gr. laganna að ef meira en 12 mánuðir hafa liðið frá því að umsókn um alþjóðlega vernd barst fyrst íslenskum stjórnvöldum og tafir á afgreiðslu hennar eru ekki á ábyrgð umsækjanda sjálfs skal taka hana til efnismeðferðar.

Einstaklingsbundnum aðstæðum kæranda hefur þegar verið lýst, en m.a. hafa heilsufarsvandamál hans verið rakin. Telur kærunefnd að aðstæður kæranda séu ekki þess eðlis að þær teljist til sérstakra ástæðna í skilningi 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga eða samkvæmt þeim viðmiðum sem talin eru upp í dæmaskyni í 32. gr. a reglugerðar um útlendinga. Í því sambandi hefur nefndin m.a. litið til þess að heilsufar kæranda sé ekki með þeim hætti að hann teljist glíma við mikil og alvarleg veikindi, s.s. skyndilegan og lífshættulegan sjúkdóm og meðferð við honum sé aðgengileg hér á landi en ekki í viðtökuríki, eins og segir í 2. mgr. 32. gr. a reglugerðarinnar. Þá telur nefndin að heilbrigðisaðstæður kæranda geti ekki talist til ástæðna sem séu svo einstaklingsbundnar og sérstakar að ekki verði framhjá þeim litið, sbr. 3. mgr. sömu greinar.

Í ljósi framangreindra upplýsinga um aðstæður í Rúmeníu áréttar kærunefnd að ekki séu forsendur til annars en að leggja til grundvallar að kærandi geti leitað sér fullnægjandi og aðgengilegrar þjónustu þar í landi í samræmi við þarfir sínar, en eins og áður hefur verið rakið eiga einstaklingar sem hlotið hafa alþjóðlega vernd í Rúmeníu að lögum sambærilegan rétt á heilbrigðisþjónustu og ríkisborgarar Rúmeníu þó að þeir þurfi í einhverjum tilvikum að yfirstíga ákveðnar hindranir til að nýta rétt sinn.

Þá telur kærunefnd að gögn málsins beri ekki með sér að kærandi muni eiga erfitt uppdráttar í viðtökuríki vegna alvarlegrar mismununar eða að hann geti af sömu ástæðu vænst þess að staða hans verði verulega síðri en staða almennings í viðtökuríki, sbr. áðurnefnd viðmið í 32. gr. a reglugerðar um útlendinga. Kærandi hefur m.a. borið fyrir sig að sérstakar ástæður séu fyrir hendi í máli hans þar sem hann hafi ekki fengið félagslega framfærslu eða atvinnu í Rúmeníu. Þá óttist hann njósnara þar í landi sem vinni fyrir […] yfirvöld. Í framangreindum skýrslum og gögnum um aðstæður í Rúmeníu kemur fram að einstaklingar með alþjóðlega vernd þar í landi hafi heimild til að stunda atvinnu og eiga rétt á framfærslu í 12 mánuði að ákveðnum skilyrðum uppfylltum. Þótt skýrslur um aðstæður í Rúmeníu bendi til þess að aðstæður einstaklinga sem njóta alþjóðlegrar verndar þar séu að einhverju leyti lakari en aðstæður þeirra hér á landi, m.a. m.t.t. inntaks félagslegrar aðstoðar og aðgangs að félagslegum húsnæðisúrræðum, er það mat nefndarinnar að almennar aðstæður einstaklinga sem njóta alþjóðlegrar verndar í Rúmeníu séu ekki þess eðlis að þær, einar og sér, teljist til sérstakra ástæðna. Í því sambandi hefur nefndin jafnframt litið til þess sem fram kemur í 32. gr. a reglugerðar um útlendinga að efnahagslegar ástæður geti ekki talist til sérstakra ástæðna. Þá er það mat kærunefndar að aðstæður kæranda séu ekki slíkar að hann geti ekki borið sig eftir þeirri þjónustu sem hann á að lögum rétt á og þarf á að halda. Þá verður ráðið af framangreindum gögnum að kærandi getur leitað til lögregluyfirvalda eða annarra þar til bærra yfirvalda óttist hann um öryggi sitt þar í landi.

Við mat á því hvort sérstakar ástæður mæli með því að umsókn kæranda hljóti efnismeðferð hér á landi hefur kærunefnd litið til þeirra aðstæðna sem hafa verið og eru uppi vegna Covid-19 faraldursins. Fjölmörg ríki hafa gripið til umfangsmikilla aðgerða til þess að sporna gegn útbreiðslu veirunnar. Hafa aðgerðirnar m.a falist í ferðatakmörkunum og ferðabönnum. Í því sambandi hafa mörg ríki sett á ferðatakmarkanir og mörg hver á einhverjum tímapunkti lokað fyrir endursendingar, bæði einstaklinga með alþjóðlega vernd og á grundvelli Dyflinnarsamstarfsins og liggur ekki fyrir hvenær endursendingar muni hefjast að nýju. Var það m.a. gert hér á landi yfir ákveðið tímabil en óvissa ríkir um það hvenær framkvæmd endursendinga verði komin í sama horf og áður en Covid-19 faraldurinn skall á. Þá gætu íslensk stjórnvöld lokað landamærum hér á landi með skömmum fyrirvara ef ske kynni að faraldurinn taki uppsveiflu. Yfirvöld í Rúmeníu hafa gripið til umfangsmikilla aðgerða til þess að sporna við útbreiðslu veirunnar, m.a. með lokun landamæra, einangrun og sóttkví vissra einstaklinga, samkomubanni auk þess sem skólahald lagðist af. Á vefsíðu eftirlitsstofnunar útlendingamála í Rúmeníu kemur fram að ýmsar takmarkanir séu á starfsemi stofnunarinnar tímabundið. Til dæmis hefur útgáfa dvalarleyfisskírteina og ferðaskilríkja verið stöðvuð tímabundið en dvalarleyfi einstaklinga með alþjóðlega vernd sem renna út á meðan fá sjálfkrafa lengri gildistíma. Kærunefnd hefur ekki forsendur til annars en að líta svo á að þær takmarkanir sem við líði eru vegna Covid-19 faraldursins séu tímabundnar. Aflétting vissra takmarkana er hafin í Rúmeníu og hafa rúmensk yfirvöld t.a.m. gefið út lista ríkja þaðan sem einstaklingar, svo lengi sem þeir sýna engin einkenni Covid-19, geta komið til Rúmeníu án þess að þurfa sæta einangrun eða sóttkví. Ísland er meðal þeirra ríkja.

Af upplýsingasíðu Johns Hopkins háskólans í Bandaríkjunum og vefsíðu Sóttvarnarstofnunar Evrópu má ráða að viðtökuríkið glími nú við nokkurn vanda við að ná niðurlögum Covid-19 faraldursins. Að mati kærunefndar bendir ekkert til þess að það ástand sem nú ríki, sem kærunefnd hefur ekki forsendur til að telja annað en tímabundið, komi til með að hafa teljandi áhrif á stöðu kæranda þar í landi þegar takmörkunum verður aflétt.

Þá lítur kærunefnd einnig til þess að skv. 2. mgr. 103. gr. laga um útlendinga er Útlendingastofnun heimilt að fresta flutningi á umsækjanda ef það telst nauðsynlegt vegna sérstakra aðstæðna hans eða ómögulegt er að framkvæma ákvörðun að svo stöddu.

Er það mat kærunefndar að tímabundnar takmarkanir á endursendingum til Rúmeníu geti ekki, eins og hér stendur á, leitt til þess að sérstakar ástæður mæli með því að umsókn kæranda verði tekin til efnismeðferðar hér á landi, sbr. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga. Í því sambandi hefur kærunefnd sérstaklega litið til sterkra innviða viðtökuríkisins.

Þá er það jafnframt mat kærunefndar að málsástæður kæranda að öðru leyti verði ekki taldar til sérstakra ástæðna í skilningi 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.

Vegna tilvísunar í greinargerð kæranda til úrskurða kærunefndar í málum KNU17080037 og KNU17070049 frá 10. október 2017 og úrskurða KNU17080006 og KNU17070041 frá 24. október 2017, tekur kærunefnd fram að ekki sé hægt að jafna stöðu kæranda í þessu máli við stöðu kærenda í framangreindum úrskurðum enda sé ekki um sömu viðtökuríki að ræða auk þess sem aðstæður þeirra séu einnig ólíkar að öðru leyti.

Að teknu tilliti til einstaklingsbundinna aðstæðna kæranda og á grundvelli heildarmats á áhrifum Covid-19 faraldursins á aðstæður hans er það mat kærunefndar að ekki séu fyrir hendi sérstakar ástæður sem mæli með því að mál hans verði tekið til efnismeðferðar hér á landi, sbr. 2 mgr. 36. gr. laga um útlendinga.

Kærandi kvaðst í viðtali hjá Útlendingastofnun þann 9. mars 2020 ekki hafa sérstök tengsl við Ísland. Þar að auki er ekkert í gögnum málsins sem bendir til þess að kærandi hafi slík tengsl við landið að beita beri ákvæði 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.

Þá telur kærunefnd ljóst að síðari málsliður 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga eigi ekki við í máli kæranda þar sem ekki eru liðnir 12 mánuðir frá því að kærandi sótti um alþjóðlega vernd hér á landi, en hann lagði fram umsókn sína þann 5. febrúar 2020.

Ákvæði 3. mgr. 36. gr. laga um útlendinga

Í 3. mgr. 36. gr. laganna kemur fram að ef beiting 1. mgr. myndi leiða til þess að brotið væri gegn 42. gr., t.d. vegna aðstæðna í því ríki sem senda á umsækjanda til, skuli taka umsókn til efnismeðferðar. Í 1. mgr. 42. gr. laga um útlendinga er kveðið á um að ekki sé heimilt að senda útlending eða ríkisfangslausan útlending til svæðis þar sem hann hefur ástæðu til að óttast ofsóknir, sbr. 37. og 38. gr., eða vegna svipaðra aðstæðna og greinir í flóttamannahugtakinu er í yfirvofandi hættu á að láta lífið eða verða fyrir ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð. Þá segir í 2. mgr. ákvæðisins að 1. mgr. eigi einnig við um sendingu útlendings til svæðis þar sem ekki er tryggt að hann verði ekki sendur áfram til slíks svæðis sem greinir í 1. mgr. Við túlkun á inntaki 42. gr. laga um útlendinga telur kærunefnd jafnframt að líta verði til þess að ákvörðun um brottvísun eða frávísun sem setur einstakling í raunverulega hættu á að verða fyrir pyndingum, ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu er í andstöðu við 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu, sbr. lög nr. 62/1994, sbr. jafnframt 68. gr. stjórnarskrár lýðveldisins Íslands nr. 33/1944.

Í dómaframkvæmd Mannréttindadómstóls Evrópu hefur verið byggt á því að sú meðferð sem einstaklingur á von á við brottvísun eða frávísun verði að ná tilteknu lágmarks alvarleikastigi til að ákvörðunin verði talin brot á 3. gr. mannréttindasáttmálans. Horfa verði til allra aðstæðna í fyrirliggjandi máli, svo sem lengdar og eðlis meðferðar, andlegra og líkamlegra áhrifa hennar auk stöðu einstaklings hverju sinni, svo sem kyns, aldurs og heilsufars. Við mat á umræddu alvarleikastigi hefur dómstóllinn jafnframt litið til annarra þátta, t.d. hvort einstaklingurinn sé frelsissviptur, sbr. t.d. dóm Mannréttindadómstóls Evrópu í máli Khlaifia o.fl. gegn Ítalíu (nr. 16483/12) frá 15. desember 2016.

Í ákvörðun Mannréttindadómstóls Evrópu í máli Samsam Mohammed Hussein o.fl. gegn Hollandi og Ítalíu (nr. 27725/10) frá 2. apríl 2013 kemur m.a. fram að það eitt að efnahagsstaða einstaklings versni við brottvísun eða frávísun frá aðildarríki nái ekki því alvarleikastigi að teljast brot á 3. gr. mannréttindasáttmálans. Þá verði greinin ekki túlkuð þannig að í henni felist skylda aðildarríkja til að sjá einstaklingum sem njóti alþjóðlegrar verndar fyrir húsnæði eða fjárhagsaðstoð sem geri þeim kleift að viðhalda ákveðnum lífskjörum. Dómstóllinn áréttaði jafnframt að einstaklingur sem standi til að vísa brott geti ekki gert kröfu um áframhaldandi dvöl í ríki í því skyni að njóta þar heilbrigðis- eða félagsþjónustu. Veruleg skerðing lífsgæða sé ekki nægjanleg til að valda broti á 3. gr. mannréttindasáttmálans nema sérstaklega sannfærandi mannúðarástæður mæltu gegn endursendingu. Málið varðaði flutning einstæðrar móður með tvö ung börn sem voru með viðbótarvernd til Ítalíu og komst dómstóllinn einróma að þeirri niðurstöðu að málsástæður hennar um að flutningur til Ítalíu væri brot á 3., 8. og 13. gr. mannréttindasáttmálans væri bersýnilega tilhæfulaus.

Með vísan til framangreinds tekur kærunefnd ekki undir þá málsástæðu kæranda að aðstæður flóttafólks í Rúmeníu séu svo slæmar að þær jafnist á við ómannúðlega eða vanvirðandi meðferð. Með vísan til umfjöllunar um aðstæður einstaklinga sem njóta alþjóðlegrar verndar í Rúmeníu er það niðurstaða kærunefndar að synjun á efnismeðferð umsóknar kæranda um alþjóðlega vernd hér á landi leiði ekki til brots gegn 1. mgr. 42. gr. laga um útlendinga, sbr. jafnframt 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu. Þar sem kærandi nýtur alþjóðlegrar verndar í Rúmeníu telur kærunefnd að tryggt sé að hann verði ekki sendur áfram til annars ríkis þar sem líf hans eða frelsi kann að vera í hættu, sbr. 2. mgr. 42. gr. laga um útlendinga.

Athugasemdir kæranda við hina kærðu ákvörðun

Svo sem fram hefur komið gerir kærandi í greinargerð sinni ýmsar athugasemdir við hina kærðu ákvörðun Útlendingastofnunar, þ. á m. við rannsókn Útlendingastofnunar á andlegri heilsu hans og við beitingu og lagastoð reglugerðar nr. 276/2018, um breytingu á reglugerð um útlendinga nr. 540/2017.

Vegna athugasemda kæranda í greinargerð um beitingu ákvæða 32. gr. a reglugerðar um útlendinga tekur kærunefnd sérstaklega fram að hún telji ljóst að það leiði bæði af orðalaginu „viðmið“ og tilvísun í reglugerðinni um að þau séu í „dæmaskyni“ að ekki sé um að ræða tæmandi upptalningu á þeim sjónarmiðum sem komið geta til greina við mat á því hvort sérstakar ástæður eru fyrir hendi í máli. Kærunefnd áréttar í þessu samhengi að við meðferð mála hjá kærunefnd er ávallt horft til einstaklingsbundinna aðstæðna einstaklingsins við mat á því hvort sérstakar ástæður mæli með því að mál verði tekið til efnismeðferðar, í skilningi 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga, þ.m.t. heilsufars hans og annarra þátta sem benda til viðkvæmrar stöðu einstaklingsins. Kærunefnd leggur því áherslu á að sjálfstætt heildarmat er lagt á atvik í hverju máli fyrir sig á grundvelli einstaklingsbundinna aðstæðna einstaklingsins og aðstæðna í viðtökuríki. Eins og að framan greinir hefur kærunefnd lagt einstaklingsbundið mat á umsókn kæranda og komist að niðurstöðu um að synja honum um efnismeðferð með vísan til ákvæða laga um útlendinga eins og þau hafa verið útfærð í reglugerð um útlendinga. Er niðurstaða í málinu byggð á túlkun kærunefndar á framangreindum ákvæðum og sjónarmiðum sem nefndin telur málefnaleg en áður hefur komið fram í úrskurðum kærunefndar að reglugerðina skorti ekki lagastoð. Að mati kærunefndar er því ekki tilefni til frekari umfjöllunar um athugasemdir kæranda að þessu leyti.

Kærandi gerir athugasemd við rannsókn Útlendingastofnunar á andlegri heilsu hans, sbr. 10. gr. stjórnsýslulaga, og mat á sérstaklega viðkvæmri stöðu hans, sbr. 6. tölul. 3. gr. laga um útlendinga. Af þessu tilefni vill kærunefnd árétta að ákvörðun um hvort umsækjandi sé einstaklingur í sérstaklega viðkvæmri stöðu í skilningi 6. tölul. 3. gr. laga um útlendinga snýst um það hvort þörf sé á sérstökum stuðningi við umsækjanda í gegnum umsóknarferlið og á meðan á dvöl hans stendur hér á landi. Í 1. mgr. 25. gr. laga um útlendinga kemur m.a. fram að við meðferð umsóknar um alþjóðlega vernd skuli Útlendingastofnun tryggja, eins fljótt og kostur er, að fram fari, með aðstoð viðeigandi sérfræðinga, einstaklingsbundin greining á því hvort umsækjandi teljist vera í sérstaklega viðkvæmri stöðu, sbr. 6. tölul. 3. gr. laga um útlendinga. Sé hann í slíkri stöðu skal stofnunin meta hvort hann hafi einhverjar sérþarfir, t.d. þörf á tiltekinni heilbrigðisþjónustu. Þá er tekið fram í 2. mgr. sama ákvæðis að ákvæði IV., V. og VII. kafla stjórnsýslulaga um andmælarétt, um birtingu ákvörðunar, rökstuðning o.fl. og um stjórnsýslukæru og viðeigandi ákvæði I. og IX. kafla laga um útlendinga gilda ekki um ákvörðun um sérstaklega viðkvæma stöðu skv. 1. mgr. og að skilgreining á stöðu skv. 1. mgr. hafi ekki önnur réttaráhrif en þau sem sérstaklega er getið í lögum eða reglugerð. Kærunefnd telur því ljóst að mat skv. 6. tölul. 3. gr. laga um útlendinga fari fram hjá Útlendingastofnun, sé ekki sjálfstætt kæranlegt til kærunefndar. Jafnframt er ljóst að fyrir utan tilvísun til sérstaklegrar viðkvæmrar stöðu fylgdarlausra barna í 6. mgr. 32. gr. a reglugerðar um útlendinga er hvergi vikið að réttaráhrifum þess að einstaklingur teljist vera í sérstaklega viðkvæmri stöðu á grundvelli 6. tölul. 3. gr. laga um útlendinga. Kærunefnd leggur áherslu á að ákvörðun um hvort umsækjandi sé í sérstaklega viðkvæmri stöðu er annað en mat á einstaklingsbundnum aðstæðum umsækjanda þó svo að þessi hugtök skarist nokkuð. Að því er varðar rannsókn Útlendingastofnunar, sbr. 10. gr. stjórnsýslulaga, áréttar kærunefnd að kæranda var leiðbeint um framlagningu heilsufarsgagna við málsmeðferð hjá Útlendingastofnun, en í viðtali hans var honum leiðbeint um mikilvægi öflunar gagna um heilsufar, sem hann teldi hafa þýðingu fyrir mál sitt, og um að afla skriflegra upplýsinga og leggja fram við meðferð máls hans hjá Útlendingastofnun. Þá var kæranda leiðbeint um rétt sinn til þess að óska eftir viðtali við sálfræðing. Í því sambandi bendir kærunefnd á að kærandi hafi hitt sérfræðinga á m.a. Göngudeild sóttvarna og Heilbrigðisstofnun Suðurnesja. Við meðferð málsins hjá kærunefnd hefur kæranda auk þess verið leiðbeint um framlagningu frekari heilsufarsgagna í málinu og er það mat kærunefndar að mál kæranda hafi verið nægjanlega upplýst er varðar heilsufar kæranda og aðra þætti varðandi einstaklingsbundnar aðstæður hans. Kærunefnd telur ekki ástæðu til að gera athugasemdir við mat Útlendingastofnunar á þeim einstaklingsbundnu aðstæðum kæranda sem áhrif gætu haft á mat á því hvort rétt sé að taka umsókn kæranda til efnismeðferðar hér á landi.

Kærunefnd hefur farið yfir hina kærðu ákvörðun að öðru leyti og telur ekki tilefni til þess að gera athugasemdir við hana. Hefur kærunefnd skoðað alla þætti málsins og komist að sömu niðurstöðu og Útlendingastofnun. Að mati kærunefndar er því ekki tilefni til frekari umfjöllunar um athugasemdir kæranda.

Frávísun og frestur til að yfirgefa landið

Samkvæmt gögnum málsins kveðst kærandi hafa komið hingað til lands þann 2. febrúar 2020. Hann sótti um alþjóðlega vernd þann 5. febrúar 2020. Eins og að framan greinir hefur umsókn hans um alþjóðlega vernd verið synjað um efnismeðferð og hefur hann því ekki tilskilin leyfi til dvalar. Verður kæranda því vísað frá landinu á grundvelli c-liðar 1. mgr. 106. gr. laga um útlendinga, sbr. 2. og 5. mgr. 106. gr. laganna, enda bendir allt til þess að hann hafi verið hér á landi í innan við níu mánuði þegar málsmeðferð umsóknar hans hófst hjá Útlendingastofnun.

Að mati kærunefndar og með vísan til 2. mgr. 104. gr. laga um útlendinga teljast 30 dagar hæfilegur frestur til að yfirgefa landið í þessu máli.

Athygli kæranda er vakin á því að ef hann yfirgefur ekki landið innan frests kann að vera heimilt að brottvísa honum. Brottvísun felur í sér bann við komu til landsins síðar og skal endurkomubann að jafnaði ekki gilda skemur en tvö ár, sbr. a-lið 2. mgr. 98. gr. og 2. mgr. 101. gr. laga um útlendinga.

Samantekt

Með vísan til alls þess sem að framan er rakið þykir rétt að staðfesta ákvörðun Útlendingastofnunar.

Athygli kæranda er vakin á því að skv. 6. mgr. 104. gr. laga um útlendinga frestar málshöfðun fyrir dómstólum til ógildingar á endanlegri ákvörðun um að útlendingur skuli yfirgefa landið ekki framkvæmd hennar. Að kröfu útlendings getur kærunefnd útlendingamála þó ákveðið að fresta réttaráhrifum endanlegrar ákvörðunar sé talin ástæða til þess. Krafa þess efnis skal gerð ekki síðar en sjö dögum frá birtingu endanlegrar ákvörðunar. Skal frestun bundin því skilyrði að útlendingur beri málið undir dómstóla innan fimm daga frá birtingu ákvörðunar um frestun réttaráhrifa úrskurðar og óski eftir að það hljóti flýtimeðferð. Nú er beiðni um flýtimeðferð synjað og skal þá mál höfðað innan sjö daga frá þeirri synjun. Þó getur kærunefnd útlendingamála tekið ákvörðun um að fresta framkvæmd á grundvelli lokamálsliðar 6. mgr. 104. gr. laga um útlendinga ef sýnt er fram á að verulega breyttar aðstæður hafi skapast frá því að endanleg ákvörðun var tekin, m.a. ef afleiðingar Covid-19 faraldursins muni vara lengur og vera alvarlegri en gera má ráð fyrir nú.

Athygli kæranda er einnig vakin á því að Útlendingastofnun getur frestað framkvæmd ákvörðunar með vísan til 2. mgr. 103. gr. laga um útlendinga vegna sérstakra aðstæðna útlendings eða vegna þess að ómögulegt sé að framkvæma ákvörðun að svo stöddu.

 

Úrskurðarorð

Ákvörðun Útlendingastofnunar er staðfest. Lagt er fyrir kæranda að hverfa af landi brott. Kæranda er veittur 30 daga frestur til að yfirgefa landið sjálfviljugur.

The decision of the Directorate of Immigration is affirmed. The appellant is requested to leave the country. The appellant has 30 days to leave the country voluntarily.

 

Hjörtur Bragi Sverrisson

Þorbjörg Inga Jónsdóttir                                                                          Bjarnveig Eiríksdóttir  

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum