Hoppa yfir valmynd
26. mars 2020 Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið

Mál nr. 551/2019 - Úrskurður

 

Úrskurðarnefnd velferðarmála

Mál nr. 551/2019

Fimmtudaginn 26. mars 2020

A

gegn

Vinnumálastofnun

Ú R S K U R Ð U R

Mál þetta úrskurða Kári Gunndórsson lögfræðingur, Agnar Bragi Bragason lögfræðingur og Arnar Kristinsson lögfræðingur.

Með kæru, dags. 20. desember 2019, kærði A, til úrskurðarnefndar velferðarmála ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 13. desember 2019, um að fella niður bótarétt hans í tvo mánuði.

I.  Málsatvik og málsmeðferð

Kærandi sótti um greiðslur atvinnuleysisbóta hjá Vinnumálastofnun 29. ágúst 2019. Í október 2019 var kærandi boðaður á námskeið á vegum Vinnumálastofnunar og tekið var fram að um skyldumætingu væri að ræða. Kærandi mætti ekki á námskeiðið og tilkynnti ekki forföll. Með bréfi Vinnumálastofnunar, dags. 11. nóvember 2019, var óskað eftir skriflegri afstöðu hans vegna þessa. Í bréfinu vakti stofnunin athygli á því að samkvæmt 58. gr. laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar geti sá sem hafni þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum, án gildra ástæðna, þurft að sæta biðtíma á grundvelli laganna. Skýringar bárust frá kæranda 12. nóvember 2019 þar sem fram kom að hann hafi samþykkt boð á námskeið en ruglast á dögum. Með ákvörðun, dags. 26. nóvember 2019, var kæranda tilkynnt að bótaréttur hans væri felldur niður í tvo mánuði frá þeim degi á grundvelli 58. gr. laga nr. 54/2006. Með erindi 27. nóvember 2019 óskaði kærandi eftir að mál hans yrði tekið fyrir á ný. Með bréfi Vinnumálastofnunar, dags. 13. desember 2019, var kæranda tilkynnt að fyrri ákvörðun um niðurfellingu bótaréttar væri staðfest.

Kæra barst úrskurðarnefnd velferðarmála þann 20. desember 2019. Með bréfi, dags. 2. janúar 2020, óskaði úrskurðarnefndin eftir greinargerð Vinnumálastofnunar ásamt gögnum málsins. Greinargerð Vinnumálastofnunar barst með bréfi, dags. 22. janúar 2020. Með bréfi úrskurðarnefndar, dags. 24. janúar 2020, var greinargerð Vinnumálastofnunar send kæranda til kynningar. Athugasemdir bárust ekki.

II.  Sjónarmið kæranda

Kærandi greinir frá því að bótaréttur hans hafi verið felldur niður í tvo mánuði vegna þess að hann hafi ekki mætt á eins dags námskeið. Kærandi hafi ekki hafnað námskeiðinu og hann hafi sent Vinnumálastofnun skýringu. Kæranda þyki það hörð refsing að vera sviptur lifibrauði sínu í tvo mánuði fyrir það eitt að mæta ekki á eins dags námskeið. Kærandi krefjist leiðréttingar á hinni kærðu ákvörðun.

III.  Sjónarmið Vinnumálastofnunar

Í greinargerð Vinnumálastofnunar kemur fram að mál þetta lúti að ákvörðun Vinnumálastofnunar um að kærandi skuli sæta niðurfellingu á greiðslum atvinnuleysisbóta í tvo mánuði þar sem hann hafi ekki mætt á boðað námskeið hjá stofnuninni. Samkvæmt a-lið 13. gr. og g-lið 1. mgr. 14. gr. laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar sé eitt af skilyrðum fyrir atvinnuleysistryggingum launamanna að viðkomandi sé virkur í atvinnuleit og í því felist meðal annars að hafa vilja og getu til að taka þátt í þeim vinnumarkaðsaðgerðum er standi til boða. Í 13. gr. laga um vinnumarkaðsúrræði nr. 55/2006 komi einnig fram skylda þess sem telst tryggður samkvæmt lögum um atvinnuleysistryggingar til að taka þátt í vinnumarkaðsúrræðum og mæta í viðtöl hjá ráðgjöfum Vinnumálastofnunar. Í 58. gr. laga nr. 54/2006 komi skýrt fram að hafni einstaklingur þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum skuli hann sæta viðurlögum á grundvelli ákvæðisins. Ákvæðið eigi einnig við ef atvinnuleitandi mæti ekki til Vinnumálastofnunar á áður boðuðum tíma. Þá komi fram í þeim skilmálum sem umsækjendur um atvinnuleysisbætur samþykki að viðkomandi hafi verið upplýstur um að honum sé skylt að mæta í þau viðtöl, fundi, námskeið og önnur úrræði sem Vinnumálastofnun boði hann til og það sé gert með tölvupósti, sms sendingum eða tilkynningum á „Mínum síðum“. Umsækjandi sé því upplýstur um að honum sé skylt að láta vita af öllum breytingum, svo sem breyttu heimilisfangi, símanúmeri og netfangi.

Það liggi fyrir að kærandi hafi verið boðaður á námskeið á vegum stofnunarinnar. Óumdeilt sé að kæranda hafi verið kunnugt um námskeiðið og að hann hafi verið boðaður með sannanlegum hætti til vinnumarkaðsúrræðisins en hann hafi ekki mætt á námskeiðið. Í skýringum kæranda til stofnunarinnar og í kæru til nefndarinnar komi fram að kærandi hafi ruglast á dögum og því ekki mætt á námskeiðið. Með hliðsjón af þeirri ríku skyldu sem hvíli á umsækjendum um atvinnuleysisbætur til þátttöku í vinnumarkaðsúrræðum telji Vinnumálastofnun að skýringar þær sem kærandi hafi fært fram séu ekki gildar í skilningi laga um atvinnuleysistryggingar og að með fjarveru sinni hafi hann brugðist skyldum sínum samkvæmt 58. gr. laganna. Kærandi hafi verið skráður atvinnulaus hjá stofnuninni þann tíma sem honum hafi verið gert að sækja umrætt vinnumarkaðsúrræði. Honum hafi borið að vera virkur í atvinnuleit og taka þátt í vinnumarkaðsaðgerðum sem honum hafi staðið til boða, sbr. h-lið 14. gr. laga um atvinnuleysistryggingar. Ekki verði fallist á að skýringar er lúti að því að atvinnuleitandi hafi gleymt viðtalstímum eða ruglast á dagsetningum geti talist gildar í skilningi laga um atvinnuleysistryggingar. Það væri bersýnilega óþarft að meta andmæli þeirra sem ekki mættu á boðuð vinnumarkaðsúrræði hjá stofnuninni ef gleymska eða hirðuleysi teldust gildar skýringar á því að hafa brugðist skyldum samkvæmt lögunum. Það sé því niðurstaða stofnunarinnar að kærandi skuli sæta viðurlögum á grundvelli 58. gr. laga um atvinnuleysistryggingar og að staðfesta beri hina kærðu ákvörðun.

IV.  Niðurstaða

Mál þetta lýtur að ákvörðun Vinnumálastofnunar um að fella niður bótarétt kæranda í tvo mánuði á grundvelli 1. mgr. 58. gr. laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar.

Í 58. gr. laga nr. 54/2006 er kveðið á um viðurlög við því ef þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum er hafnað. Segir þar í 1. mgr. að sá sem hafnar þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum, sbr. lög um vinnumarkaðsaðgerðir, samkvæmt ákvörðun Vinnumálastofnunar eftir að hafa verið í atvinnuleit í að minnsta kosti fjórar vikur frá móttöku Vinnumálastofnunar á umsókn um atvinnuleysisbætur, skuli ekki eiga rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta samkvæmt VII. kafla laganna fyrr en að tveimur mánuðum liðnum, sem ella hefðu verið greiddar bætur fyrir, frá þeim degi er viðurlagaákvörðun Vinnumálastofnunar er tilkynnt aðila. Hið sama gildir þegar hinn tryggði mætir ekki til Vinnumálastofnunar á áður boðuðum tíma samkvæmt 6. mgr. 9. gr., 3. mgr. 13. gr. eða 3. mgr. 18. gr. laganna.

Í athugasemdum greinargerðar við frumvarp það er varð að lögum nr. 54/2006 segir meðal annars um 1. mgr. 58. gr. að ekki séu tilgreindar sérstakar vinnumarkaðsaðgerðir sem geti valdið því að hinn tryggði þurfi að sæta viðurlögum samkvæmt ákvæðinu heldur eigi það við um allar aðgerðir sem hinum tryggða sé boðið að taka þátt í til að auka líkur sínar á að fá vinnu við hæfi. Gert sé ráð fyrir að Vinnumálastofnun annist skipulag vinnumarkaðsaðgerða og hinir tryggðu njóti faglegrar ráðgjafar sérfræðinga stofnunarinnar. Þannig megi ætla að þeim, sem eru tryggðir innan atvinnuleysistryggingakerfisins, verði boðin þátttaka í vinnumarkaðsúrræðum við hæfi en litið sé svo á að þeim sé skylt að taka þátt í slíkum úrræðum. Bregðist hinn tryggði þessum skyldum sínum leiði það til viðurlaga í formi biðtíma eftir atvinnuleysisbótum.

Samkvæmt gögnum málsins var kærandi boðaður á námskeið á vegum Vinnumálastofnunar í október 2019 og var beðinn um að staðfesta þátttöku. Boðunin var send með tölvupósti og sms skilaboði og tekið fram að um skyldumætingu væri að ræða. Kærandi hvorki staðfesti mætingu né tilkynnti forföll. Kærandi hefur borið því við að hafa ekki mætt á námskeiðið þar sem hann hafi ruglast á dögum.

Að mati úrskurðarnefndar velferðarmála hefur kærandi ekki fært fram gildar skýringar sem réttlæta höfnun hans á þátttöku í vinnumarkaðsúrræðinu sem honum var gert að sækja. Í 1. mgr. 58. gr. laga nr. 54/2006 kemur skýrt fram að sá sem hafnar þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum skuli sæta viðurlögum á grundvelli ákvæðisins. Ákvæðið er fortakslaust og því er ekki heimilt að beita vægari úrræðum en þar er kveðið á um. Að því virtu er hin kærða ákvörðun staðfest.

 


 

Ú R S K U R Ð A R O R Ð

Ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 13. desember 2019, um að fella niður bótarétt A , í tvo mánuði er staðfest.

F.h. úrskurðarnefndar velferðarmála

Kári Gunndórsson

 

 

 

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum