Hoppa yfir valmynd
7. mars 2024 Dómsmálaráðuneytið

Mál nr. 30/2024 Úrskurður 7. mars 2024

Mál nr. 30/2024                    Millinafn:       Fríðhólm

Hinn 7. mars 2024 kveður mannanafnanefnd upp svohljóðandi úrskurð í máli 30/2024 en erindið barst nefndinni 26. febrúar.   

Til þess að heimilt sé að samþykkja nýtt millinafn þurfa öll skilyrði 6. gr. laga, nr. 45/1996, um mannanöfn, að vera uppfyllt. Skilyrði 2. mgr. 6. gr. eru:

  • millinafn skal dregið af íslenskum orðstofnum eða hafa áunnið sér hefð í íslensku máli en má þó ekki hafa nefnifallsendingu.
  • nöfn sem aðeins hafa unnið sér hefð sem annað hvort eiginnöfn karla eða eiginnöfn kvenna, eru ekki heimil sem millinöfn.
  • millinafn má ekki vera þannig að það geti orðið nafnbera til ama.

Millinafnið Fríðhólm er dregið af íslenskum orðstofni, hefur ekki unnið sé hefð sem eiginafn og getur ekki orðið nafnbera til ama. Þá er nafnið ekki ættarnafn og uppfyllir því skilyrði 6. gr. laganna.

Úrskurðarorð:

Beiðni um millinafnið Fríðhólm er samþykkt.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum