Hoppa yfir valmynd
20. júní 2022 Dómsmálaráðuneytið

Mál nr. 76/2022 Úrskurður 20. júní 2022

Mál nr. 76/2022                    Millinafn:       Ísjak

 

Hinn 20. júní 2022 kveður mannanafnanefnd upp svohljóðandi úrskurð í máli 76/2022 en erindið barst nefndinni 25. maí.

Til þess að heimilt sé að samþykkja nýtt millinafn þurfa öll skilyrði 6. gr. laga, nr. 45/1996, um mannanöfn, að vera uppfyllt. Skilyrði 2. mgr. 6. gr. eru:

  • millinafn skal dregið af íslenskum orðstofnum eða hafa áunnið sér hefð í íslensku máli en má þó ekki hafa nefnifallsendingu.
  • ·nöfn sem aðeins hafa unnið sér hefð sem annað hvort eiginnöfn karla eða eiginnöfn kvenna, eru ekki heimil sem millinöfn.
  • millinafn má eki vera þannig að það geti orðið nafnbera til ama.

 

Millinafnið Ísjak er dregið af íslenskum orðstofni, hefur ekki nefnifallsendingu og hvorki unnið sé hefð sem eiginnafn karla eða kvenna. Nafnið er heldur ekki ættarnafn í skilningi 7. gr. laga, nr. 45/1996, um mannanöfn. Nafnið Ísjak uppfyllir þannig ákvæði 6. gr. fyrrnefndra laga.

 

Úrskurðarorð:

Beiðni um millinafnið Ísjak er samþykkt og skal nafnið fært á mannanafnaskrá.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum