Hoppa yfir valmynd
8. mars 2022 Heilbrigðisráðuneytið, Innviðaráðuneytið

Fjaraugnlækningar á Vestfjörðum og efling fjarheilbrigðisþjónustu á Suðurlandi

Heilbrigðisstofnun Vestfjarða - myndHeilbrigðisstofnun Vestfjarða

Willum Þór Þórsson, heilbrigðisráðherra hefur ákveðið að veita Heilbrigðisstofnun Vestfjarða 20 milljóna króna framlag til að tryggja íbúum Vestfjarða greiðan aðgang að augnlækningum með uppbyggingu fjarlæknisþjónustu á því sviði. Ráðherra hefur einnig veitt Heilbrigðisstofnun Suðurlands 9 milljóna króna framlag til búnaðarkaupa í því skyni að efla fjarheilbrigðisþjónustu í umdæminu. Stærstur hluti fjárins kemur af byggðaáætlun til ársins 2024. 

Fjaraugnlækningar við Heilbrigðisstofnun Vestfjarða

Mótun og innleiðing verkefnis um fjaraugnlæknisþjónustu við Heilbrigðisstofnun Vestfjarða (HVest) er liður í því að tryggja aðgengi að sérfræðiþjónustu fyrir íbúa landsbyggðarinnar. Markmiðið er að nýta tæknilausnir til að veita íbúum Vestfjarða sérhæfða augnlæknisþjónustu í heimabyggð. Miðað er við að sjúklingar sem þurfa þjónustunnar með geti leitað á göngudeild HVest samkvæmt beiðni frá heilsugæslu. Starfsmaður með þjálfun í notkun búnaðarins stýrir myndatöku og gerir nauðsynlegar mælingar og stafrænar myndir eru síðan sendar sérfræðingum í Reykjavík til greiningar og frekara eftirlits. Samhliða fjarþjónustunni er jafnframt stefnt að heimsóknum augnlækna til stofnunarinnar.

Gert er ráð fyrir að með þessu megi bæta aðgengi íbúa að mikilvægri þjónustu, draga úr ferðakostnaði og spara sjúklingum tíma, óhagræði og óbeinan kostnað tengdum læknisheimsóknum til Reykjavíkur. Tækjabúnaður sem HVest þarf að festa kaup á vegna þessarar þjónustu kostar um 25 milljónir króna. Framlag af byggðaáætlun nemur 11,5 m.kr. heilbrigðisráðuneytið leggur til 8,5 m.kr. og stofnunin sjálf mun ráðstafa um 5 m.kr. af framlögum til tækjakaupa í verkefnið.

Fjaraugnlæknisþjónusta var innleidd hjá Heilbrigðisstofnun Suðurlands (HSU) fyrir íbúa Vestmannaeyja á liðnu ári og var þar um frumraun að ræða á þessu sviði. Þar er um að ræða tilraunaverkefni milli HSU og fyrirtækisins Sjónlags í Reykjavík. 

HSU: Smásaga – hjálpartól í heimahjúkrun og fjarþjónustan Agnes

Heilbrigðisráðherra hefur einnig veitt Heilbrigðisstofnun Suðurlands 9 milljónir króna af byggðaáætlun. Annars vegar 3,7 milljónir króna til kaupa á íhlutum fyrir fjarheilbrigðisbúnaðinn Agnesi. Búnaðurinn er þegar notaður á fimm starfsstöðvum HSU og nýtist til ýmissa heilsufarsmælinga og skoðana á sjúklingum í gegnum fjarbúnað sem ella myndu kalla á ferðalög sjúklings til læknis, oft um lengri veg. Íhlutirnir sem keyptir verða eru m.a. tengi fyrir hjartalínurit, súrefnismettunarmælar fyrir ungabörn, öndunarpróf, auk heyrnartóla og vefmyndavéla.

Hins vegar fær stofnunin 5,3 milljóna króna styrk til kaupa á lófatölvum, búnaði og leyfum til að hefja notkun snjallforritsins Smásögu fyrir starfsfólk sem sinnir heimahjúkrun. Með snjallforritinu getur starfsfólkið skráð upplýsingar um þjónustunotendur í rauntíma í gegnum lófatölvu sem flytjast beint inn í sjúkraskrárkerfið Sögu. Rauntímaskráning dregur úr líkum á rangri skráningu upplýsinga, eykur öryggi sjúklinga og sparar tíma starfsfólks.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum