Hoppa yfir valmynd
21. desember 2018 Fjármála- og efnahagsráðuneytið

Ísland með frjálslyndustu ríkjum heims í tollamálum

Frá upphafi árs 2017 hafa tollar á innfluttar iðnaðarvörur, numið 0%. Samkvæmt Alþjóðaviðskiptastofnuninni er Ísland eitt aðeins sex aðildarríkja sem hafa nær alfarið afnumið tolla á iðnaðarvörur.

Í ritinu „World Tariff Profiles 2018“ sem gefið hefur verið út af Alþjóðaviðskiptastofnuninni (WTO) er að finna yfirlit yfir meðaltolla í aðildarríkjunum árið 2017. Yfirlitið byggist á tölfræðigreiningu stofnunarinnar sem unnin er upp úr gögnum sem flokkuð hafa verið í samræmi við alþjóðlegu tollskrána.Við greininguna hefur m.a. verið tekið tillit til bæði verð- og magntolla. Þegar að iðnaðarvörum kemur er ljóst að Ísland er afar frjálslynt ríki þar sem einfaldur meðaltalsbestukjaratollur (MEB-tollur - ensku Simple average most favoured nations applied tariff) nemur einungis 0,1%. Einungis Hong Kong, Macao og Singapúr standa Íslandi framar með 0,0% MEB-toll. Önnur ríki sem framarlega standa eru Noregur, Georgía og Máritía.

 

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum