Hoppa yfir valmynd
2. júlí 2019 Utanríkisráðuneytið

Tekið á móti 75 flóttamönnum á þessu ári

Mynd úr flóttamannabúðum. Ljósmynd: gunnisal - mynd

Á þessu ári verður tekið á móti 75 flóttamönnum af hálfu íslenskra stjórnvalda í samstarfi við Flóttamannastofnun Sameinuðu þjóðanna (UNHCR), innlend sveitarfélög og Rauða krossinn á Íslandi. Rúmlega 70 milljónir einstaklinga eru á flótta í heiminum og hafa aldrei verið jafn margir í sjötíu ára sögu Flóttamannastofnunar. Flóttafólkið sem Íslendingar taka á móti eru annars vegar Sýrlendingar sem hafa dvalist í Líbanon og hins vegar fólk af afrísku bergi brotið sem hefur dvalist í flóttamannabúðum í Kenya.

Á dögunum gerði Ásmundur Einar Daðason, félags- og barnamálaráðherra, samning við Gísla Halldór Halldórsson, bæjarstjóra Árborgar, um móttöku, aðstoð og þjónustu við fimm flóttamenn frá Sýrlandi. Fólkið kom til landsins í maí síðastliðnum ásamt 42 öðrum flóttamönnum sem settust að á Hvammstanga og á Blönduósi. Þetta er í annað sinn sem Árborg tekur á móti flóttafólki í samstarfi við íslensk stjórnvöld.

„Móttaka flóttafólks hér á landi hefur gengið vel og er um að ræða farsælt samstarf á milli sveitarfélaga, ríkis og Rauða krossins á Íslandi. Ég bind vonir við að svo verði áfram,“ segir Ásmundur Einar Daðason félags- og barnamálaráðherra í frétt frá ráðuneytinu.

Efnisorð

Heimsmarkmiðin

16. Friður og réttlæti

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum