Hoppa yfir valmynd
24. febrúar 2022 Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið

626/2021-Úrskurður

 

Úrskurðarnefnd velferðarmála

Mál nr. 626/2021

Fimmtudaginn 24. febrúar 2022

A

gegn

Vinnumálastofnun

Ú R S K U R Ð U R

Mál þetta úrskurða Hólmfríður Birna Guðmundsdóttir lögfræðingur, Agnar Bragi Bragason lögfræðingur og Arnar Kristinsson lögfræðingur.

Með kæru, dags. 19. nóvember 2021, kærði A, til úrskurðarnefndar velferðarmála ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 18. nóvember 2021, um að fella niður rétt hans til atvinnuleysisbóta í tvo mánuði.   

I.  Málsatvik og málsmeðferð

Kærandi sótti um greiðslur atvinnuleysisbóta hjá Vinnumálastofnun 1. apríl 2021 og var umsókn hans samþykkt þann 7. júní 2021. Þann 10. nóvember 2021 bárust Vinnumálastofnun upplýsingar um að kærandi hefði hafnað starfi hjá B. Með bréfi Vinnumálastofnunar, dags. 16. nóvember 2021, var óskað eftir skriflegri afstöðu kæranda vegna höfnunar á umræddu starfi. Skýringar bárust frá kæranda samdægurs. Með ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 18. nóvember 2021, var kæranda tilkynnt að bótaréttur hans væri felldur niður í tvo mánuði á grundvelli 1. mgr. 57. gr. laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar.

Kæra barst úrskurðarnefnd velferðarmála 19. nóvember 2021. Með bréfi, dags. 30. nóvember 2021, óskaði úrskurðarnefndin eftir greinargerð Vinnumálastofnunar ásamt gögnum málsins. Greinargerð Vinnumálastofnunar barst 28. desember 2021 og var hún kynnt kæranda með bréfi úrskurðarnefndar, dags. 4. janúar 2022. Athugasemdir bárust ekki.

 

II.  Sjónarmið kæranda

Kærandi greinir frá því að mál hans snúist um meinta neitun á atvinnutilboði. Í skýringum kæranda til Vinnumálastofnunar hafi hann vísað til þess að umrætt starf væri ekki fyrir hvern sem er. Kærandi hafi starfað í eldhúsi á vinnustaðnum í tvö ár og viti því nákvæmlega hvað felist í umönnunarstarfi. Í atvinnuviðtalinu hafi kærandi sagt að hann gæti unnið við allt nema umönnun. Í skýringum kæranda hafi ekki komið fram að viðtalið hafi í raun ekki átt sér stað, hann hafi einungis verið spurður með netskilaboðum. Kærandi hafi ekki hafnað boðinu, aðeins skrifað að umönnunarstarf væri ekki fyrir hann.

Kærandi tekur fram að á umsókn um atvinnuleysisbætur hafi hann merkt við hótelstörf, eldhússtörf og verslunarstörf. Hann hafi verið sendur í atvinnuviðtal fyrir allt annað starf. Starf sem hann viti að hann geti ekki sinnt og hafi enga reynslu á því sviði.

III.  Sjónarmið Vinnumálastofnunar

Í greinargerð Vinnumálastofnunar kemur fram kærandi hafi sótt um greiðslu atvinnuleysistrygginga með umsókn, dags. 1. apríl 2021. Með erindi, dags. 7. júní 2021, hafi kæranda verið tilkynnt að umsókn hans hefði verið samþykkt og að útreiknaður bótaréttur væri 100%. Þann 10. nóvember 2021 hafi Vinnumálastofnun borist þær upplýsingar að kærandi hefði hafnað starfi hjá B. Um hafi verið að ræða starf við umönnun aldraðra en kæranda hafði verið miðlað í umrætt starf af Vinnumálastofnun. Samkvæmt upplýsingum frá B hafi kærandi afþakkað starfið því að hann gæti ekki hugsað sér að vinna við umönnun. Kærandi hafi þó verið tilbúinn að vinna önnur störf ef slíkt stæði honum til boða. Með erindi, dags. 16. nóvember 2021, hafi verið óskað eftir skriflegri afstöðu kæranda á höfnun á starfi hjá B. Athygli kæranda hafi jafnframt verið vakin á því að hafi atvinnuleitandi hafnað atvinnutilboði eða atvinnuviðtali án gildra ástæðna gæti hann þurft að sæta biðtíma eftir greiðslum atvinnuleysistrygginga. Sama dag, þann 16. nóvember, hafi Vinnumálastofnun borist skýringar kæranda vegna höfnunar á umræddu atvinnutilboði. Kærandi hafi þar skýrt frá því að hann hafi áður unnið á B í tvö ár þar sem hann hafi starfað í eldhúsi hjúkrunar- og dvalarheimilisins. Hann hafi á þeim tíma sem hann hafi starfað hjá B áttað sig á því að starf við umönnun hentaði honum ekki. Kærandi kvaðst enga reynslu hafa á því sviði og þar að auki glímdi hann við kvíða. Kærandi hafi jafnframt gert athugasemdir við vinnubrögð Vinnumálastofnunar og kvað stofnunina hafa miðlað honum í starf sem hann hafi ekki óskað eftir við umsókn um atvinnuleysisbætur. Þann 18. nóvember 2021 hafi kæranda verið tilkynnt að skýringar hans vegna höfnunar á starfi hefðu ekki verið metnar gildar og að greiðslur atvinnuleysistrygginga til hans væru stöðvaðar. Sú ákvörðun hafi verið tekin á grundvelli 1. mgr. 57. gr. laga um atvinnuleysistryggingar.

Í kæru til úrskurðarnefndar greini kærandi frá því að ekki hafi átt sér stað eiginlegt atvinnuviðtal heldur hafi aðeins verið um að ræða samtal á samskiptaforritinu Facebook Messenger. Þar að auki kvaðst kærandi ekki hafa hafnað starfinu heldur hafi hann aðeins tjáð atvinnurekandanum það að starf við umönnun hentaði honum ekki. Meðfylgjandi kæru sé einnig skjáskot af samskiptum kæranda og atvinnurekanda á samskiptaforritinu Facebook Messenger. Þar megi sjá að kæranda hafi verið boðið starf við umönnun en hann kveði það starf ekki henta sér. Hann væri hins vegar tilbúinn að taka starfi í eldhúsi, við þrif eða þvott.

Lög nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar gildi um atvinnuleysistryggingar launamanna eða sjálfstætt starfandi einstaklinga á innlendum vinnumarkaði þegar þeir verði atvinnulausir, sbr. 1. gr. laganna. Markmið laga um atvinnuleysistryggingar sé að tryggja þeim sem tryggðir séu og misst hafi fyrra starf sitt, tímabundna fjárhagsaðstoð á meðan þeir séu að leita sér að nýju starfi. Með þessu sé verið að tryggja stöðu og öryggi fólks í atvinnuleysi. Því sé gert ráð fyrir að þeir sem teljist tryggðir innan atvinnuleysistryggingakerfisins séu í virkri atvinnuleit þann tíma og séu jafnframt reiðubúnir að taka þátt í þeim vinnumarkaðsaðgerðum sem þeim standi til boða. Atvinnuleysistryggingar veiti þannig þeim sem tryggðir séu fjárhagslegt úrræði í tímabundnu atvinnuleysi sínu. Ríkar kröfur beri að gera til þeirra sem hafni starfi á innlendum vinnumarkaði um að þeir hafi til þess gildar ástæður samkvæmt lögunum, enda eigi almennt ekki að þiggja atvinnuleysisbætur í stað þess að gegna launuðu starfi. 

Eitt af skilyrðum þess að umsækjandi um atvinnuleysisbætur eigi rétt til greiðslna atvinnuleysistrygginga sé að vera í virkri atvinnuleit, sbr. a. lið 1. mgr. 13. gr. laga um atvinnuleysistryggingar. Í 14. gr. laganna sé nánar kveðið á um hvað teljist til virkrar atvinnuleitar. Þar sé útlistað að umsækjandi þurfi meðal annars að vera reiðubúinn að taka hvert það starf sem greitt sé fyrir, vera reiðubúinn að taka starfi hvar sem er á Íslandi, án sérstaks fyrirvara, og hafa til þess vilja og getu. Að öðrum kosti verði ekki litið á hlutaðeigandi í virkri atvinnuleit. 

Í 1. mgr. 57. gr. laga um atvinnuleysistryggingar sé kveðið á um viðurlög vegna höfnunar á starfi. Ákvæðið sé svohljóðandi: 

,,Sá sem hafnar starfi sem honum býðst með sannanlegum hætti eftir að hafa verið í atvinnuleit í a.m.k. fjórar vikur frá móttöku Vinnumálastofnunar á umsókn um atvinnuleysisbætur skal ekki eiga rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta skv. VII. kafla fyrr en að tveimur mánuðum liðnum, sem ella hefðu verið greiddar bætur fyrir, frá þeim degi er viðurlagaákvörðun Vinnumálastofnunar er tilkynnt aðila, sbr. þó 5. mgr. Hið sama á við um þann sem hafnar því að fara í atvinnuviðtal vegna starfs sem honum býðst með sannanlegum hætti eða sinnir ekki atvinnuviðtali án ástæðulausrar tafar.“

Ágreiningur í máli þessu snúi meðal annars að því hvort kærandi hafi hafnað starfi í skilningi 1. mgr. 57. gr. laga um atvinnuleysistryggingar. Fyrir liggi að kæranda hafi verið boðið starf á samskiptaforritinu Facebook Messenger. Að mati Vinnumálastofnunar séu skýringar kæranda þess efnis að ekki hafi verið um eiginlegt atvinnuviðtal að ræða af þeim sökum, ekki gildar, enda sé hvergi í lögum um atvinnuleysistryggingar kveðið á um að atvinnuviðtal skuli fara fram með ákveðnum hætti. Þar að auki megi skýrlega greina af samskiptum þeim sem hafi átt sér stað á milli kæranda og atvinnurekanda að honum hafi sannarlega verið boðið umrætt starf. Þá telji Vinnumálastofnun að skýringar kæranda þess efnis að hann hafi ekki hafnað umræddu starfi heldur aðeins tjáð atvinnurekanda að starfið hentaði honum ekki, séu ekki gildar. Ummæli kæranda sé ekki hægt að skilja á annan hátt en að hann hafi hafnað umræddu starfi. Í það minnsta megi jafna framferði hans við höfnun á starfi. Með vísan til alls framangreinds telji Vinnumálastofnun ljóst að kærandi hafi hafnað starfi í skilningi 1. mgr. 57. gr. laga um atvinnuleysistryggingar.

Samkvæmt 4. mgr. 57. gr. skuli Vinnumálastofnun meta við ákvörðun um viðurlög samkvæmt 1. mgr. hvort ákvörðun hins tryggða um að hafna starfi hafi verið réttlætanleg, en í 4. mgr. segi orðrétt:

,,Vinnumálastofnun skal meta við ákvörðun um viðurlög skv. 1. mgr. hvort ákvörðun hins tryggða um að hafna starfi hafi verið réttlætanleg vegna aldurs hans, félagslegra aðstæðna sem tengjast skertri vinnufærni eða umönnunarskyldu vegna ungra barna eða annarra náinna fjölskyldumeðlima. Enn fremur er Vinnumálastofnun heimilt að líta til heimilisaðstæðna hins tryggða þegar hann hafnar starfi fjarri heimili sínu sem og til ráðningar hans í ótímabundið starf innan tiltekins tíma. Þá er heimilt að taka tillit til aðstæðna þess sem getur ekki sinnt tilteknum störfum vegna skertrar vinnufærni samkvæmt vottorði sérfræðilæknis. Getur þá komið til viðurlaga skv. 59. gr. hafi hinn tryggði leynt upplýsingum um skerta vinnufærni.“

Vinnumálastofnun sé gert að meta skýringar atvinnuleitenda vegna höfnunar á atvinnutilboði með hliðsjón af þeirri ríku skyldu sem hvíli á umsækjendum um atvinnuleysisbætur til að vera reiðubúnir að taka hvert það starf sem greitt sé fyrir, án sérstaks fyrirvara, og hafa til þess vilja og getu. Gert sé ráð fyrir því að Vinnumálastofnun sé heimilt að líta til aldurs hins tryggða, félagslegra aðstæðna tengdum skertri vinnufærni eða umönnunarskyldu vegna ungra barna eða annarra náinna fjölskyldumeðlima við ákvörðun um hvort hinn tryggði skuli sæta viðurlögum samkvæmt 1. mgr. 57. gr. laganna. Enn fremur sé Vinnumálastofnun heimilt að líta til heimilisaðstæðna hins tryggða þegar í boði sé starf fjarri heimili hans sem geri kröfur um að hlutaðeigandi flytji búferlum.

Skýringar kæranda snúi að því að starf við umönnun henti honum ekki. Hann hafi enga reynslu á því sviði og þar að auki glími hann við kvíða. Eins og að framan hafi verið rakið hvíli rík skylda á atvinnuleitendum að taka því starfi sem þeim bjóðist, enda eigi almennt ekki að þiggja atvinnuleysisbætur í stað þess að gegna launuðu starfi. Þá þurfi atvinnuleitendur jafnframt að vera reiðubúnir að taka hvert það starf sem greitt sé fyrir, án sérstaks fyrirvara, og hafa til þess vilja og getu, sbr. 14. gr. laga um atvinnuleysistryggingar. Með vísan til framangreinds telji Vinnumálastofnun að atvinnuleitendur geti ekki hafnað störfum á þeim forsendum að reynsla þeirra og áhugasvið liggi í annarri atvinnugrein. Enn fremur telji Vinnumálastofnun að atvinnuleitendur geti ekki hafnað störfum á þeirri forsendu að starfið henti þeim ekki. Þá hafi kærandi ekki sýnt fram á það með viðhlítandi gögnum að hann glími við kvíða sem aftri því að hann geti sinnt umræddu starfi. Að mati Vinnumálastofnunar séu skýringar kæranda því ekki þess eðlis að þær réttlæti höfnun á atvinnutilboði, sbr. 4. mgr. 57. gr. laga um atvinnuleysistryggingar. Kæranda beri því að sæta viðurlögum á grundvelli 1. mgr. 57. gr. laganna.

Kærandi hafi gert athugasemdir við vinnubrögð Vinnumálastofnunar og kveður stofnunina hafa miðlað honum í starf sem hann hafi ekki óskað eftir við umsókn um atvinnuleysisbætur. Með vísan til 1. tölul. 1. mgr. 13. gr. og 14. gr. laga um atvinnuleysistryggingar geti atvinnuleitendur almennt ekki ákveðið í hvaða störf þeim sé miðlað. Atvinnuleitendum sé þó gefinn kostur á því við umsókn um atvinnuleysisbætur að greina frá þeim störfum sem þeir óska eftir að starfa við. Slíkt feli hins vegar ekki í sér takmarkanir á því í hvaða störf stofnunin geti miðlað atvinnuleitendum. Vinnumálastofnun vilji jafnframt vekja athygli á því að við móttöku umsóknar um atvinnuleysistryggingar veiti Vinnumálastofnun öllum atvinnuleitendum leiðbeiningar um hvar finna megi upplýsingar um réttindi og skyldur atvinnuleitenda. Öllum atvinnuleitendum sé vísað á heimasíðu Vinnumálastofnunar þar sem meðal annars sé að finna skýrar upplýsingar um afleiðingar þess að hafna starfi án gildra ástæðna. Ákvæði laga um atvinnuleysistryggingar séu skýr hvað varði skyldu atvinnuleitenda til að taka störfum sem í boði séu og um höfnun á atvinnutilboðum. 

Með vísan til alls framangreinds sé það mat Vinnumálastofnunar að kærandi hafi hafnað starfi í skilningi 1. mgr. 57. gr. laga nr. 54/2006  um atvinnuleysistryggingar hjá B og að skýringar kæranda vegna höfnunar á umræddu starfi geti ekki talist gildar, sbr. 4. mgr. 57. gr. sömu laga. Kæranda beri því að sæta viðurlögum á grundvelli 1. mgr. 57. gr. laganna.

IV.  Niðurstaða

Kærð er ákvörðun Vinnumálastofnunar um að fella niður rétt kæranda til atvinnuleysisbóta í tvo mánuði á grundvelli 1. mgr. 57. gr. laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar.

Ákvæði 1. mgr. 57. gr. laga nr. 54/2006 er svohljóðandi:

„Sá sem hafnar starfi sem honum býðst með sannanlegum hætti eftir að hafa verið í atvinnuleit í a.m.k. fjórar vikur frá móttöku Vinnumálastofnunar á umsókn um atvinnuleysisbætur skal ekki eiga rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta skv. VII. kafla fyrr en að tveimur mánuðum liðnum, sem ella hefðu verið greiddar bætur fyrir, frá þeim degi er viðurlagaákvörðun Vinnumálastofnunar er tilkynnt aðila, sbr. þó 5. mgr. Hið sama á við um þann sem hafnar því að fara í atvinnuviðtal vegna starfs sem honum býðst með sannanlegum hætti eða sinnir ekki atvinnuviðtali án ástæðulausrar tafar.“

Þá segir svo í 4. mgr. 57. gr. laganna:

„Vinnumálastofnun skal meta við ákvörðun um viðurlög skv. 1. mgr. hvort ákvörðun hins tryggða um að hafna starfi hafi verið réttlætanleg vegna aldurs hans, félagslegra aðstæðna sem tengjast skertri vinnufærni eða umönnunarskyldu vegna ungra barna eða annarra náinna fjölskyldumeðlima. Enn fremur er Vinnumálastofnun heimilt að líta til heimilisaðstæðna hins tryggða þegar hann hafnar starfi fjarri heimili sínu sem og til ráðningar hans í ótímabundið starf innan tiltekins tíma. Þá er heimilt að taka tillit til aðstæðna þess sem getur ekki sinnt tilteknum störfum vegna skertrar vinnufærni samkvæmt vottorði sérfræðilæknis. Getur þá komið til viðurlaga skv. 59. gr. hafi hinn tryggði leynt upplýsingum um skerta vinnufærni.“

Í athugasemdum greinargerðar við frumvarp það er varð að lögum nr. 54/2006 segir meðal annars um 57. gr. að gert sé ráð fyrir að ákvæðið eigi við um þá sem hafa verið í atvinnuleit í að minnsta kosti fjórar vikur frá móttökudegi umsóknar um atvinnuleysisbætur en ekki sé tekið fram hvort líkur séu á að hlutaðeigandi fái vinnu í sinni starfsgrein. Eðlilegt þyki að þeir tryggðu fái fjögurra vikna svigrúm til að leita sér að því starfi sem þeir helst kjósi að sinna. Ekki skipti máli hvort um sé að ræða fullt starf, hlutastarf eða vaktavinnu þar sem mikilvægt sé að hinn tryggði verði aftur virkur á vinnumarkaði.

Samkvæmt gögnum málsins var kæranda boðið umönnunarstarf hjá B. Í svari kæranda við því boði kom fram að hann gæti unnið í eldhúsi, við þrif eða þvott en umönnun væri ekki fyrir hann. Úrskurðarnefndin telur ljóst að kæranda hafi sannanlega verið boðið starf og að hann hafi hafnað því. Kemur því til skoðunar hvort ástæður kæranda fyrir þeirri höfnun hafi verið réttlætanlegar í skilningi 4. mgr. 57. gr. laga nr. 54/2006. Kærandi hefur gefið þær skýringar að starfið henti honum ekki og að hann hafi enga reynslu af umönnunarstörfum. Þá hefur kærandi vísað til þess að á umsókn um atvinnuleysisbætur hafi hann merkt við hótelstörf, eldhússtörf og verslunarstörf.

Að mati úrskurðarnefndarinnar eru þær ástæður og skýringar sem kærandi hefur gefið ekki þess eðlis að þær réttlæti höfnun á starfinu, sbr. 4. mgr. 57. gr. laga nr. 54/2006. Úrskurðarnefndin bendir á að í 1. mgr. 13. gr. laganna er fjallað um almenn skilyrði þess að vera tryggður samkvæmt lögunum. Eitt af þeim skilyrðum er að vera í virkri atvinnuleit samkvæmt 14. gr. en í því felst meðal annars að vera reiðubúinn að taka hvert það starf sem greitt er fyrir, sbr. c. lið 1. mgr. ákvæðisins.

Með vísan til framangreinds er hin kærða ákvörðun staðfest.


 

Ú R S K U R Ð A R O R Ð

Ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 18. nóvember 2021, um að fella niður rétt A, til atvinnuleysisbóta í tvo mánuði, er staðfest.

F.h. úrskurðarnefndar velferðarmála

Hólmfríður Birna Guðmundsdóttir

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum