Hoppa yfir valmynd
22. júní 2023 Dómsmálaráðuneytið

Nr. 376/2023 Úrskurður

KÆRUNEFND ÚTLENDINGAMÁLA

 

Hinn 22. júní 2023 er kveðinn upp svohljóðandi

úrskurður nr. 376/2023

í stjórnsýslumáli nr. KNU23050026

 

Kæra [...]

á ákvörðun

Útlendingastofnunar

 

I.       Kröfur, kærufrestir og kæruheimild

Hinn 28. apríl 2023 kærði [...], fd. [...], ríkisborgari Kína (hér eftir kærandi), ákvörðun Útlendingastofnunar, dags. 13. apríl 2023, um að synja henni um vegabréfsáritun til Íslands.

Af kæru kæranda má ráða að hún krefjist þess að ákvörðun Útlendingastofnunar verði felld úr gildi og fallist verði á beiðni hennar um vegabréfsáritun til Íslands.

Fyrrgreind ákvörðun er kærð á grundvelli 7. gr. laga um útlendinga nr. 80/2016 og barst kæran fyrir lok kærufrests.

Lagagrundvöllur

Í máli þessu gilda einkum ákvæði laga um útlendinga nr. 80/2016, ásamt síðari breytingum, reglugerð um útlendinga nr. 540/2017, ásamt síðari breytingum, ákvæði stjórnsýslulaga nr. 37/1993, reglugerð um vegabréfsáritanir nr. 795/2022, með síðari breytingum, auk annarra alþjóðlegra skuldbindinga Íslands á sviði mannréttinda eftir því sem tilefni er til.

II.        Málsatvik og málsmeðferð

Með umsókn, dags. 22. mars 2023, óskaði kærandi eftir vegabréfsáritun til Íslands og Schengen-svæðisins í 13 daga. Samkvæmt ferðaáætlun kæranda hafi hún ætlað að ferðast til Íslands 4. maí 2023 og til baka 16. maí 2023. Umsókn kæranda var synjað með ákvörðun Útlendingastofnunar, dags. 13. apríl 2023. Hinn 28. apríl 2023 barst kærunefnd kæra frá kæranda, ásamt fylgiskjali. Þá barst kærunefnd greinargerð frá kæranda 6. maí 2023. Með kæru lagði kærandi fram húseigandavottorð, skráningarskírteini bifreiðar ásamt kínversku og alþjóðlegu ökuskírteini.

III.    Málsástæður og rök kæranda

Í kæru kæranda kemur fram að hún hafi sótt um vegabréfsáritun til Íslands ásamt vinkonu sinni (hér eftir X). Kærandi hafi séð kynningu um íslenska menningu og náttúru á internetinu. Þá hafi teymi sem vinkona kæranda haldi mikið uppá í uppáhalds tölvuleik kæranda, League of Legends, ferðast alla leið frá Saharasi til Reykjavíkur árið 2021 og unnið meistaratitilinn. Framangreint hafi vakið áhuga kæranda á að heimsækja Ísland, hið fallega og dularfulla land. Kærandi geri sér grein fyrir að umsókn hennar gæti hafa verið ruglandi og biðjist velvirðingar á því. Til stuðnings kröfu sinni og til þess að gæta öryggis í ókunnugu landi hafi kærandi aflað sér upplýsinga, m.a. um gistingu, ferðaleiðir, fallegar staðsetningar og veður og hafa sent ferðatilhögun. Kærandi ætli einnig að taka þátt í hópferðum, t.a.m. jöklagöngu og fara gullna hringinn. Kærandi hafi sótt um alþjóðlegt ökuskírteini og hafi aflað sér upplýsinga um hvernig mætti leigja og velja bíl um leið og hún hafa ákveð að fara til Íslands. Kærandi hafi keyrt bíl í Kína í 12 ár og hafi getu til að aka í ólíkum aðstæðum á öruggan hátt og eftir umferðarreglum Íslands. Kærandi ætli sér að snúa tafarlaust aftur til starfa í heimaríki eftir ferðina. Kærandi elski foreldra, maka, vini og vinnuna sína og muni snúa aftur heim að ferðalaginu lokinu.

Þá greinir kærandi frá því í öðru bréfi til kærunefndar, 6. maí 2023, að kærandi upplifi sorg og þunglyndi vegna synjunar á umsókn hennar um vegabréfsáritun til Íslands. Ferðaáætlun sem kærandi hafi sent sendiráðinu hafi verið vel ígrunduð og ítarleg. Þá hafi kærandi lagt fram viðbótarupplýsingar 5. maí 2023. Kærandi hafi veitt allar upplýsingar og átti sig ekki á ástæðu synjunarinnar. Kærandi geri sér grein fyrir því að hún og vinkona hennar séu einhleypar sem gæti verið öryggisvandamál. Þær hafi undirbúið ferðina vel varðandi gistingu, umferð, veður og fatnað. Kærandi vonist til þess að henni verið veittar upplýsingar um ástæðu synjunarinnar svo þær geti undirbúið sig betur fyrir næstu umsókn.

IV.    Niðurstaða kærunefndar útlendingamála

Samkvæmt 1. mgr. 20. gr. laga um útlendinga þurfa útlendingar að hafa vegabréfsáritun til að koma hingað til lands, nema annað sé ákveðið í reglum sem ráðherra setur. Ríkisborgarar Kína þurfa vegabréfsáritun til Íslands. Í 6. mgr. 20. gr. laga um útlendinga koma fram skilyrði til útgáfu vegabréfsáritunar og í 33. gr. reglugerðar um vegabréfsáritanir er tilgreint hvenær synja skuli um vegabréfsáritun. Heimilt er samkvæmt fyrrgreindri 6. mgr. 20. gr. að veita útlendingi vegabréfsáritun sem gildir á öllu Schengen-svæðinu ef grunnskilyrðum a - h liða sömu greinar er fullnægt.

Samkvæmt 7. mgr. 20. gr. laga um útlendinga skal vegabréfsáritun ekki veitt ef ástæða er til að vefengja uppgefinn tilgang ferðar útlendings hingað til lands eða réttmæti upplýsinga sem hann hefur veitt. Er þessi regla áréttuð í 8. mgr. ákvæðisins en þar kemur fram að við mat á umsókn um vegabréfsáritun skuli auk þjóðernis taka tillit til félagslegrar stöðu og hættu á að útlendingur dvelji lengur á Schengen-svæðinu en honum er heimilt.

Með aðild að Schengen-samstarfinu og undirritun Brussel-samningsins hinn 18. maí 1999 tókust íslensk stjórnvöld á hendur skyldu til að fylgja samræmdum reglum um útgáfu vegabréfsáritana. Hafa stjórnvöld sem annast afgreiðslu umsókna um vegabréfsáritanir mótað tilteknar verklagsreglur til að styðjast við, byggðar á efnisreglum Schengen-samningsins, en með aðild Íslands að Schengen-samstarfinu fylgir skuldbinding til þess að fylgja sameiginlegri stefnu að því er lýtur ferðum fólks, sbr. reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 810/2009 um vegabréfsáritanir.

Við veitingu vegabréfsáritana ber íslenskum stjórnvöldum sem einu af Schengen-ríkjunum ekki aðeins að ganga úr skugga um að öllum formskilyrðum sé fullnægt heldur einnig að meta hvort hætta sé talin á að viðkomandi útlendingur muni dvelja lengur á Schengen-svæðinu en honum er heimilt og/eða snúa ekki aftur til heimalands. Þessi skylda íslenskra stjórnvalda er lögfest í 8. mgr. 20. gr. laga um útlendinga. Þannig er reynt af fremsta megni að stemma stigu við því að gildandi reglur um dvalarleyfi séu sniðgengnar með því að útlendingur sæki um vegabréfsáritun í staðinn. Í athugasemdum með frumvarpi til laga um útlendinga kemur fram að rétt sé að lögfesta ákveðin sjónarmið sem beri að miða við í mati á umsókn um vegabréfsáritun. Séu þessi sjónarmið í samræmi við markmið laganna og hafi mótast í framkvæmd Schengen-ríkjanna. Enn fremur segir í athugasemdum með frumvarpinu að við mat á einstökum atriðum sé nauðsynlegt að taka tillit til reynslu og framkvæmdar annarra Schengen-ríkja. Leiði það af eðli samstarfsins að mikilvægt sé að samræmis sé gætt á þessu sviði svo sömu skilyrði gildi um vegabréfsáritanir á Schengen-svæðinu.

Samkvæmt 33. gr. reglugerðar um vegabréfsáritanir skal með fyrirvara um 1. mgr. 25. gr. reglugerðarinnar synjað um vegabréfsáritun í nokkrum tilvikum. Meðal þeirra tilvika sem nefnd eru ef umsækjandi getur ekki fært rök fyrir tilgangi eða skilyrðum fyrirhugaðrar dvalar sinnar, sbr. ii.-lið a-liðar ákvæðisins, eða ef rökstudd ástæða sé til að draga í efa að fylgiskjöl, sem umsækjandi leggur fram, séu ósvikin eða að innihald þeirra sé rétt, eða áreiðanleika framburðar umsækjanda eða ásetning hans til að yfirgefa yfirráðasvæði aðildarríkjanna áður en vegabréfsáritunin sem sótt er um rennur út, sbr. b-lið ákvæðisins.

Synjunarform Útlendingastofnunar er í samræmi við reglugerð um vegabréfsáritanir og reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins um vegabréfsáritanir (2009/810/EB), en nánari tilvísun er að finna í ákvörðun stofnunarinnar í máli kæranda. Í ákvörðun Útlendingastofnunar er notað staðlað form þar sem hægt er að merkja í reiti á bilinu 1-17, þ.e. ástæður þess að umsókn sé synjað. Í ákvörðun kæranda er merkt í reiti 10 og 11 vegna synjunar á umsókn kæranda, þ.e. að upplýsingar sem veittar hafi verið um tilgang og skilyrði fyrirhugaðar dvalar hafi ekki verið áreiðanlegar og að rökstudd ástæða sé til að draga í efa að yfirlýsingar varðandi ferðaáætlun séu áreiðanlegar. Uppfyllti kærandi þar með ekki skilyrði 20. gr. laga um útlendinga sem og 33. gr. reglugerðar um vegabréfsáritanir.

Með vísan til 21. gr. stjórnsýslulaga var kæranda jafnframt leiðbeint um að hún gæti óskað eftir skriflegum rökstuðningi innan 14 daga frá tilkynningu ákvörðunar. Samkvæmt upplýsingum frá Útlendingastofnun óskaði kærandi ekki eftir slíkum rökstuðningi hjá Útlendingastofnun og því liggur ekki fyrir í máli kæranda frekari rökstuðningur Útlendingastofnunar vegna synjunar á umsókn hennar.

Í 10. mgr. 20. gr. laga um útlendinga kemur fram að Útlendingastofnun taki ákvörðun um umsókn um útgáfu vegabréfsáritunar og þá sé heimilt að fela utanríkisþjónustunni að taka ákvörðun um slíkar umsóknir. Enn fremur sé heimilt að fela utanríkisþjónustu annars ríkis sem taki þátt í Schengen-samstarfinu að verða við umsókn um vegabréfsáritun. Í athugasemdum með ákvæðinu í frumvarpi að lögum um útlendinga kemur fram að miðað sé við að umsóknir um vegabréfsáritun verði lagðar fram í skrifstofum sendiráða og ræðisskrifstofa erlendis og þær sendar Útlendingastofnun til ákvörðunar. Viðkomandi sendiráð eða ræðisskrifstofa muni síðan gefa áritunina út að fenginni heimild Útlendingastofnunar. Þá kemur fram að gert sé ráð fyrir að ráðherra geti heimilað utanríkisþjónustunni að taka ákvörðun um umsóknir um vegabréfsáritun. Íslenska sendiráðið í Peking tekur á móti og fer með meðferð umsókna um vegabréfsáritanir til Íslands sem lagðar eru fram í Kína, sbr. 10. mgr. 20. gr. laga um útlendinga. Þyki skilyrði ekki fyrir hendi til útgáfu áritunar er mál lagt fyrir Útlendingastofnun til ákvörðunar.

Í gögnum málsins liggur m.a. fyrir afrit úr málaskrá Útlendingastofnunar, Erlendi, vegna máls kæranda þar sem málsmeðferð umsóknar hennar hjá sendiráðinu er rakin. Þar kemur fram að ekki hafi tekist að staðfesta flugbókun kæranda og að hótelbókanir kæranda hafi verið afbókaðar. Kærandi hafi jafnframt ekki verið trúverðug í samtali við sendiráðið og hafi ekki verið búin að undirbúa ferð sína til Íslands nema að takmörkuðu leyti. Auk þess sé innkoma kæranda ekki ákjósanleg miðað við kostnað ferðarinnar. Símaviðtal hafi verið tekið við vinkonu kæranda, X, sem hafi skipulagt fyrirhugaða ferð þeirra að mestu. X hafi greint frá því að ferðaskrifstofa hafi skipulagt alla ferðina þeirra, þ. á m. gengið frá hótelbókunum og ferðaáætlun. X hafi ekki vitað neitt um ferðaáætlunina. Hún hafi síðan sagst þurfa að fara á mikilvægan fund og slitið símtalinu. Haft hafi verið samband við kæranda sem hafi einnig vitað lítið um Ísland, en hún hafi einungis minnst á Gullna hringinn, Bláa lónið og jöklaferðir. Þær hafi ætlað að dvelja hér á landi í 13 daga og ef veðrið væri slæmt myndu þær dvelja allan tímann í Reykjavík. Kærandi hafi verið spurð út í ferðamáta hér á landi og hafi hún svarað því að þær myndu ferðast með strætó eða rútu og öðrum almenningssamgöngum. Þá hafi hún greint frá því að þær hefðu áform um að bóka skoðunarferð hér á landi en að þær væru ekki búnar að greiða fyrir hana þar sem þær vilji fá vegabréfsáritun samþykkta fyrst. Kærandi kvaðst þá einungis hafa ferðast til Víetnam árið 2018.

Að mati kærunefndar eru framlögð gögn og þær málsástæður sem kærandi byggir á ekki þess eðlis að ástæða sé til að hnekkja mati Útlendingastofnunar á umsókn hennar um vegabréfsáritun. Við mat á því hefur kærunefnd m.a. litið til þess að kærandi vissi lítið sem ekkert um Ísland í símaviðtali og nefndi einungis Gullna hringinn, Bláa lónið og jöklaferðir. Kærunefnd horfir jafnframt til þess að ekki hafi verið hægt að staðfesta flugbókun kæranda og að hótelbókanir hennar hafi verið afbókaðar. Í símaviðtali kvaðst kærandi jafnframt ætla að ferðast hér á landi með strætó og öðrum almenningssamgöngum en í bréfi með kæru hennar kemur fram að þegar hún hafi ákveðið að fara til Íslands hafi hún sótt um alþjóðlegt ökuskírteini og farið að lesa sér til um bílaleigubíla svo að hún gæti keyrt hér á landi. Að öllu framangreindu virtu tekur kærunefnd undir það mat Útlendingastofnunar að kærandi hafi ekki fært rök fyrir tilgangi og skilyrðum fyrirhugaðar dvalar sinnar á Íslandi, sbr. ii-lið a-liðar 1. mgr. 33. gr. reglugerðar um vegabréfsáritanir. Hafi þannig verið ástæða til að vefengja uppgefinn tilgang ferðar kæranda hingað til lands, sbr. 7. mgr. 20. gr. laga um útlendinga. Verður hin kærða ákvörðun um að synja kæranda um vegabréfsáritun til landsins því staðfest.

 

Úrskurðarorð:

 

Ákvörðun Útlendingastofnunar er staðfest.

The decision of the Directorate of Immigration is affirmed.

 

 

Fyrir hönd kærunefndar útlendingamála,

 

 

Þorsteinn Gunnarsson, formaður

 

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum