Hoppa yfir valmynd
28. júní 2018 Innviðaráðuneytið

Norrænir ráðherrar byggðamála á fundi í Haparanda

F.v. Sven-Erik Bucht, byggðamálaráðherra Svíþjóðar, Sigurður Ingi Jóhannsson, samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra, Jon Georg Dale, landbúnaðar- og matvælaráðherra Noregs og Sigmund Lubanski, fulltrúi Dana á fundinum. - mynd

Samstarf Norðurlandanna á vettvangi byggðamála, flutningur opinberra starfa út á landsbyggðina og áhersluverkefni næsta árs þegar Ísland tekur við formennsku í Norrænu ráðherranefndinni voru í sviðsljósinu á fundi norrænna ráðherra byggðamála sem Sigurður Ingi Jóhannsson, samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra, sótti í bænum Haparanda í Svíþjóð í gær.

Kynntar voru stefnur sem unnið er eftir í Noregi og Danmörku varðandi flutning starfa út á landsbyggðina og sagði Sigurður Ingi að þetta væri nokkuð sem Íslendingar gætu lært af. Þetta væru án efa umfangsmestu breytingar af þessum toga á Norðurlöndunum og ef til vill í Evrópu. Á Íslandi hefði ekki verið unnið samkvæmt slíkri stefnumörkun, en flutningur starfa á landsbyggðina hefði samt verið hluti af byggðapólitík í gegnum árin. „Við teljum að það örvi vöxt á landsbyggðinni og auki jafnvægi milli byggða,“ sagði ráðherra. 

Sigurður Ingi sagði frá undirbúningi Íslands fyrir formennskuna í Norrænu ráðherranefndinni sem hefst um næstu áramót þegar Ísland tekur við keflinu af Svíþjóð. Áhersla verður m.a. lögð á málefni ungs fólks, sjálfbæra ferðaþjónustu í norðri og málefni hafsins undir formennsku Íslands, en byggðamálin munu einnig speglast í verkefnunum auk þess sem þau tengjast heimsmarkmiðum Sameinuðu þjóðanna. Dagskrá Íslands á formennskuárinu verður kynnt á fundi Norðurlandaráðs í Ósló 31. október nk. 

Ráðherra fjallaði einnig um NAUST-verkefnið sem var sett af stað undir formennsku Íslands í norræna samstarfinu árið 2014 og lýtur að vestnorrænni byggðaþróunarstefnu. Verkefnið snýst um að bregðast við vandamálum sem snúa að byggð og byggðamálum á Vestur-Norðurlöndum, þ.e. Íslandi, Grænlandi, Færeyjum og norður- og vesturhluta Noregs. Sérstök áhersla er lögð á atvinnumál, byggðamál og umhverfismál. Verkefninu er ekki lokið, en ráðherra sagði hið vestnorræna samstarf vera mikilvægt og stefnt væri að því að setja það á dagskrá á næsta ári og reyna að ljúka því svo fljótt sem verða má í góðu samstarfi allra er að því koma.

 

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum